
Ofbeldi á Vopnafirði

Gerandinn ákærður fyrir manndrápstilraun á Vopnafirði
Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, steig í pontu í Alþingi í dag og lýsti áralöngu heimilisofbeldi sem hún sætti. Hún segir meðvirknina eina af grunnstoðum ofbeldis. Gerandinn er sá sami og er ákærður er fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði.

Ekkert ökklaband fyrir brot á nálgunarbanni þrátt fyrir fyrirmæli ríkissaksóknara
Þrátt fyrir fyrirmæli ríkissaksóknara fyrir tæpu ári hefur enginn ennþá þurft að bera ökklaband vegna ítrekaðra brota gegn nálgunarbanni því búnaðurinn er ekki til. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir þetta vonbrigði og spyr eftir hverju sé verið að bíða.

Segist ekki muna eftir atburðunum
Karlmaður á sextugsaldri sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps, með því að ráðsast á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði, sagðist ekki muna eftir atvikinu sem málið varðar þegar það var þingfest í Héraðsdómi Austurlands í vikunni. Hann neitaði sök, og til vara fór lögmaður hans fram á að honum yrði ekki refsað þar sem hann hafi ekki stjórnað gjörðum sínum.

Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði. Honum er gefið að sök að hafa reynt að svipta konuna lífi, en hann er grunaður um að ráðast á hana með hættulegu verkfæri.

Tjáði vitni að hann hefði ætlað að „kála“ Hafdísi
Karlmaður sem grunaður er um endurtekin ofbeldisverk þar á meðal tilraun til manndráps á hendur fyrrverandi sambýliskonu sinni tjáði vitni að hann hefði ætlað að „kála“ konunni. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum.

Framlengja gæsluvarðhald vegna árásar á Vopnafirði
Búið er að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni þar til 10. janúar á næsta ári. Það staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari. Maðurinn hefur verið í varðhaldi frá því í október þegar hann var handtekinn.

Óttaðist um líf sitt
Kona sem lýsir heimilisofbeldi af hálfu manns, sem nú situr í gæsluvarðhaldi, segir réttarkerfið og lögreglu hafa brugðist í baráttu við manninn. Til marks um það er höfnun á nálgunarbanni gagnvart honum, nokkrum klukkustundum áður en hann veittist að henni á lífshættulegan hátt. Hann losnar úr gæsluvarðhaldi eftir tvo sólarhringa.

Sá hvítt eftir árás með járnkarli
Karlmaður sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði er talin hafa ráðist á konuna með hættulegu verkfæri, járnkarli eða rúllubaggateini.

Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta
Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði.

Í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði
Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald yfir sakborningi sem grunaður er um líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu á Vopnafirði á miðvikudag.

Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu
Einstaklingur var handtekinn á Vopnafirði síðastliðinn miðvikudag grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu.