Lewandowski bjargaði Bæjurum í Berlín Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. febrúar 2017 16:28 Lewandowski er kominn með 16 mörk í þýsku deildinni. vísir/getty
Robert Lewandowski bjargaði stigi fyrir Bayern München þegar liðið mætti Herthu Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 1-1. Bosníski framherjinn Vedad Ibisevic kom heimamönnum yfir á 21. mínútu og það mark virtist ætla að duga Berlínarliðinu til sigurs. Lewandowski var á öðru máli og jafnaði metin þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Bayern er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar. RB Leipzig getur minnkað forskot Bæjara niður í fimm stig með sigri á Borussia Mönchengladbach á morgun. Dortmund er komið upp í 3. sæti deildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur á Wolfsburg á heimavelli. Lukasz Piszczek og Ousmane Dembele voru á skotskónum auk þess sem Jeffrey Bruma, varnarmaður Wolfsburg, skoraði sjálfsmark. Aron Jóhannsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar Werder Bremen vann 0-2 útisigur á Mainz 05. Með sigrinum komst Bremen upp úr fallsæti. Hoffenheim heldur áfram að gera góða hluti en í dag vann liðið 2-0 sigur á botnliði Darmstadt. Andrej Kramaric skoraði bæði mörkin. Hoffenheim er í 4. sæti deildarinnar og hefur aðeins tapað tveimur leikjum í vetur. Þá fóru tvö rauð spjöld á loft í 0-2 útisigri Ingolstadt á Frankfurt.Úrslitin í dag: Hertha Berlin 1-1 Bayern München Dortmund 3-0 Wolfsburg Mainz 0-2 Werder Bremen Hoffenheim 2-0 Darmstadt Frankfurt 0-2 Ingolstadt
Þýski boltinn Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira