Lögreglumál
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 278 ›
Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Þrír voru fluttir á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir árekstur þriggja bíla við Húnaver. Útkallið barst laust eftir klukkan fimm síðdegis og kom þyrlan á vettvang um hálfsjö. Innlent 31.10.2024 21:02
Máttu ekki selja eldaðan mat Veitingastað í miðborg Reykjavíkur var lokað af lögreglu í vikunni þegar í ljós kom að eigendur staðarins höfðu ekki tilskilin leyfi til þess að selja eldaðan mat. Innlent 31.10.2024 18:18
Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurður Ragnar Kristinsson, sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefna- og skattalagabrot, er á meðal handtekinna í umfangsmesta kristal-amfetamínmáli sem lögregla hefur haft afskipti af. Innlent 31.10.2024 18:01
Ógnuðu afgreiðslumanni með hníf Tilkynnt var um þjófnað í verslun í miðbæ. Þegar starfsmaður hafi ætlað að ræða við þjófana hafi einn þeirra dregið upp hníf og þeir svo hlaupið burt. Málið er í rannsókn hjá lögreglu en fram kemur í dagbók lögreglu að lögregla telur sig vita hverjir þjófarnir eru. Innlent 31.10.2024 06:43
Þjófnaður í verslun og eignaspjöll Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna þjófnaðs í verslun í hverfi 201 í Kópavogi og eignaspjalla í hverfi 111 í Reykjavík. Innlent 30.10.2024 06:05
Tilkynnt um mann að elta börn í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór á vettvang í gærkvöldi eða nótt þegar tilkynning barst um að maður hefði verið að elta börn í Hafnarfirði. Fannst hann ekki þrátt fyrir leit. Innlent 29.10.2024 06:31
„Aldrei gott að toppa of snemma“ Halla Hrund Logadóttir fyrrverandi forsetaframbjóðandi og oddviti Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi segir að af eigin reynslu sé ekki gott að toppa of snemma í kosningabaráttu. Víðir Reynisson, oddviti Samfylkingar í sama kjördæmi segist ekki sjá merki um gremju í flokknum vegna ummæla formannsins um Dag B. Eggertsson. Þetta er meðal þess sem kom fram í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 28.10.2024 19:02
Einn fluttur á bráðamóttöku eftir slagsmál Einn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar eftir slagsmál í póstnúmerinu 111 í gærkvöldi eða nótt. Þá var tilkynnt um umferðaróhapp í 109 en engin slys urðu á fólki. Innlent 28.10.2024 06:21
Neitaði að færa sig frá lögreglubíl Lögregluþjónar handtóku í gær mann sem stóð í vegi lögreglubíls og neitaði að færa sig. Þar að auki neitaði hann að fara af lögreglustöð þegar búið var að afla allra nauðsynlegra gagna um hann og var hann því vistaður í fangaklefa í nótt. Innlent 27.10.2024 07:36
Sverrir Einar kærir lögregluþjón fyrir rangar sakagiftir Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar og fyrrverandi eigandi skemmtistaðarins B5, hefur lagt fram kæru á hendur lögregluþjóns sem sakaði hann um að tálma störf lögregluþjóna og veist að sér með ofbeldi. Umræddur lögregluþjónn hafði áður kært Sverri en bæði héraðssaksóknari og ríkissaksóknari hafa vísað þeirri kæru frá. Innlent 26.10.2024 10:51
Voru að ganga yfir á grænu gönguljósi þegar ekið var á þær Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við vitni að árekstri þar sem bíl var ekið á tvær gangandi konur á Kringlumýrarbraut við gönguljós við gatnamótin við Hamrahlíð síðastliðinn mánudag. Innlent 26.10.2024 09:01
Fjórtán ára undir stýri Lögregluþjónar stoppuðu í gærkvöldi bíl við hefðbundið eftirlit, þar sem fjórtán ára barn reyndist undir stýri. Jafnaldri ökumannsins var svo farþegi í bílnum en haft var samband við foreldra þeirra og voru börnin sótt á lögreglustöð. Innlent 26.10.2024 08:43
Aldrei fleiri manndráp á einu ári: „Þetta er uggvænleg þróun“ Maður sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát móður sinnar hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi gegn foreldrum sínum. Aldrei hafa fleiri manndrápsmál komið upp á einu ári. Afbrotafræðingur segir þróunina uggvænlega og tilefni til að styðja betur við fólk sem stendur höllum fæti í samfélaginu. Innlent 25.10.2024 20:32
Skoða hvort lög hafi verið brotin við rannsókn lögreglu Lögmaður Blaðamannafélgsins, vegna rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun- og símastuldi, segir tjáningarfrelsi blaðamanna undir í málinu. Hvaða blaðamaður sem er hefði getað orðið fyrir því að lenda á sakamannabekk, fyrir það eitt að sinna vinnunni sinni. Félagið skoðar nú hvort lögregla hafi brotið lög. Innlent 25.10.2024 07:03
