Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Birgir Olgeirsson skrifar 8. október 2026 11:31 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Viktor Freyr Hvorki Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra né Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sækir þing Hringborðs norðurslóða sem haldið er í Hörpu dagana 8. til 10. október. Fréttastofa hefur fengið staðfest að hvorug þeirra verði viðstödd.
Kristrún tók þátt á ráðstefnunni í fyrra en hefur ekki tök á því vegna annarra skuldbindinga, að sögn aðstoðarmanns hennar. Þá áttu bæði Kristrún og Þorgerður fund með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna í vikunni. Varnarsamstarf og öryggi á Norðurslóðum voru meðal umræðuefna heimsóknarinnar. Á blaðamannafundi þeirra lagði Rubio áherslu á mikilvægi Íslands fyrir öryggi svæðisins.Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra verða meðal þátttakenda á aðalsviði þingsins. Meðal erlendra ráðherra á dagskránni eru Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, Múte Bourup Egede, utanríkisráðherra Grænlands, og Bjørnar Selnes Skjæran, sveitarstjórnar- og byggðamálaráðherra Noregs. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er formaður Hringborðs norðurslóða. Þingið fer fram í Hörpu dagana 8. til 10. október.Vísir/Vilhelm Musadik Masood Malik, loftslagsráðherra Pakistans, er einnig á dagskrá, auk Beinis Johannesen, lögmanns Færeyja, og Jozefs Síkela, sem fer með alþjóðlegt samstarf í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Á þinginu verður meðal annars fjallað um öryggismál á Norðurslóðum, loftslagsbreytingar, orkumál og siglingar. Jóhann Páll tekur þátt í umræðum með loftslagsvísindamanninum Johan Rockström um mögulegt hrun hafstraumahringrásarinnar í Atlantshafi og áhrif þess á þjóðaröryggi. Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, stýrir umræðunum. Halla mun ræða gervigreind og áhrif hennar á samfélagið við Tristan Harris, sem hefur fjallað um samfélagsáhrif tækninnar. Samkvæmt Ásdísi Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Hringborðsins, er búist við rúmlega tvö þúsund þátttakendum frá yfir sjötíu löndum. Um sjö hundruð ræðumenn taka þátt í yfir tvö hundruð málstofum.
Ólafur Ragnar Grímsson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hringborð norðurslóða Norðurslóðir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira