Sjóslys við Garðskaga 2024
Skipstjórinn dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að skilja skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Innlent 12.7.2024 11:08
Skipstjórinn var drukkinn og skipaði stýrimanni að sigla á brott Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn játuðu sök þegar mál ákæruvaldsins á hendur þeim var þingfest í dag. Þeim var gefið að sök að hafa skilið skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Þá játaði skipstjórinn að hafa verið drukkinn. Innlent 11.7.2024 14:17
Skipverjarnir ákærðir Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn hafa verið ákærðir vegna árekstur skipsins og strandveiðibátsins Höddu HF við Garðskaga um miðjan maí. Innlent 10.7.2024 13:40
Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Við handtöku stýrimanns á fraktskipinu Longdawn, sem talið er að hafa hvolft strandveiðibátnum Höddu HF við Garðskaga um miðjan maí, var tekið öndunarsýni af honum og það reyndist jákvætt fyrir áfengi. Þá reyndist sýni einnig jákvætt fyrir áhrifum kannabiss og slævandi lyfja. Innlent 28.5.2024 16:16
Skipið leggur úr höfn Fraktskipið Longdawn sem lenti í árekstri við strandveiðibátinn Höddu úti fyrir Garðskaga í fyrrinótt hefur lagt úr höfn í Vestmannaeyjum á leið sinni til Rotterdam. Farbanns er krafist yfir skipstjóra skipsins og stýrimanni. Innlent 17.5.2024 15:23
Fara fram á farbann Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt verða leiddir fyrir dómara í hádeginu. Lögreglan á Suðurnesjum fer fram á að mennirnir verði úrskurðaðir í farbann, en ekki gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er tvíþætt, annarsvegar á tildrögum slyssins og þess sem gerðist eftir á. Innlent 17.5.2024 11:33
Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ. Innlent 17.5.2024 09:38
Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir málsatvik úti fyrir Garðskagavita í nótt að skýrast. Skipstjóri og stýrimaður muni dvelja í fangelsi til morguns hið minnsta. Þeir voru um borð í fraktskipi sem sigldi á fiskibát með þeim afleiðingum að sjómaður lenti í lífsháska. Innlent 16.5.2024 21:45
Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Skipstjóri skipsins Longdawn hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í nótt. Allt bendir til þess að fraktskipið hafi rekist í strandveiðibát manns sem lenti í sjónum en var naumlega bjargað. Auk skipstjórans eru tveir stýrimenn í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 16:16
Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Arnar Magnússon strandveiðisjómaður sem kom skipverja bátsins sem hvolfdi í nótt til bjargar, segir liggja í augum uppi að flutningaskip hafi klesst á bátinn. Sjálfur var hann nýkominn í land úr veiðitúr þegar Margrét Björk Jónsdóttir hitti hann í Sandgerði. Hann segir yndislegt að félagi hans til fjörutíu ára hafi komist lífs af. „Þetta fer ekki alltaf svona vel.“ Innlent 16.5.2024 14:18
Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Lögreglan rannsakar hvort erlent flutningaskip tengist því að að strandveiðibát hvolfdi norðvestur af Garðskaga í nótt. Manni var bjargað úr sjónum en litlu mátti muna að illa færi. Skemmdir á stefni flutningaskipsins benda til áreksturs. Innlent 16.5.2024 11:42
Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Manni var bjargað á þriðja tímanum í nótt þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga. Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna málsins en það var skipstjóri annars strandveiðibáts sem bjargaði manninum úr sjónum. Innlent 16.5.2024 06:23