Fjármálamarkaðir
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 11 ›
Treble stefnir á um tveggja milljarða fjármögnun frá erlendum fjárfestum Djúptæknifyrirtækið Treble Technologies stefnir á 12-15 milljón evra fjármögnun, jafnvirði 1,8-2,3 milljarða króna, frá erlendum fjárfestum og fjölga starfsmönnum úr 32 í um 50 hérlendis. Evrópski fjárfestingarbankinn hefur skuldbindið sig til að taka þátt í fjárfestingarlotunni og leggja fram jafn háa fjárhæð og safnast frá öðrum fjárfestum, upplýsir framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins. Innherji 20.11.2023 14:01
Óvissan á Reykjanesskaga knýr Seðlabankann til að halda vöxtum óbreyttum Allt útlit er fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi vöxtum óbreyttum í vikunni vegna þess óvissuástands sem ríkir út af jarðhræringunum á Reykjanesskaga en markaðsaðilar og hagfræðingar hafa ekki verið eins samstíga í væntingum sínum um ákvörðun nefndarinnar um langa hríð. Nánast allir þátttakendur í vaxtakönnun Innherja eiga von á biðleik hjá peningastefnunefndinni í annað sinn í röð enda séu merki um að hátt vaxtastig sé farið að kæla einkaneysluna og þá muni náttúruhamfarirnar draga mátt úr hagkerfinu á næstu mánuðum og þensla á vinnumarkaði minnka. Innherji 20.11.2023 11:02
Rafmyntasjóðurinn Viska hækkaði um 29 prósent í október Gengi Visku rafmyntasjóðs hækkaði verulega í október samhliða miklum hækkunum á Bitcoin, en mörgum öðrum rafmyntum vegnaði ekki eins vel. Um var að ræða besta mánuð sjóðsins frá stofnun hans, þar síðasta sumar. Sjóðurinn hefur tvöfaldast að stærð á innan við ári. Innherji 16.11.2023 16:08
Vægi íslenskra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða ekki verið lægra í þrjú ár Hlutfall innlendra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða hefur fallið stöðugt undanfarin misseri samhliða meðal annars því að verðlækkanir á mörkuðum hér heima hafa verið mun meiri en þekkist erlendis og er vægi þess eignaflokks núna nokkuð undir meðaltali síðasta áratugs. Með auknum umsvifum lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði á nýjan leik er hlutfall sjóðsfélagalána í eignasöfnum sjóðanna á sama tíma búið að hækka skarpt. Innherji 16.11.2023 12:45
Væntingar um vaxtatoppinn „klárlega að koma niður“ vegna óvissunnar Jarðhræringar og óvissan um framvindu mála á Reykjanesskaga hafa slökkt í öllum væntingum skuldabréfafjárfesta um mögulega vaxtahækkun þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku. Ávöxtunarkrafa styttri ríkisskuldabréfa hefur lækkað skarpt síðustu daga samtímis því að undirliggjandi raunvextir eru að koma niður, að sögn sjóðstjóra á markaði, en útlit er fyrir að fjármögnunarþörf ríkissjóðs eigi eftir að aukast talsvert frá fyrri áætlun vegna meiri hallareksturs. Innherji 15.11.2023 10:46
Staðan á hlutabréfamarkaðnum á mannamáli Hlutabréfamarkaðurinn hefur leikið marga grátt undanfarin misseri og úrvalsvísitalan hrunið um tuttugu prósent á einu ári. Viðskipti innlent 14.11.2023 11:15
Fjárfestar loka framvirkum samningum með krónunni vegna ótta við eldgos Gengi krónunnar hefur fallið skarpt á síðustu dögum samhliða því að auknar líkur eru nú taldar á eldgosi á Reykjanesskaga sem gæti meðal annars raskað verulega starfsemi stórra ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Talsvert hefur verið um að fjárfestar séu að loka framvirkum stöðum sínum með krónunni í þessum mánuði sem hefur ýtt enn frekar undir gengislækkun krónunnar. Innherji 13.11.2023 12:41
Lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hækkar í fyrsta sinn frá 2019 Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+, sem endurspeglar útlit fyrir áframhaldandi kraftmikinn hagvöxt, en ef opinber fjármál styrkjast meira en nú er áætlað gætu verið forsendur fyrir enn frekari hækkun. Líklegt er að hækkun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs muni í framhaldinu sömuleiðis skila sér í uppfærslu á lánshæfismati íslensku bankanna en S&P gerir ráð fyrir að arðsemi þeirra verði áfram sterk sem geri þá vel í stakk búna til að mæta mögulegum auknum útlánatöpum. Innherji 11.11.2023 13:21
Hvað er greiðslustöðvun? Gríðarlega athygli vakti í gær þegar Árni Oddur Þórðarson, sem lengi hefur verið einn farsælasti viðskiptamaður landsins, tilkynnti að hann hafði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvun er alls ekki algengt fyrirbæri og því vaknar spurningin: Hvað er greiðslustöðvun? Viðskipti innlent 9.11.2023 14:21
„Of þröng“ viðmið fyrir kauprétti í nýsköpunarfyrirtækjum Endurskoða þarf skattalega meðferð kauprétta starfsfólks í nýsköpunar- og hugverkafyrirtækjum. Viðmiðin eru of þröng og henta ekki þorra fyrirtækja í hugverkaiðnaði, segir sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins. Danskur stjórnandi vísisjóðs sagði að skynsamleg ráðstöfun kauprétta væri mikilvægur þáttur til að skapa frjóan jarðveg til að sprotafyrirtækið geti blómstrað og orðið að einhyrningum. Innherji 9.11.2023 13:23
Árni Oddur fær samþykkta greiðslustöðvun Hlutabréf í Marel hafa fallið um ríflega sextíu prósent á tveimur árum. Arion banki gerði því veðkall í hlutabréf forstjórans sem hætti í kjölfarið. Hann segir bankann ekki hafa farið að lögum því hann hafi lagt fram nægar tryggingar. Fráfarandi forstjóri hefur nú fengið samþykkta greiðslustöðvun. Viðskipti innlent 8.11.2023 18:38
Marel lækkaði um rúm sex prósent Gengi bréfa í Marel lækkaði um 6,42 prósent í Kauphöllinni í dag. Í gærkvöldi var greint frá því að forstjóri félagsins væri hættur eftir tíu ára starf. Viðskipti innlent 8.11.2023 17:59
Arion eignaðist 1,2 prósent í Marel með innlausninni Forstjóri Marel síðustu tíu ár er hættur eftir að Arion banki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest stærsta hluthafa í fyrirtækinu. Arion banki eignast næstum fimm prósent í fjárfestingarfélaginu eftir innlausnina. Viðskipti innlent 8.11.2023 13:01
Árni Oddur hættir hjá Marel vegna deilna við Arion Árni Oddur Þórðarson er hættur sem forstjóri Marel eftir tíu ára starf. Það gerði hann vegna réttaróvissu eftir að Arionbanki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest, stórum hluthafa í Marel. Viðskipti innlent 7.11.2023 19:10
Opinber sjóðasjóður sem fjárfestir ekki bara í Danmörku breytti miklu Einn af lykilþáttum þess að efla nýsköpunarumhverfið í Danmörku var að koma á laggirnar opinberum sjóði sem fjárfestir í vísisjóðum sem fjárfesta í sprotafyrirtækjum. Sjóðasjóðurinn fjárfestir ekki einungis í dönskum vísisjóðum heldur einnig í alþjóðlegum sjóðum í von um að hluti af fjármagninu muni rata til danskra fyrirtækja, sagði Tommy Andersen, meðstofnandi að danska vísisjóðnum byFounders, en hann hefur veitt dönskum og íslenskum stjórnvöld ráðgjöf um sprotaumhverfið. Innherji 7.11.2023 14:19
