Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Lovísa Arnardóttir skrifar 10. ágúst 2026 08:26 Fínt veðut til útiveru. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð hægri breytilegri átt og að það verði léttskýjað um mestallt land, en líkur á stöku skúrum með kvöldinu inn til landsins. Hlýnar, einkum fyrir norðan og austan og hiti víðast 12 til 19 stig yfir daginn.
Fram kemur í spá að á morgun sé spáð hægt vaxandi austanátt og að það þykkni upp, fyrst sunnantil. Austan 8-15 syðst og fer að rigna seinnipartinn, en áfram hæg breytileg átt og léttskýjað fyrir norðan. Hiti breytist lítið. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að á þriðjudag komi lægð upp að landinu og svo á miðvikudag, almyrkvadaginn, sé útlit fyrir að skil fari yfir landið. „Vindur verður úr austri og norðaustri og allvíða skýjað og rigning með köflum, en þurrt fram eftir degi á Norðurlandi. Á Vesturlandi er þó útlit fyrir að það verði skýjað með köflum og úrkomulítið síðdegis og mögulega gæti skýjahulan brotnað upp staðbundið, einkum um kvöldið,“ segir í hugleiðingum. Á fimmtudag er svo spáð norðlægum vindi og úrkomu sem verður einkum bundin við norðanvert landið, en hægviðri í vikulokin og stöku síðdegisskúrir. Fremur hlýtt í veðri alla vikuna. Á vef Vegagerðarinnar má sjá að víðast hvar er greiðfært um landið en víða er vegavinna eða framkvæmdir sem geta tafið eða hægt á umferð. Þar kemur einnig fram að búast megi við steinkasti og jafnvel töfum vegna þessarar vinnu. Hraði er tekinn niður á flestum vinnusvæðum og mælt með að halda 50 metrum á milli bíla til að minnka líkur á skemmdum vegna steinkasts. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Hægt vaxandi austlæg átt og skýjað með köflum eða léttskýjað norðantil. Austan 5-13 m/s sunnantil, þykknar upp og fer að rigna. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast um norðanvert landið. Á miðvikudag (almyrkvi á sólu): Austan og norðaustan 3-10 m/s og víða skýjað og rigning með köflum. Þurrt að kalla á Vesturlandi um kvöldið. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Skýjað og dálítil væta um norðanvert landið, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 9 til 20 stig, hlýjast syðst. Á föstudag, laugardag og sunnudag: Útlit fyrir norðvestlæga eða breytilega átt. Skýjað með köflum og sums staðar stöku síðdegisskúrir. Fremur milt í veðri.
Veður Færð á vegum Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira