Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Rússar gerðu í nótt umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæði í Úkraínu, sjöttu nóttina í röð. Að minnsta kosti tólf létu lífið í árásunum en forseti Úkraínu segir nauðsynlegt fyrir Úkraínumenn að fá fleiri flugskeyti sem hægt er að nota gegn skotflaugum. Auk skotflauga notuðust Rússar einnig við þotuknúna sjálfsprengidróna og gerðu einnig árásir á Odesa við suðurströnd landsins. Erlent 1.9.2026 10:51
Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu. Erlent 31.8.2026 08:40
Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar. Erlent 29.8.2026 14:29
Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Maður sem var handtekinn í Króatíu á miðvikudag í tengslum við skemmdarverkin á Nord Stream 1 gasleiðslunni, starfaði sem ráðgjafi við gerð Hollywood-myndar um málið. Erlent 21. ágúst 2026 07:27
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Rússum hefur ekki vegnað vel á víglínunni í Úkraínu í sumar og hafa lítið sótt fram en þó eitthvað og á nokkrum stöðum. Framsókn þeirra hefur að mestu verið bundin við víglínuna norður af Pokrovsk og í Dónetsk-héraði. Færa má þó rök fyrir því að þungamiðja stríðsins sé ekki lengur víglínan og að staðan þar skipti minna máli en langdrægar árásir Rússa og Úkraínumanna. Erlent 20. ágúst 2026 09:01
Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur rekið aðstoðarskrifstofustjóra sinn eftir að tilkynnt var að hún væri til rannsóknar í nýju spillingarmáli. Einn fyrrverandi þingmaður og yfirmaður hjá úkraínskum ríkisbanka eru einnig til rannsóknar vegna gruns um spillingu. Erlent 19. ágúst 2026 13:24
Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Úkraínskur kafari var handtekinn í Króatíu í dag í tengslum við skemmdarverkin á Nord Stream-gasleiðslunum í Eystrasalti fyrir fjórum árum. Framselja á manninn til Þýskalands. Erlent 19. ágúst 2026 10:32
Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur kallað eftir því að boðað verði til forsetakosninga í landinu. Hann segir að Úkraínumenn megi ekki láta Rússa „halda lýðræðinu í gíslingu“; frelsið sé ástæða baráttu þeirra yfir höfuð. Erlent 19. ágúst 2026 06:30
Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. Lífið 18. ágúst 2026 08:24
Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Rússar hafa á undanförnum árum komið upp herstöðvum víða í vesturhluta landsins. Þaðan eru þeir taldir geta skotið öflugum drónum langt inn á landsvæði ríkja Atlantshafsbandalagsins. Erlent 17. ágúst 2026 23:47
Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, segir mögulegt að Úkraínuher muni geta gert árás á Rússland með heimsmíðaðri skotflaug á næstu þremur til sex mánuðum. Erlent 17. ágúst 2026 08:02
Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Íslenskur blaðamaður búsettur í Kænugarði var vakinn um þrjúleytið í nótt við sprengingar. Rússar gerðu umfangsmikla eldflauga- og drónaárás á úkraínsku höfuðborgina í nótt. Erlent 16. ágúst 2026 12:16
Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir stórfelldar dróna- og eldflaugaárásir Rússa í Úkraínu í nótt. Áfram skiptast ríkin á drónum og eldflaugum en úkraínsk drónaárás hæfði vöruhús netverslunarrisans rússneska Wildberries sem stóð í ljósum logum í morgun. Erlent 16. ágúst 2026 10:29
Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er í basli með að finna einhvern hæfan sem vill taka að sér starf sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum. Nokkrir sem forsetinn hefur leitað til hafa neitað því að fara til Washington DC en Selenskí rak nýverið fyrrverandi sendiherrann sem stendur frammi fyrir ásökunum um fjárdrátt. Erlent 14. ágúst 2026 11:30
Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti. Erlent 13. ágúst 2026 22:02
Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Tveir eru sagðir látnir og tólf særðir eftir árás Úkraínumanna á flotastöð Rússa við Svartahaf í nótt. Forseti Úkraínu segirr dróna og flugskeyti hafa hæft loftvarnarkerfi Rússa, bryggjur og aðra hafnarinnviði. Erlent 12. ágúst 2026 13:36
Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. Erlent 11. ágúst 2026 22:01
Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Þrettán manns í það minnsta eru sagðir hafa fallið í drónaárás Úkraínumanna á olíuhreinsistöð í rússneska sambandslýðveldinu Tatarstan í nótt. Rússnesk yfirvöld fullyrða að eitt barn sé á meðal þeirra föllnu í árásinni sem er ein sú blóðugusta frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 10. ágúst 2026 11:59
Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu væntanlega til Rússlands. Þá segir hann eldflaugar frá Norður-Kóreu hafa fundist á landsvæði Úkraínu. Erlent 10. ágúst 2026 06:43
Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tatíana Kim er ríkasta kona Rússlands. Hún starfaði fyrstu fullorðinsárin sem enskukennari, en stofnaði árið 2004, þá 28 ára gömul, fyrirtækið Wildberries, sem lýsa mætti sem rússneska Amazon, og hefur grætt á tá og fingri síðan. Nú er reksturinn sagður í hættu, vegna stríðs Rússlands og Úkraínu. Viðskipti erlent 8. ágúst 2026 22:50
Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. Erlent 8. ágúst 2026 13:49
Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar. Erlent 5. ágúst 2026 10:30
Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Rússar gerðu í nótt harðar árásir á Úkraínu og eru að minnsta kosti fjórtán óbreyttir borgarar látnir í höfuðborginni Kænugarði og tugir særðir. Erlent 5. ágúst 2026 07:23
„Veiddu“ grænmetissala með dróna Rússneskir hermenn eltu á dögunum óbreyttan borgara með sjálfsprengidróna og reyndu að sprengja hann í loft upp. Maðurinn var að setja upp sölubás fyrir grænmeti í Kherson í suðurhluta Úkraínu þegar drónaárásin var gerð. Maðurinn lifði af en forseti Úkraínu segir þetta enn eina sönnun þess að Rússar hafi misst vitið og að rússneskir hermenn njóti þess að „veiða“ óbreytta borgara, drepa þá og misþyrma þeim. Erlent 4. ágúst 2026 16:04