Meistaradeildin
243 244 245 246 247 248 249 250 251 … 274 ›
Ferguson: Besti Evrópuleikurinn undir minni stjórn Sir Alex Ferguson var bókstaflega í sjöunda himni í kvöld eftir að hans menn í Manchester United rótburstuðu Roma 7-1 í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Ferguson sagði þetta bestu frammistöðu liðsins í Meistaradeildinni í sinni stjórnartíð. Fótbolti 10.4.2007 21:20
Aftaka á Old Trafford Manchester United tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu með ótrúlegum 7-1 sigri á ítalska liðinu Roma í síðari viðureign liðanna í 8-liða úrslitum. Enska liðið fór hreinlega á kostum í kvöld og gerði út um leikinn með þremur mörkum á átta mínútna kafla þegar aðeins 19 mínútur voru liðnar af leiknum. Fótbolti 10.4.2007 20:42
Essien tryggði Chelsea sæti í undanúrslitum Miðjumaðurinn magnaði Michael Essien tryggði Chelsea 2-1 sigur á Valencia í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld og þar með sæti í undanúrslitum keppninnar. Fernando Morientes kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en Andriy Shevchenko jafnaði í upphafi þess síðari. Það var svo Essien sem tryggði sigurinn með marki á 90. mínútu, en hann spilaði meiddur í kvöld. Fótbolti 10.4.2007 20:36
6-0 fyrir Manchester United Manchester United er komið í 6-0 gegn Roma á Old Trafford. Cristiano Ronaldo og Michael Carrick hafa báðir bætt við öðru marki sínu í leiknum og Rómverjarnir eru gjörsamlega heillum horfnir. Staðan í leik Valencia og Chelsea er 1-1 þar sem Andriy Shevchenko skoraði mark gestanna. Fótbolti 10.4.2007 20:07
United að valta yfir Roma Manchester United hefur yfir 4-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari viðureign liðsins gegn Roma í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Valencia hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og er því í vænlegri stöðu í einvíginu. Fótbolti 10.4.2007 19:34
Manchester United í stuði Manchester United er komið í 3-0 eftir aðeins 19 mínútna leik gegn Roma í Meistaradeildinni. Enska liðið hefur farið á kostum í upphafi leiks gegn lánlausum Rómverjunum og nú er United komið yfir 4-2 samtals í einvíginu. Mörkin skoruðu Carrick (11.), Smith (17.) og Rooney (19.). Fótbolti 10.4.2007 19:06
Essien byrjar hjá Chelsea Miðjumaðurinn Michael Essien verður í byrjunarliði Chelsea í leiknum gegn Valencia í Meistaradeildinni kvöld þrátt fyrir að vera tæpur vegna meiðsla. Fernando Morientes er í framlínu Valencia á ný eftir meiðslin sem hann varð fyrir í landsleiknum gegn Íslendingum. Fótbolti 10.4.2007 17:59
Alan Smith í byrjunarliði Man Utd Leikur Manchester United og Roma hefst klukkan 18:45 og verður sýndur beint á Sýn. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og þar vekur athygli að Alan Smith er í framlínu United og Darren Fletcher leysir Paul Scholes af hólmi á miðjunni. Fótbolti 10.4.2007 17:51
Átök fyrir utan Old Trafford Lögreglan í Manchester handtók nokkra stuðningsmenn ítalska liðsins Roma fyrir utan Old Trafford nú um klukkan 17. Nokkrir svartklæddir menn voru með ólæti fyrir utan heimavöll Manchester United og kom til nokkurra átaka milli þeirra og lögreglu. Sky sjónvarpsstöðin er með beina útsendingu frá staðnum. Lögregla hefur stillt til friðar á svæðinu en ástandið virðist nokkuð eldfimt af myndunum að dæma. Fótbolti 10.4.2007 17:15
Mourinho: Ég hef ekki efni á að hvíla lykilmenn Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki geta leyft sér sama munað og kollegi hans hjá Valencia þegar kemur að því að hvíla leikmenn. Þjálfari Valencia hvíldi framherjann David Villa í deildinni um helgina en Mourinho tefldi fram sínu sterkasta liði í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 10.4.2007 14:23
Ferguson hefur trú á sínum mönnum Sir Alex Ferguson segist ekki hafa áhyggjur af öðru en að hans menn í Manchester United muni svara kallinu þegar þeir mæta Roma öðru sinni í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Hann segist heldur ekki hafa áhyggjur af öryggismálum á vellinum eftir að uppúr sauð á fyrri leiknum í Róm. Fótbolti 10.4.2007 14:09
Liverpool mun sækja til sigurs Liverpool mun alls ekki vanmeta PSV og mun liðið sækja til sigurs í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag, að því er knattspyrnustjórinn Rafael Benitez heldur fram. Liverpool hefur 3-0 forystu frá því í fyrri leiknum en Benitez minnir á slíkt forskot sé vel hægt að missa og bendir á úrslitaleik Liverpool og AC Milan fyrir tveimur árum. Fótbolti 9.4.2007 14:26
Valencia óttast Drogba og Shevchenko Varnarmaðurinn Emiliano Moretti hjá Valencia segir að framherjar Chelsea, þeir Andriy Shevchenko og Didier Drogba, séu þeir sem geta komið í veg fyrir að spænska liðið fari í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu. Moretti segir að leikmenn Valencia hafa góðar gætur á þeim félögum ef ekki á illa að fara í síðari leik liðanna á morgun. Fótbolti 9.4.2007 14:25
United fordæmir ofbeldi rómversku lögreglunnar Forráðamenn knattspyrnufélagsins Manchester United hafa fordæmt vinnubrögð lögreglu á leik Roma og Manchester United í gærkvöldi og saka lögleglumenn á leikvanginum um að bregðast og hart við ólátum stuðningsmanna og beita þá ofbelti. Ellefu stuðningsmenn enska liðsins slösuðust í átökunum og þar af þurftu tveir að liggja á sjúkrahúsi í nótt. Fótbolti 5.4.2007 13:43
Scholes fær eins leiks bann Miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United þarf að taka út eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk að líta í leiknum gegn Roma í gær. Hann var þegar kominn í eins leiks bann vegna gulra spjalda þegar hann fékk fyrri áminninguna í gær, en hann verður enn einu gulu spjaldi frá banni þegar hann snýr til baka úr banninu eftir síðari leikinn við Roma. Fótbolti 5.4.2007 13:27
Rooney: Einn erfiðasti leikur sem ég hef spilað Wayne Rooney var mjög sáttur við úrslitin á Ítalíu í kvöld þó hans menn í Manchester United hafi tapað 2-1. Rooney skoraði fyrsta mark sitt í 18 Evrópuleikjum og hrósaði félögum sínum fyrir undirbúninginn. Ekki þarf að taka það fram að hann er fullur sjálfstrausts fyrir síðari leikinn á Old Trafford. Fótbolti 4.4.2007 22:45
Ferguson: Við vorum tíu gegn tólf Sir Alex Ferguson sagðist í kvöld ánægður með leik sinna manna í Manchester United í Róm þrátt fyrir 2-1 tap. Hann sagði lið sitt á köflum hafa verið tveimur leikmönnum færri og vildi þar meina að dómarinn hafi verið í liði með Rómverjum. Fótbolti 4.4.2007 22:32
Mourinho: Einvígið er galopið Jose Mourinho lét ekki hugfallast þó hans menn í Chelsea hefðu aðeins náð jafntefli við Valencia í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum á Stamford Bridge í kvöld. Hann segir einvígið opið í báða enda og hefur fulla trú á að hans menn geti farið til Spánar og klárað dæmið. John Terry treystir á að Didier Drogba muni reynast enska liðinu drjúgur í síðari leiknum. Fótbolti 4.4.2007 22:22
Roma lagði Manchester United Roma hafði betur 2-1 gegn Manchester United á heimavelli sínum í Róm í kvöld þegar liðin mættust í fyrri leik sínum í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Paul Scholes lét reka sig af velli í fyrri hálfleik og Rodrigo Taddei kom Roma í 1-0 skömmu fyrir hlé. Wayne Rooney jafnaði fyrir United á 60. mínútu en aðeins nokkrum mínútum síðar tryggði Mirko Vucinic Rómverjum sigurinn. Heimamenn hefðu ef til vill átt að gera betur í leiknum en fara með eins marks forystu til Englands í síðari leikinn. Fótbolti 4.4.2007 20:39
Jafnt hjá Chelsea og Valencia Chelsea og Valencia skildu jöfn 1-1 í fyrri leik sínum í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Gestirnir náðu forystu í leiknum með glæsilegu marki Silva í fyrri hálfleik, en Didier Drogba jafnaði í upphafi þess síðari. Það er því ljóst að enska liðsins bíður erfitt verkefni í síðari leiknum á Spáni. Fótbolti 4.4.2007 20:37
