Fréttir

Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða

Umfangsmikill sníkjudýrafaraldur sem braust út í Bandaríkjunum í júlímánuði, þar sem helsta einkennið er harkalegur niðurgangur, hefur dregið tvo til dauða. Yfirvöld hafa tengt faraldurinn við salat sem var innflutt og selt af Taylor Farms en keðjur á borð við Taco Bell keyptu salat frá birgjanum.

Erlent

Annar á­rekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkra­bíl

Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld.

Innlent

Harður á­rekstur á Norð­vestur­landi til­kominn vegna framúraksturs

Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu.

Innlent

Þrjú börn látin eftir drónaárás á bað­strönd

Sjö eru látnir og þar af þrjú börn eftir að drónaárás á baðströnd í suðvesturhluta Rússlands. Minnst fjörutíu manns hlutu áverka í sprengingunni en það þykir mögulegt að árásinni hafi verið beint að rússnesku flotastöðinni í Novorossiysk sem er í um fjörutíu kílómetra fjarlægð frá ströndinni. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um málið.

Erlent

Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti

Til skoðunar er að stækka það svæði í miðborginni sem vaktað er með öryggismyndavélum að sögn borgarstjóra. Ráðist verður í nágrannavörsluátak í Reykjavík í kjölfar innbrotahrinu.

Innlent

Vopnin reyndust vera „ná­kvæmar eftir­líkingar“

Fimmmenningarnir sem voru handteknir í gær í aðgerðum lögreglu og sérsveitarinnar á Akureyri reyndust ekki vera með alvöru skotvopn í fórum sínum heldur „nákvæma eftirlíkingu af skotvopni“ að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Innlent

Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síð­degis­skúrum

Í dag má búast við hægri breytilegri átt og björtu að mestu, en skýjuðu með köflum við ströndina. Inn til landsins verður bjart að mestu en líkur eru á stöku síðdegisskúrum. Hiti verður á bilinu átta til tuttugu stig, svalast á við norður- og austurströnd landsins en hlýjast sunnantil.

Veður

Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst

Veginum upp að útsýnispalli Bolafjalls verður lokað 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi verður á sólu. Búist er við mikilli aðsókn ferðamanna á Vestfirði en almyrkvinn verður aðeins sýnilegur á landinu vestanverðu.

Innlent

Skot­vopnin reyndust leikfangabyssur

Drengirnir fimm sem voru handteknir í aðgerðum lögreglu og sérsveitarinnar í dag reyndust ekki vera með alvöru byssur í fórum sínum. Lögregla fullyrti í dag að skotvopn hefðu fundist í bílum þeirra en samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða leikfangabyssur.

Innlent

Við­ræður við Íran hefjist á morgun

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði.

Erlent

Knapi datt af baki

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna slyss á hestbaki.

Innlent

Miðaði byssu á annan mann

Eftir að hafa varist allra fregna um aðgerðir í dag sagði aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að tilkynnt hefði verið um mann vopnaðan skotvopni að miða því á annan mann. Fimm voru handteknir í dag.

Innlent

Tveir lagðir við gang­stéttina

Á myndbandi sem fréttastofu barst sést aðgerð sérsveitar og lögreglu á Akureyri í dag frá öðru sjónarhorni þar sem minnst tveir menn voru látnir liggja á gangstéttinni. Fimm voru handteknir og skotvopn fundust í tveimur bílum.

Innlent

Enn brotist inn í mið­bænum

Tilkynnt var um enn eitt innbrotið í fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík í dag. Fjallað hefur verið um þráláta hrinu innbrota í miðborginni undanfarið.

Innlent

Dani lést í þyrluslysinu

Annar tveggja manna sem létust eftir að tvær slökkiliðsþyrlur skullu saman í loftinu í Grikklandi í dag var danskur ríkisborgari. Hinn var heimamaður.

Erlent

Danir auka víg­búnað í Fær­eyjum

Dönsk stjórnvöld ætla að auka viðveru hersins í Færeyjum. Danski varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus og færeyskur strafsbróðir hans, Bárður á Steig Nielsen, sem fer fyrir utanríkis- og sjávarútvegsmálum í Færeyjum, hafa gert samkomuag um þetta.

Erlent

Þyrlur slökkvi­liðs skullu saman í miðju lofti

Tvær slökkviliðsþyrlur skullu saman í loftinu í Grikklandi í dag. Viðbragðsaðilar voru við slökkvistörf við skógarelda nærri Porto Germeno, vestur af Aþenu. Mikill vindur og hiti hefur sett strik í reikninginn við slökkvistörf.

Erlent

Greinir á við kjós­endur sína

Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistaflokks Íslands, segir stjórn flokksins taka því með miklu jafnaðargeði að ný skoðanakönnun Maskínu sýni að tæp 80 prósent stuðningsmanna Sósíalistaflokksins vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Innlent