Fjárfestar með „augun á baksýnisspeglinum“ og sjá ekki tækifæri Kviku Fjárfestar eru með „augun á baksýnisspeglinum“ gagnvart Kviku, þar sem þeir horfa framhjá tækifærum til sóknar á bankamarkaði eftir mikla fjárfestingu í fjártæknilausnum, og hratt lækkandi markaðsvirði bankans endurspeglar nú „engan veginn“ undirliggjandi virði í eignum félagsins, að mati vogunarsjóðsstjóra sem hefur byggt upp stöðu í bankanum. Þá segir hann Sýn vera „eitt undirverðlagðasta félagið“ á markaði um þessar mundir og metur mögulegt virði auglýsingamiðla fyrirtækisins á um eða yfir fimm milljarða. Innherji 6.11.2023 18:33
Vísisjóðir á eftir sprotum sem seldir verða fyrir meira en 100 milljónir dala Fjögur íslensk fyrirtæki, sem eitt sinn voru sprotar, hafa verið seld fyrir meira en 100 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 14 milljarða króna. Vísisjóðir þurfa að selja einhver fyrirtæki í eignasafninu fyrir slíkar fjárhæðir til að ná góðri ávöxtun. Innlendir vísisjóðir eru með rúmlega 140 erlenda meðfjárfesta í fyrirtækjunum sem þeir styðja við, segir stjórnandi vísisjóðs. Innherji 6.11.2023 15:17
Samskipti skráðra félaga við hluthafa: Vandrataður vegur Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi góðra og hreinskiptinna samtala á milli stjórnar félags og hluthafa þess. Slík samtöl hafa á undanförnum árum orðið snar þáttur í eigendastefnum fjárfesta, þá sér í lagi stofnanafjárfesta sem kjósa í auknum mæli að beita sér sem virkir hluthafar, auk þess að gagnast stjórnum félaga við að draga fram og öðlast skilning á sjónarmiðum ólíkra hluthafa. Umræðan 6.11.2023 09:00
Furðar sig á ákvörðun Seðlabankans Orri Hauksson forstjóri Símans furðar sig á ákvörðun fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands sem sektaði félagið um 76,5 milljónir króna í vikunni. Hann segir félagið hafa birt allar upplýsingar sem beri að birta samkvæmt lögum. Síminn ætlar að skjóta ákvörðuninni til dómstóla. Viðskipti innlent 4.11.2023 17:49
Síminn sektaður um 76 milljónir Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands hefur sektað símann um 76,5 milljónir. Síminn þótti ekki hafa birt ætlaðar innherjaupplýsingar eða ákvörðun um frestun þeirra í tengslum við söluna á Mílu. Síminn mun skjóta málinu til dómstóla Viðskipti innlent 3.11.2023 19:09
Skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta afkomu Kviku af starfseminni í Bretlandi Erfiðar aðstæður á mörkuðum halda áfram að setja mark sitt á afkomu Kviku og minnkuðu tekjur af kjarnarekstri um liðlega 14 prósent á þriðja fjórðungi en framvirka bókin hjá bankanum er „miklu minni“ en áður sem hefur talsverð neikvæð áhrif á tekjumyndun, að sögn bankastjórans. Framlegðin af starfsemi Ortus í Bretlandi, sem hefur valdið vonbrigðum frá kaupunum í ársbyrjun 2022, ætti að halda áfram að batna með væntingum um hækkandi vaxtamun og verið sé að skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta fjármögnunarkostnað félagsins. Innherji 3.11.2023 11:49
Kvika hagnast um tæpa fjóra milljarða Hagnaður Kviku banka fyrir skatta nam 3.742 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2023. Heildareignir námu 328 milljörðum og eigið fé samstæðunnar voru 80 milljarðar króna. Viðskipti innlent 2.11.2023 19:45
Eftirbátar annarra norrænna banka í arðsemi sem hafa stóraukið vaxtatekjurnar Stærstu bankarnir á hinum Norðurlöndunum hafa séð vaxtatekjur sínar aukast að jafnaði um liðlega helming á milli ára sem ræður hvað mestu um að þeir eru nánast undantekningalaust að skila verulega betri arðsemi en íslensku bankarnir. Á meðan vaxtamunur bankanna hér á landi hefur haldist á svipuðum stað síðustu tólf mánuði þá hefur hann aukist nokkuð hjá öðrum norrænum bönkum samhliða hækkandi vaxtastigi, einkum vegna meiri vaxtamunar þeirra á innlánum. Innherji 2.11.2023 14:31
Gagnrýnir lífeyrissjóði og segir að þeir hafi „frekar ýtt undir vandann“ á markaði Aðstæður á innlendum fjármálamörkuðum á árinu hafa verið „með því verra sem sést hefur“ frá fjármálahruninu 2008 þar sem meðal annars smæð markaðarins, lítill sem enginn seljanleiki og mikið útflæði fjármagns hefur valdið „ákveðnum markaðsbresti“ og ýkt sveiflur á gengi félaga í báðar áttir, að sögn vogunarsjóðstjóra. Hann gagnrýnir lífeyrissjóðina, sem eiga liðlega helming af öllum skráðum hlutabréfum, fyrir sinnuleysi gagnvart hlutabréfamarkaðinum með því að beita sér lítið við þessar krefjandi aðstæður og „frekar ýtt undir vandann.“ Innherji 1.11.2023 15:48
Ríkisskuldabréf og Mark Twain Ríkisskuldabréf flestra vestrænna landa hafa alla jafnan verið talin með öruggustu eignum í heimi. Þá hafa skuldabréf í mynt þar sem viðkomandi land hefur peningaprentunarvaldið almennt talist sérstaklega öruggur fjárfestingakostur. Það er vegna þess að ef ekki er afgangur af rekstri ríkissjóðs til afborgana þá mun seðlabanki landsins einfaldlega prenta peninga til þess að kaupa skuldabréfið til baka, ekki satt? Umræðan 31.10.2023 08:11
Fjármálafyrirtækin: „Fer eftir því hvaða ráðgjafa þú hittir á“ Kristín Eir Helgadóttir, verkefnastýra hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, gagnrýnir upplýsingagjöf fjármálafyrirtækja í tengslum við húsnæðislán. Starfsmenn séu mjög misvel upplýstir. Hún hvetur yfirvöld að leggja höfuðið í bleyti. Innlent 27.10.2023 23:30
„Þetta er blóðugt“ Algengt er að afborganir á óverðtryggðum fasteignalánum hafi meira en tvöfaldast milli ára. Kona sem keypti sér íbúð fyrir þremur árum segir blóðugt að á sama tíma og afborganir hafi snarhækkað sé eignamyndun minni en áður. Innlent 27.10.2023 19:01
Skuldabréfamarkaðurinn verið að dýpka og veltuhlutfallið ekki hærra um árabil Framkvæmdastjóri eins af stærstu lífeyrissjóðum landsins furðar sig á umræðu um grunnan skuldabréfamarkað hérlendis, sem veltutölur sýni að hafi í reynd verið að dýpka fremur en hitt að undanförnu, en stjórnendur Seðlabankans hafa sagt ekki hægt að draga of miklar ályktanir til skemmri tíma um verðbólguálagið byggt á viðskipum á þeim markaði. „Hvenær var það þá síðast hægt?“, spyr hann og segir mikilvægt að bæta upplýsingamiðlun þegar rætt sé um skilvirkni markaða. Innherji 17.10.2023 10:51
Telur að forsætisráðherra hefði átt að óska eftir afsögn fyrir löngu Fyrrverandi fjármálaráðherra telur að forsætisráðherra hefði átt að fara fram á að Bjarni Benediktsson segði af sér ráðherraembætti um leið og kom í ljós að faðir hans var á meðal kaupenda að hlut ríkisins í Íslandsbanka. Samkvæmt lögum hefði fjármálaráðherra átt að vita af aðild föður síns þegar hann samþykkti að selja hlutinn í bankanum. Þá myndi það hvergi gerast í nágrannalöndum að ráðherra sem segir af sér embætti sé samstundis orðaður við annan ráðherrastól. Innlent 11.10.2023 12:30
Skuldabréfafjárfestar enn með augun á verðbólguáhættu vegna kjarasamninga Grunnur skuldabréfabréfamarkaður, með nánast engri þátttöku frá erlendum fjárfestum, þýðir að ekki er hægt að draga of sterkar ályktanir af skammtímahreyfingum á verðbólguálaginu, að sögn seðlabankastjóra. Með meiri vissu um þróun verðbólgu og vaxta er sennilegt að áhrifin verði lík því að „lemja á tómatsósuflösku“ þegar fjárfestar fari að koma allir inn í einu á skuldabréfamarkaðinn. Innherji 10.10.2023 12:20