Gerði tilraun til innbrots með leikfangasverð úr plasti Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær um einstakling sem var að reyna að brjótast inn í húsnæði og með eggvopn á sér. Viðkomandi var handtekinn áður en hann komst inn en í bakpoka hans fannst leikfangasverð úr plasti. Innlent 25.10.2024 06:16
Sonurinn áður stungið föður sinn í bakið Karlmaður á fertugsaldri sem var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti móður á sögu um ofbeldi í garð foreldra sinna. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að stinga föður sinn í bakið árið 2006 en var sýknaður vegna ósakhæfis. Innlent 24.10.2024 22:23
Sonur hinnar látnu í gæsluvarðhald Karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. nóvember næstkomandi vegna rannsóknar á andláti móður hans, konu á sjötugsaldri, sem fannst látin í íbúð fjölbýlishúss í Breiðholti í nótt. Innlent 24.10.2024 18:19
Með andlát konu á sjötugsaldri til rannsóknar Einn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti konu á sjötugsaldri. Innlent 24.10.2024 10:13
Öryggisverðir Kringlunnar með búkmyndavél Öryggisverðir í Kringlunni bera nú búkmyndavél á meðan þeir sinna störfum sínum. Markmiðið er sagt vera að auka öryggi öryggisvarða, starfsmanna og viðskiptavina. Innlent 24.10.2024 10:00
Ein meiriháttar og önnur minniháttar líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna meiriháttar líkamsárásar í póstnúmerinu 109. Einn var handtekinn. Innlent 24.10.2024 06:16
Tilkynnir Wolt sendil til lögreglu fyrir áreitni Lilju Huld Steinþórsdóttur var algjörlega ofboðið á sunnudag þegar dóttur hennar bárust skilaboð frá Wolt sendli eftir að þeim barst matarsending um að hún væri falleg. Hún ætlar að tilkynna manninn til bæði lögreglu og Persónuverndar. Maðurinn hefur verið áminntur af Wolt. Innlent 23.10.2024 22:13
Karlmaður á níræðisaldri lést í Bláa lóninu Karlmaður á níræðisaldri lést í Bláa lóninu í kvöld. Í tilkynningu frá Bláa lóninu kemur fram að viðbragðsaðilar voru kallaðir að Bláa Lóninu á sjöunda tímanum í kvöld vegna erlends ferðamanns á níræðisaldri sem hafði misst meðvitund. Innlent 23.10.2024 20:53
Tveir fluttir á slysadeild vegna áreksturs við Dalshraun Tveir voru fluttir á slysadeild vegna áreksturs við Dalshraun í Hafnarfirði. Það staðfestir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 23.10.2024 17:44
Minni háttar líkamsárás og konu ekið heim Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt en þrír gista fangaklefa nú í morgunsárið. Innlent 23.10.2024 06:09
Læstu sig á kvennasalerni í tvígang og neituðu að fara Tveir menn, sem hvorki halda heimili né hafa atvinnu, læstu sig inni á kvennasalerni verslunar í miðborginni í tvær klukkustundir og neituðu að fara þaðan þrátt fyrir beiðnir starfsmanna. Innlent 22.10.2024 17:58
Einn enn í haldi vegna Elko-málsins Einn er enn í haldi vegna þjófnaðar í verslunum Elko sem voru framin að kvöldi til og um nótt fyrir um mánuði síðan. Enn á eftir að taka ákvörðun um áframhaldandi gæsluvarðhald á hendur honum. Innlent 22.10.2024 16:47
Reyndi að komast undan lögreglu en velti bifreiðinni Ökumaður sem grunaður er um ölvunarakstur reyndi að komast undan lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en endaði utan vegar og velti bifreið sinni. Innlent 22.10.2024 06:18
Grunaður um að hafa ekið ölvaður og gegn rauðu ljósi Ökumaður var handtekinn eftir að hafa ekið á tvo gangandi vegfarendur í hverfi 105 í dag. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og gegn rauðu ljósi. Innlent 21.10.2024 20:37
Leitað að sex ungmennum um helgina og eitt enn týnt Lögreglu bárust sjö leitarbeiðnir vegna sex týndra ungmenna undir átján ára aldri um helgina. Tvö þeirra höfðu strokið að heiman eftir að hafa verið keyrð heim af Stuðlum í kjölfar brunans þar um helgina, annars vegar fimmtán ára piltur sem kom í leitirnar fyrr í dag eftir að hafa verið týndur í tvo sólarhringa og hins vegar unglingur á svipuðum aldri sem enn er leitað. Innlent 21.10.2024 16:44
Stunguárásin í Grafarvogi: Grunar ekki að málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi Einn tveggja manna sem var handtekinn grunaður um stunguárás í Frostafold í Grafarvogi aðfaranótt miðvikudagsins 9. október hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hinn maðurinn sem var handtekinn var látinn laus að skýrslutöku lokinni. Innlent 21.10.2024 14:56