Fréttir

Bein út­sending: Ný­sköpunar­verð­laun Norður­landanna

Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna verða afhent verða í Osló í dag, fimmtudaginn 21. maí kl. 13:30. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Fyrirtækið hefur þróað snjallsiglingarkerfi sem nýtir gervigreind til að birta skipsstjórnendum leiðsögn í rauntíma. Fylgjast má með afhendingu verðlaunanna í beinu streymi hér að neðan. 

Erlent

Tíðindi í vændum: Boðar borgar­stjórnar­flokkinn á fund

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun boða  borgarfulltrúa flokksins á fund sinn í dag til skrafs og ráðagerða. Það er í fyrsta skipti eftir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem oddvitinn hittir fulltrúana formlega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu borgarfulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum eða þrjá fleiri en í síðustu kosningum. Ekki er ósennilegt að von sé á fleiri tíðindum í dag eða á morgun. 

Innlent

Ís­land sé orðið dýrasta land í heimi

„Ísland er orðið dýrasta land heims í dag. Það er orðið nær tvöfalt dýrara en Evrópa að meðaltali og hefur aldrei verið eins dýrt og akkúrat núna. Við erum orðin miklu dýrari heldur en dýrustu lönd heims sem við berum okkur iðulega saman við.“

Innlent

„Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“

Fyrrverandi þingmaður segir mál manns á Suðurnesjum sem lögregla skaut með rafbyssu sýna fram á að „rafbyssugríma“ lögreglu sé fallin. Almenningi hafi verið talin trú um að mál lögreglu yrðu leyst með minni valdbeitingu en annars þyrfti með notkun rafbyssa, málið sýni fram á hið gagnstæða.

Innlent

Árni skóla­meistari heldur em­bættinu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Árna Ólason í embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Hann hefur sinnt embættinu undanfarin tíu ár en hann heyrði af því í útvarpinu nýverið að til stæði að auglýsa embættið

Innlent

Skipuð rektor MH fyrst kvenna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga er fyrsta konan til að vera skipuð rektor MH. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og nú síðast sem settur rektor.

Innlent

Ellefu Evrópu­ríki aug­lýsa eftir hættu­legum dæmdum glæpa­mönnum

Lögregluyfirvöld í ellefu Evrópuríkjum hafa tekið höndum saman og hrint af stað átaksverkefni til þess að freista þess að koma höndum yfir eftirlýsta glæpamenn. Allir eiga mennirnir það sameiginlegt að hafa þegar verið dæmdir í að minnsta kosti fimm ára fangelsi fyrir alvarlegan glæp eða glæpi.

Erlent

Eldur kom upp í vélarúmi báts

Skipstjóri lítils fiskibáts óskaði eftir aðstoð eftir að eldur kom upp í vélarrúmi bátsins rétt norðaustur af Skagaströnd um klukkan fjögur í nótt.

Innlent

Trump segist munu ræða við for­seta Taí­van

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann hefði í hyggju að ræða við Lai Ching-te, forseta Taívan. „Ég mun tala við hann,“ sagði forsetinn. „Ég tala við alla... Við munum vinna í þessu; Taívan-vandamálinu.“

Erlent

Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld

Í dag má búast við norðaustlægri eða breytilegri átt, líklega þremur til tíu metrum á sekúndu. Svo er spáð þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum sunnantil. Bætir í vind og úrkomu syðst í kvöld. Hiti á bilinu fjögur til 15 stig, svalast norðaustanlands.

Veður

Hafa þurft að draga veru­lega úr olíuframleiðslu vegna á­rása

Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí.

Erlent

Nokkrir hlut­falls­lega á pari við Heiðu

Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu.

Innlent

Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk

Maður sem sat í fangelsi í Tennessee í Bandaríkjunum vegna færslu sem hann skrifaði á Facebook um morðið á Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur. Hann var handtekinn eftir að hann grínaðist með dauða Kirks.

Erlent

Lög­reglu­menn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps

Tveir lögregluþjónar sem voru að störfum í þinghúsi Bandaríkjanna þegar stuðningsmenn Donalds Trump forseta ruddu sér leið þar inn þann 6. janúar, hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni. Þeir vilja koma í veg fyrir að Trump-liðar geti greitt bandamönnum forsetans úr nýstofnuðum sjóði sem ætlað er að útvega fólki sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur.

Erlent