Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. október 2026 13:26 Það kom til átaka milli lögreglunnar og mótmælenda í Saint-Denis, sem er rétt fyrir utan París. EPA Hundruðum menntaskóla víðs vegar í Frakklandi verður lokað á mánudag vegna mótmæla menntaskólanema sem snúist hafa í óeirðir. Að minnsta kosti fimm þúsund hafa verið handteknir, flestir unglingar.
Édourard Geffray, menntamálaráðherra Frakka, segir að á milli fjögur og fimm hundruð menntaskólum verði lokað á morgun vegna mótmælanna. Nú þegar hafa 24 skólar verið rændir eða brenndir. Lögreglan notaði meðal annars táragas.EPA Mótmælin hófust í september og leituðu menntaskólanemar út á götur vegna slæmra námsskilyrða á við yfirfullar kennslustofur, skort á kennurum og skólabygginga í niðurníðslu. „Við viljum að stjórnvöld hlusti á okkur. Við viljum frekar standa hérna og mótmæla heldur en að læra í þessum slæmu skilyrðum. Þetta er eina leiðin til að láta heyra í okkur,“ sagði ónefndur nemandi í viðtali við The Guardian. Foeldrar og kennarar tóku einnig þátt í mótmælunum.EPA Fyrst um sinn voru mótmælin heldur friðsamleg. Nemendur stóðu fyrir utan skólann og komu í veg fyrir að hægt væri að komast inn til að hefja kennslu. Einhverjir kennarar og foreldrar nemendanna hafa einnig tekið þátt í mótmælunum. Þau urðu síðan æ ofbeldisfyllri og komið hefur til átaka á milli mótmælenda og lögreglunnar. Kveikt hefur verið í ruslatunnum og blysum. Nemendurnir hafa sakað lögregluna um að nota of mikið ofbeldi og sært nemendur með táragasi. Nokkrir nemendur hafa særst í mótmælunum og sagði Geffry að 65 kennarar hefðu sömuleiðis særst. Eitt atvik er til rannsóknar eftir að fjórtán ára drengur í Val d'Oise hlaut alvarlega áverka á munni og kjálka eftir að lögregla er sögð hafa barið hann og skotið hann með einhvers konar gúmmíkúluvopni. Lögmaður drengsins sagði að drengurinn hefði haldið að hann væri „að fara að deyja“. Meðal þeirra sem urðu fyrir táragasi var Aniella Lóa, íslensk stúlka búsett í París.
Frakkland Framhaldsskólar Tengdar fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka. 2. október 2026 06:45 Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag. 30. september 2026 09:11 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka. 2. október 2026 06:45
Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag. 30. september 2026 09:11