Fótbolti
74 75 76 77 78 79 80 81 82 … 334 ›
Í beinni: Stjarnan - Keflavík | 147 dagar síðan gestirnir unnu deildarleik Stjarnan tekur á móti Keflavík í 22. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Það eru komnir 147 dagar síðan gestirnir, sem sitja á botni deildarinnar, unnu deildarleik en það gerðist í 1. umferð. Leikurinn hefst kl. 14.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Íslenski boltinn 3.9.2023 13:16
Var spurður út í varnarlínuna en fór að lýsa leið sinni í vinnuna Mikel Arteta, þjálfari Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, hefur vakið mikla athygli fyrir undarlegt svar sitt á blaðamannafundi fyrir stórleik dagsins. Enski boltinn 3.9.2023 08:00
Segir dómarastéttina ósátta með sýndarmennsku KSÍ Knattspyrnusamband Íslands fór nýverið af stað með herferð þar sem markmiðið er að þjálfarar, leikmenn og stuðningsfólk beri meiri virðingu fyrir dómurum landsins. Það virðist ekki sem sú herferð sé að ganga nægilega vel. Íslenski boltinn 3.9.2023 07:01
„Fótbolti snýst um að gera ekki mistök“ „Við erum svekktir því gerðum allt til að ná í önnur úrslit en fótbolti snýst um að gera ekki mistök. Við gerðum ein og okkur var refsað,“ sagði Mauricio Pochettino eftir 0-1 tap sinna manna í Chelsea gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Enski boltinn 2.9.2023 23:30
Fenginn frítt og seldur á tæpa fjórtán milljarða ári síðar Ákvörðun Eintracht Frankfurt að semja við franska framherjann Randal Kolo Muani sumarið 2022 hlýtur að vera ein besta ákvörðun í sögu félagsins. Leikmaðurinn var nýverið seldur til París Saint-Germain á 95 milljónir evra eða tæpa 14 milljarða íslenskra króna. Fótbolti 2.9.2023 23:00
Diljá Ýr fer vel af stað í Belgíu Diljá Ýr Zomers virðist kunna vel við sig í Belgíu þar sem hún spilar með Leuven í efstu deild kvenna í knattspyrnu. Hún skoraði eitt mark í góðum sigri í dag. Fótbolti 2.9.2023 22:00
„Við verðum bara betri“ Erling Braut Håland skoraði þrennu í 5-1 sigri Englandsmeistara Manchester City á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hann segir að lið sitt verði bara betra þegar fram líði stundir. Enski boltinn 2.9.2023 21:31
Lazio með óvæntan sigur á meisturunum Lazio vann óvæntan 2-1 útisigur á Ítalíumeisturum Napoli í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, í kvöld. Fótbolti 2.9.2023 20:50
„Helsti styrkleiki Gylfa er að hann gerir leikmennina í kringum sig betri“ Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby, vill ekki gera of miklar kröfur til nýs leikmanns liðsins – Gylfa Þórs Sigurðssonar. Hann þekkir þó gæði hans og er fullviss um að hann reynist liðinu vel. Fótbolti 2.9.2023 20:00
Bayern kom til baka gegn Gladbach Þýskalandsmeistarar Bayern München komu til baka og unnu nauman 2-1 sigur á Gladbach í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 2.9.2023 19:00
Ferguson sökkti Newcastle Evan Ferguson skoraði þrennu þegar Brighton & Hove Albion lagði Newcastle United 3-1 í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 2.9.2023 18:41
ÍA og Fylkir í góðum málum í Lengjudeildunum ÍA vann 3-2 útisigur á Þór Akureyri í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Sigurinn þýðir að Akranes er þremur stigum á undan Aftureldingu þegar tvær umferðir eru eftir af hefðbundinni deildarkeppni í Lengjudeildinni. Íslenski boltinn 2.9.2023 18:01
Sjáðu Hákon Rafn fá rautt og stoðsendingu Arons Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson var rekinn af velli þegar Elfsborg, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, tapaði 1-0 gegn Varnamo á útivelli. Þá tapaði Íslendingalið Sirius fyrir Halmstad þó Aron Bjarnason hafi lagt upp mark. Fótbolti 2.9.2023 17:36
Sjáðu þegar Bellingham bjargaði Real enn og aftur Jude Bellingham bjargaði Real Madríd þegar liðið lagði Getafe 2-1 í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Skoraði hann sigurmarkið þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Fótbolti 2.9.2023 17:11
Meistararnir enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar Englandsmeistarar Manchester City unnu öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. City er eina liðið í deildinni sem enn er með fullt hús stiga. Enski boltinn 2.9.2023 13:30
Veltir fyrir sér hvort Southgate sé of trúr sínum uppáhalds mönnum Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, tilkynnti á fimmtudag hópinn sem mætir Úkraínu og Skotlandi síðar í þessum mánuði. Southgate er trúr sínum mönnum og velur leikmenn sem hafa lítið sem ekkert spilað sem og einn sem spilar nú í Sádi-Arabíu. Fótbolti 1.9.2023 13:31
