Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Sakar ráð­herra um for­dóma og „hvíta forréttindablindu“

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, gagnrýnir harðlega áform Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að afnema dvalarleyfi fyrir au pair frá ríkjum utan EES. Hún segir tillöguna fordómafulla og að hún lykti af „hvítri forréttindablindu“.

Innlent
Fréttamynd

Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir ára­mót

Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla í nóvember og desember með greiðsluþátttöku ríkisins. Samkomulag hefur náðst við Sjúkratryggingar Íslands um framkvæmd aðgerðanna, en sjúklingar þurfa að uppfylla skilyrði stofnunarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Stígðu út úr torfkofanum, kona“

Áætlanir Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem jafnframt er ráðherra íþróttamála þess efnis að standa í vegi fyrir heimilun atvinnuhnefaleika hér á landi sætir gagnrýni víða. Málið var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar.

Sport
Fréttamynd

Jón Gnarr segir sig úr þing­flokki Við­reisnar

Jón Gnarr hefur sagt skilið við þingflokk Viðreisnar. Forseti Alþingis tilkynnti um breytinguna við upphaf þingfundar klukkan hálf tvö en hálftíma fyrr hafði Vísir greint frá plönum Jóns. Formaður flokksins sér á eftir Jóni sem ætlar að styðja ríkisstjórnina áfram til góðra verka.

Innlent
Fréttamynd

Aug­lýsa eftir for­stjóra Mið­stöðvar um öryggis­ráð­stafanir

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir. Hlutverk stofnunarinnar verður að reka úrræði fyrir einstaklinga sem dæmdir hafa verið til þess að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn í samræmi við ákvæði almennra hegningarlaga. Þar á meðal eru einstaklingar sem lokið hafa afplánun en talið er að séu enn hættulegir samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm

Ekkert fjárhagslegt svigrúm er hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum, segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. Hvorki hafi verið gerður samningur um kaup ríkisins á þjónustunni né gefið vilyrði um greiðsluþátttöku. Hún segir smáslys ekki vera meginvanda bráðamóttöku Landspítalans.

Innlent
Fréttamynd

Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku

Áform um að takmarka lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána við 25 ár eru sýndarmennska, segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir breytinguna gott fyrsta skref en skoða þurfi áhrif hennar á fyrstu kaupendur og aðra hópa.

Innlent
Fréttamynd

Vill skýr við­brögð við trassa­skap í losunar­málum í lög

Stjórnvöld þyrftu að meta fjárhagslegan kostnað og leggja fram tillögur að markvissari aðgerðum ef útlit væri fyrir að þau stæðust ekki loftslagsskuldbindingar ef nýtt frumvarp að loftslagslögum verður samþykkt. Frumvarpið á einnig að herða á innleiðingu loftslagsaðgerða.

Innlent
Fréttamynd

Hreyfingin stærri en ein­stakar per­sónur

Forsætisráðherra segir sameinaða verkalýðshreyfingu miklu stærri en stök félög, einn flokkur og hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum. Hún hvatti til þess að byggt yrði upp meira traust í samfélaginu og innan ASÍ. Deilur milli forystumanna í verkalýðshreyfingunni lita 47. þing ASÍ sem var sett í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Inga vill á­fram banna at­vinnu­manna­hnefa­leika

Atvinnumannahnefaleikar eiga áfram að vera bannaðir á Íslandi, að mati Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hyggst ekki beita sér fyrir lagabreytingum til að heimila þá og vísar til hættu á höfuð- og heilaskaða.

Innlent
Fréttamynd

Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu og segir að formaður VR og formaður Eflingar hafi báðar rétt fyrir sér. Skeytasendingar hafa farið á milli formannanna í fjölmiðlum eftir að samningar sigldu í höfn í lok síðustu viku.

Innlent
Fréttamynd

Vilja borga fyrir eftir­lit með au pair

Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023.

Innlent
Fréttamynd

Þing­maðurinn hefði mögu­lega ekki átt að taka Íbúfen

„Það þarf að meta hvert tilfelli fyrir sig og það er ekki gert í matvöruverslunum. Einstaklingur sem leitar sér þjónustu þar sem lyf eru seld þarf að geta leitað til lyfjafræðings og fengið ráðgjöf. Maður hefur áhyggjur af því, maður hefur verulegar áhyggjur af því.“

Innlent
Fréttamynd

Viður­kennir mis­tök við skipan Jafnréttissjóðs

„Þetta voru mistök, þau hafa verið leiðrétt núna þannig að kynjahlutföllin eru eins og við viljum hafa þau. Ég legg bara áherslu á það að þegar svona mistök verða þá er sjálfsagt mál að leiðrétta þau.“

Innlent
Fréttamynd

Fjöldi hafi sagt upp og fleiri í­hugi stöðu sína

Stjórn Félags sjúkraþjálfara, FS, áætlar að sjúkraþjálfurum við Reykjalund gæti fækkað um helming í upphafi næsta árs miðað við það sem var fyrir rúmu ári. Þá hafi verið um 24 sjúkraþjálfarar starfandi á stofnuninni en vegna uppsagna verði þeir líklega ekki nema um þrettán í upphafi næsta árs. Stjórn félagsins segir þetta þegar hafa leitt til aukins álags, óöryggis í starfsumhverfi og brotthvarfs mikilvægrar sérfræðiþekkingar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum

Peningar sem fólk fær við sölu á eigin íbúð gætu notið mun meiri tryggingarverndar ef bankinn sem geymir þá verður ófær um að endurgreiða þá. Lagt er til að allt að ein milljón evra, eða um 137 milljónir króna, verði varin með þessum hætti í sex mánuði frá innborgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“

Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ritstjóri Gestgjafans gefur heldur lítið fyrir ummæli nöfnu sinnar Sigríðar Daggar Auðunsdóttur formanns Blaðamannafélags Íslands í nýlegu viðtali þar sem hún minntist á blaðið. Í innsendri grein sem ber fyrirsögnina „Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei“ segist Sigríður Dagný ekki átta sig á því hvaða mælikvarða formaðurinn noti þegar hún raði eigin félagsmönnum í flokka. 

Innlent
Fréttamynd

Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórn­völd að hlusta

„Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika.

Innlent
Fréttamynd

Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott

Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu.

Innlent
Fréttamynd

Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum

Verkjalyf og önnur lausasölulyf gætu orðið fáanleg í matvöruverslunum og á bensínstöðvum, verði frumvarp þingmanna Viðreisnar að lögum. Fyrsti flutningsmaður segir markmiðið að bæta aðgengi að lyfjunum og auka samkeppni. Hann vonast til að breytingin skili sér í lægra verði.

Innlent
Fréttamynd

Hlað­varparar segja fjölmiðla­nefnd stunda glassúrgerð

Landsliðið í hlaðvarpi hefur skrifað grein sem er öðrum þræði svar til Elvu Ýrar Gylfadóttur framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar sem senn lætur af störfum. Öll segjast þau hafa fengið bréf, sum hver mörg bréf, frá nefndinni þar sem hún hvetur þau til að skrá sig sem fjölmiðla hjá nefndinni. Að öðrum kosti fái þau sektir.

Viðskipti innlent