Rómverjar leiða á ný Roma er komið yfir á ný gegn Manchester United. Edwin van der Sar gerði vel að verja þrumuskot frá Mancini og sló boltann út í teiginn, en þar var það Mirko Vucinic sem hirti frákastið og þrumaði boltanum í netið. 2-1 fyrir Roma og um 20 mínútur til leiksloka. Fótbolti 4.4.2007 20:11
Rooney jafnar fyrir United Wayne Rooney er búinn að jafna metin fyrir Manchester United gegn Roma á útivelli 1-1. Markið kom á 60. mínútu eftir glæsilega skyndisókn gestanna. Þetta var fyrsta mark hans í Meistaradeildinni í 17 leikjum - síðan hann skoraði þrennu í keppninni árið 2004. Fótbolti 4.4.2007 20:03
Drogba jafnar fyrir Chelsea Didier Drogba er búinn að jafna leikinn í 1-1 fyrir Chelsea gegn Valencia strax í upphafi síðari hálfleiks. Markið skoraði hann með laglegum skalla yfir markvörð spænska liðsins eftir sendingu frá Ashley Cole. Nú rétt í þessu var Vicente að fara meiddur af velli hjá Valencia. Staðan í Róm er enn 1-0 fyrir heimamenn gegn Manchester United - sem leikur með 10 menn eftir að Paul Scholes var rekinn af velli. Fótbolti 4.4.2007 19:58
Ólæti á pöllunum í Róm Óeirðir brutust út á áhorfendapöllunum á Ólympíuleikvanginum í Róm eftir að Paul Scholes var rekinn af velli í leik Roma og Manchester United. Stuðningsmenn liðanna skutu flugeldum á milli sín og að lokum réðust Rómverjarnir að ensku stuðningsmönnunum. Lögregla blandaði sér í átökin og mátti sjá nokkur blóðug andlit eftir að gæslumenn náðu að róa stuðningsmennina niður. Fótbolti 4.4.2007 19:53
Ensku liðin undir í hálfleik Chelsea og Manchester United eru undir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureignunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeildinni. Chelsea er 1-0 undir á heimavelli gegn Valencia þar sem Silva skoraði á 30. mínútu og Manchester United er í hvað verri málum í Róm þar sem heimamenn hafi yfir 1-0 með marki Taddei skömmu fyrir hlé. Þá var Paul Scholes vikið af leikvelli eftir að hann fékk sitt annað gula spjald og gestirnir því manni færri. Fótbolti 4.4.2007 19:30
Solskjær í byrjunarliði United Leikur Roma og Manchester United verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 18:30. Ole Gunnar Solskjær er í byrjunarliði enska liðsins og þeir Louis Saha og Darren Fletcher eru óvænt á varamannabekknum. Fótbolti 4.4.2007 17:59
Van Buyten: Milan er betra á útivöllum Belgíski landsliðsmaðurinn Daniel van Buyten var hetja Bayern Munchen í gær þegar liðið náði fræknu 2-2 jafntefli við AC Milan á útivelli í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Van Buyten skoraði bæði mörk þýska liðsins og kom því í vænlega stöðu fyrir síðari leikinn á heimavelli. Fótbolti 4.4.2007 15:25
Kromkamp: Þetta er búið Jan Kromkamp, leikmaður PSV Eindhoven, viðurkennir að einvígið við Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sé þegar búið þó liðin eigi eftir að mætast öðru sinni á Anfield í Liverpool. Enska liðið vann öruggan sigur í fyrri leiknum í Hollandi í gærkvöld, 3-0. Enski boltinn 4.4.2007 15:19
Giggs: Vonbrigði ef við vinnum ekki Meistaradeildina Vængmaðurinn Ryan Giggs hjá Manchester United segir að allt annað en að vinna Meistaradeildina í ár yrðu vonbrigði fyrir félagið. Giggs er einn sigursælasti knattspyrnumaður í sögu Manchester United og vill ólmur bæta enn einum titlinum í safnið í vor. Fótbolti 4.4.2007 15:09
Edu: Við erum ekki hræddir við Chelsea Brasilíski miðjumaðurinn Edu hjá Valencia, sem áður lék í fjögur ár með Arsenal, segir spænska liðið alls ekki hrætt við Chelsea fyrir leik liðanna á Stamford Bridge í kvöld. Edu er meiddur og getur ekki tekið þátt í leiknum, sem sýndur verður beint á Sýn Extra klukkan 18:30. Fótbolti 4.4.2007 12:02