Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. október 2026 11:55 Flestir nemendur með afburðahæfni ganga í skóla í Reykjavík. Vísir/Anton Brink Af sjö fjölmennustu sveitarfélögum landsins komu nemendur í Kópavogi og Reykjavík hvað best út úr PISA-könnuninni. Öll sveitarfélögin voru samt sem áður undir meðaltali OECD.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur greint frammistöðu íslenskra nemenda í PISA-könnunni niður á sjö fjölmennustu sveitarfélög landsins og borið saman við landsmeðaltal. Þessi sjö sveitarfélög ná til 75 prósent þátttakenda í PISA árið 2025 á Íslandi. Hin sveitarfélögin voru tekin saman og sett undir flokkinn „önnur sveitarfélög“ en það samsvarar 25 prósentum nemenda sem tóku prófið. Nemendur í Kópavogi komu best út úr prófinu og voru yfir meðaltali í öllum þremur greinunum vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi. Nemendur í Akureyrarbæ og Reykjavík voru einnig yfir meðaltali og sköruðu nemendur í Garðabæ fram úr þegar litið er til stærðfræðilæsis. Nemendur í Reykjanesbæ komu verst út úr prófinu og þar á eftir nemendur í Hafnarfirði. Önnur sveitarfélög voru einnig undir landsmeðaltalinu. Nemendur í Kópavogi, Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri voru yfir meðaltali. „Frammistaða nemenda í öðrum sveitarfélögum í heild var undir landsmeðaltali á öllum sviðum en hafa þarf í huga að í þessum hópi eru fjölmörg sveitarfélög sem eru sum hver ólík hvað varðar stærð, staðsetningu og lýðfræðilegar breytur,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Leiðréttu eftir stöðu Ráðuneytið skoðaði einnig muninn frá landsmeðaltali eftir að leiðrétt var fyrir erlendum bakgrunni og ólíkri félags- og efnahagslegri stöðu nemenda. Við leiðréttinguna var litið til tveggja þátta, annars vegar menntunar og starfs foreldra og eigna á heimilinu og hins vegar nemenda sem eiga foreldra eða forsjáraðila sem báðir fæddust erlendis. „Ef munur á frammistöðu nemenda í sveitarfélagi og landsmeðaltali minnkar eða hverfur við leiðréttinguna skýrist munurinn að hluta eða að mestu af samsetningu nemendahópsins. Gott er að hafa í huga að leiðréttar niðurstöður segja þó ekki einar og sér til um gæði skólastarfs,“ segir í tilkynningunni. Þá er Reykjavík eina sveitarfélagið sem mælist yfir meðaltali í öllum þremur greinunum eftir leiðréttinguna. „Munur á nemendum í Reykjanesbæ og nemendum á landsvísu minnkar eftir leiðréttingu, enda er þar að finna hæsta hlutfall innflytjenda í sveitarfélögunum sjö ásamt því að félags- og efnahagsleg staða mælist þar lægst að jafnaði.“ Flestir í Reykjavík Þegar litið er til grunnhæfni og afburðanemenda eru niðurstöðurnar álíka þeim fyrri. Afar fáir nemendur reyndust vera með afburðahæfni og eru nemendur í Reykjavík þeir einu sem skilja sig frá landsmeðaltali. Í öllum sveitarfélögunum var hlutfall nemenda með afburðahæfni undir landsmeðaltali bæði í vísindum og stærðfræðilæsi. Flestir nemendur með afburðahæfni eru í Reykjavík. Þegar leiðrétt er fyrir áðurnefndum þáttum eru flestir nemendur á pari hvorn við annan. Reykjavík skarar aftur fram úr þegar litið er til nemenda með afburðahæfni.
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grunnskólar Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira