Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran „
1 2 3 4 5 … 5 ›
„Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali hjá NBC fyrr í dag að stundum þyrfti að auka spennuna til að draga úr henni. Erlent 22.3.2026 16:52
Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana. Erlent 22.3.2026 08:35
Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Franski sjóherinn stöðvaði olíuflutningaskip sem talið er hluti af svonefndum skuggaflota Rússa á Miðjarðarhafi í dag. Þetta er annað olíuflutningaskipið sem Frakkar stöðva á þessum forsendum á þessu ári. Erlent 20.3.2026 15:29
Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru sögð velta því fyrir sér að hernema eða gera umsátur um Kharg-eyju, þar sem 90 prósent alls olíuúflutnings frá Íran fer um og þar sem um 30 milljónir tunna eru geymdar. Erlent 20.3.2026 13:14
Rekinn úr íranska landsliðinu Sardar Azmoun, einn besti leikmaður íranska landsliðsins í fótbolta, er sagður hafa verið rekinn úr landsliðinu fyrir meinta óhollustu við stjórnvöld landsins. Fótbolti 20.3.2026 11:30
Allir nema Trump skilja hvað hann hefur gert Donald Trump hugsar ekki með strategískum hætti. Hann hugsar heldur ekki í sögulegu eða landfræðilegu samhengi, né heldur á rökréttan hátt. Hann tengir ekki saman ákvarðanir sem hann tekur einn daginn við atburði sem eiga sér stað vikum síðar. Hann veltir því ekki fyrir sér hvernig hegðun hans á einum stað hefur áhrif á viðbrögð annarra á öðrum stöðum. Umræðan 20.3.2026 09:50
Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heldur því fram að Íranir geti ekki lengur auðgað úran, sem þarf til þess að búa til kjarnorkuvopn, eða framleitt frekari skotflaugar. Hann neitar því að Ísraelsmenn hafi dregið Bandaríkjamenn í stríðið og segir Ísraelsmenn ætla að hætta að ráðast á olíuinnviði Írans. Erlent 19.3.2026 21:51
„Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Íranska knattspyrnusambandið heldur sig við áætlanir um að taka þátt í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Norður-Ameríku í sumar þrátt fyrir árásir Bandaríkjanna á landið. Fótbolti 19.3.2026 17:48
Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir hafa farið fram á við Hvíta húsið að fá tvö hundruð milljarða dala í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir þá tölu geta breyst en það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“. Erlent 19.3.2026 13:52
Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. Viðskipti erlent 19.3.2026 09:48
Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað umfangsmiklum árásum á Suður Pars-gasvinnslusvæðið ef Íranir gera frekari árásir á gasinnviði í Katar. Erlent 19.3.2026 06:51
Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Árásir voru gerðar á eitt stærsta gassvæði heimsins í Íran í dag. Svæði þetta kallast Pars-gassvæðið og deila Íranir því með Katörum, hinum megin við Persaflóa. Ráðamenn í Katar hafa sakað Ísraela um árásirnar í dag en myndefni af vettvangi gefur til kynna að margir gaspallar standi í ljósum logum. Erlent 18.3.2026 15:08
Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Ísraelar segjast hafa fellt enn einn ráðherrann í Íran. Að þessu sinni er um að ræða Esmaeil Khatib, ráðherra leyniþjónustumála í Íran, en fyrr í vikunni felldu þeir Ali Larijani, forseta þjóðaröryggisráðs Íran, sem var talinn vera raunverulegur stjórnandi landsins eftir að æðstiklerkurinn Ali Khamenei var ráðinn af dögum fyrir rúmum tveimur vikum. Erlent 18.3.2026 11:01
Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Að minnsta kosti tveir létust þegar Íranir skutu eldflaugum með klasasprengjum á Tel Aviv í nótt. Ríkismiðlar í Íran sögðu um að ræða hefndarárás vegna dráps Ísraelsmanna á Ali Larijani, yfirmanni öryggismála og einum helsta ráðgjafa Ali Khamenei. Erlent 18.3.2026 06:42
Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Ali Larijani, yfirmaður þjóðaröryggisráðs Írans, lést í loftárás Ísraelshers í gærkvöldi ásamt yfirmanni Basij-hersveitanna í Teheran. Erlent 17.3.2026 22:32
Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Forstjóri bandarísku miðstöðvarinnar gegn hryðjuverkum hefur sagt af sér vegna stríðsins í Íran. Hann hvetur forsetann til að snúa við blaðinu. Erlent 17.3.2026 20:32
FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, virðist hafa útilokað að leikir Írans á heimsmeistaramótinu í sumar verði færðir frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Fótbolti 17.3.2026 18:16
„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum. Erlent 17.3.2026 15:43
Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Enn ríkir óvissa um þátttöku landsliðs Írans á HM karla í fótbolta í sumar. Knattspyrnusamband landsins á í viðræðum við yfirvöld í Mexíkó um að spila leiki liðsins þar, fremur en í Bandaríkjunum. Fótbolti 17.3.2026 11:02
Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, hafi verið felldur í loftárás í nótt. Þá segjast Ísraelar einnig hafa banað yfirmanni Basij-sveitanna svokölluðu en það eru sveitir sjálfboðaliða sem heyra undir íranska byltingarvörðinn. Þessar sveitir hafa verið sakaðar um umfangsmikil ódæði gegn mótmælendum í Íran. Erlent 17.3.2026 09:53
Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. Erlent 17.3.2026 06:52
Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Heimsmarkaðsverð á áli hefur ekki verið hærra í fjögur ár. Framkvæmdastjóri Samáls segir auknar tekjur íslensku álveranna skila sér út í samfélagið með einum eða öðrum hætti. Viðskipti innlent 16.3.2026 20:32
Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Knattspyrnusamband Asíu hefur ekki fengið neinar vísbendingar um að Íran muni draga sig úr keppni á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar. Á sama tíma fylgjast þeir spenntir með málinu. Fótbolti 16.3.2026 18:30
Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Knattspyrnugoðsögnin Eric Cantona hefur sett fram eldheita skoðun sína á ákvörðunum forseta að fara með þjóð sína út í stríð. Enski boltinn 16.3.2026 18:10
Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Olíuverð hefur lækkað á mörkuðum í dag og verðbréfavísitölur vestanhafs hafa hækkað. Dagurinn á Wall Street ku vera sá besti frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran. Viðskipti erlent 16.3.2026 17:48
Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. Erlent 16.3.2026 15:49
Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Þriðjudaginn 10. mars birti ísraelskur blaðamaður færslu í vaktarfrétt miðilsins Times of Israel sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þá hafði írönsk skotflaug lent í borginni Beit Shemesh, skammt frá Jerúsalem. Fljótt kom í ljós að skotflaugin hafði lent á óbyggðu svæði í um fimm hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum og sakaði engan. Erlent 16.3.2026 14:33
Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn þurfa peninga og tækni frá Mið-Austurlöndum í skiptum fyrir tæknilega aðstoð og þekkingu hvað varðar varnir gegn írönskum sjálfsprengidrónum. Þrjú teymi úkraínskra sérfræðinga hafa verið send til Mið-Austurlanda til að aðstoða hermenn og ráðleggja þeim varðandi hvernig best sé að verjast drónunum, sem Úkraínumenn hafa verið að verjast um árabil. Erlent 16.3.2026 11:51
Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds. Erlent 16.3.2026 06:38
Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. Erlent 14.3.2026 20:41