Altay fyllir skarð Henderson á Old Trafford Markvörðurinn Altay Bayındır er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2027 með möguleika á árs framlengingu. Enski boltinn 1.9.2023 12:31
Englandsmeistararnir staðfesta Nunes og selja Palmer til Chelsea Englandsmeistarar Manchester City hafa staðfest kaupin á miðjumanninum Matheus Nunes. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið. Þá er hinn ungi Cole Palmer genginn í raðir Chelsea. Enski boltinn 1.9.2023 11:30
Tileinkaði andstæðingunum í úrslitaleik HM verðlaunin Sarina Wiegman, þjálfari Englands, var í gærkvöld valin þjálfari ársins í kvennaflokki af UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Hún tileinkaði spænska kvennalandsliðinu, liðið sem hafði betur gegn Englandi í úrslitum HM, verðlaunin sín. Fótbolti 1.9.2023 11:01
Erlendir fjölmiðlar fjalla um vistaskipti Gylfa Þórs Fjöldi erlendra fjölmiðla hefur fjallað um vistaskipti knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Hann er nýjasti leikmaður Íslendinganýlendunnar Lyngby sem spilar í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 1.9.2023 10:01
Fyrsta sinn sem allar Norðurlandaþjóðir eiga lið í riðlakeppni Í fyrsta skipti í sögunni eiga allar Norðurlandaþjóðirnar Ísland, Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Færeyjar öll knattspyrnulið sem munu keppa í riðlakeppni Evrópukeppna. Þetta varð ljóst í gær þegar Breiðablik tryggði sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 1.9.2023 09:30
„Þá kemur auðvitað leiðinlega svarið: Það er FH á sunnudaginn“ „Það sem við ætluðum að passa upp á að láta ekki spennustigið, láta ekki viðburðinn ná stjórn á okkur. Ætluðum að reyna halda í helstu gildin okkar, þora að halda boltanum, þora að koma framarlega, þora að spila sóknarleik. Ekki að lenda í því að fara verja forystuna,“ sagði Óskar Hrafn um leikskipuleg gærkvöldsins. Fótbolti 1.9.2023 09:01
Heimsmeistarinn Bonmatí og markaprinsinn Håland best að mati UEFA Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti í gærkvöld hverjir væru leikmenn og þjálfarar ársins að mati sambandsins. Fótbolti 1.9.2023 08:30
Allir leikir Íslands í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport Allir leikir íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu á árinu verða í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Fyrstu leikirnir verða 8. september gegn Lúxemborg ytra og svo 11. september gegn Bosníu og Hersegóvínu á Laugardalsvelli. Fótbolti 1.9.2023 08:01
Laugardalsvöllur eini möguleiki Blika hér á landi Breiðablik komst í gær í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Er þetta í fyrsta skipti sem karlalið frá Íslandi kemst svo langt í Evrópukeppni. Þó mikil gleði fylgi slíkum árangri þá fylgja því líka ýmis vandamál, til að mynda hvar skal spila leikina? Fótbolti 1.9.2023 07:31
Man United selur Henderson og fær vinstri bakvörð frá Tottenham Það hefur verið nóg um að vera á skrifstofu enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United í kvöld en félagið seldi leikmann sem og það virðist hafa fundið vinstri bakvörð. Enski boltinn 31.8.2023 23:31
Orri Steinn pollrólegur þegar í ljós kom að FCK myndi mæta Man Utd: „Ég sver það“ Orri Steinn Óskarsson, framherji Danmerkurmeistara FC Kaupmannahafnar og nýliða í íslenska landsliðinu, mætti í útvarpsþáttinn „Veislan með Gústa B“ fyrr í dag. Á sama tíma var dregið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og þar kom í ljós að FCK mætir liðinu sem Orri Steinn heldur með í enska boltanum, Manchester United. Fótbolti 31.8.2023 23:00
Þórir Jóhann lánaður til Þýskalands Knattspyrnumaðurinn Þórir Jóhann Helgason hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Lecce til Eintracht Braunschweig í þýsku B-deildinni. Fótbolti 31.8.2023 22:00
Gravenberch á leið til Liverpool fyrir rúman fimm og hálfan milljarð Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch er á leið til enska úrvalalsdeildarliðsins Liverpool frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Hann kostar Liverpool 40 milljónir evra eða 5,7 milljarða íslenskra króna. Enski boltinn 31.8.2023 21:45
Valgeir Lunddal í Evrópudeildina á meðan Hákon Arnar fer í Sambandsdeildina Í kvöld kom í ljós hvaða lið komust í riðlakeppni Evrópu- og Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu. Fyrr í kvöld tryggði Breiðablik sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar en nú er öllum leikjum kvöldsins lokið. Fótbolti 31.8.2023 21:31