Fréttir
175 176 177 178 179 180 181 182 183 … 334 ›
Unnur Anna nýr forseti Heilbrigðisvísindasviðs Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í faraldsfræði við Læknadeild Háskóla Íslands, hefur verið ráðin nýr forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Hún tekur við starfinu af Unni Þorsteinsdóttur. Innlent 28.6.2024 10:26
Heimta aukafund og „myndarlega“ vaxtalækkun Hagsmunasamtök heimilanna fara fram á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands komi saman á aukafundi sem fyrst og lækki stýrivexti „myndarlega“. Næsti fundur nefndarinnar verður að óbreyttu í ágúst, þegar stýrivextir munu hafa verið þeir sömu í ár. Innlent 28.6.2024 10:11
Hækka fargjöld í strætó Ný gjaldskrá tekur gildi hjá Strætó þann fyrsta júlí næstkomandi og nemur hækkunin á stökum fargjöldum 3,2 prósentum og á tímabilskortum 3,85 prósentum. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða þúsund krónur. Innlent 28.6.2024 10:02
Dýrara að taka strætó til Hornafjarðar en að fljúga til Parísar Að komast til Hafnar í Hornafirði frá Reykjavík í strætó kostar tæpar sautján þúsund krónur en það er í mörgum tilfellum dýrara en að fljúga erlendis, stundum yfir langar vegalengdir. Innlent 28.6.2024 09:11
Hörður Ellert dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur sinni Hörður Ellert Ólafsson, frumkvöðull og ljósmyndari, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Þegar stúlkan var níu til tólf ára braut hann margítrekað gegn henni, meðal annars með því að láta hana veita honum munnmök. Hann fékk síma stúlkunnar afhentan hjá lögreglu á meðan málið var til rannsóknar og fékk nálgunarbann á föður hennar um tíma. Innlent 28.6.2024 08:43
Hart tekist á um öldungaráð borgarinnar Óvænt tillaga leit dagsins ljós í öldungaráði Reykjavíkurborgar þess efnis að Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrennis fengi aðeins einn fulltrúa í sjö manna öldungaráði borgarinnar í stað þriggja eins og verið hefur. Innlent 28.6.2024 08:01
Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Þakið á flugvellinum í Nýju Delí hrundi í gærmorgun vegna mikillar rigningar og vinds. Einn er látinn og er búið að aflýsa innanlandsflugi. Sá hluti þaksins sem hrundi er við brottfararhliðs númer eitt á flugvellinum. Erlent 28.6.2024 07:57
Gul viðvörun á Austfjörðum og Suðausturlandi Í dag er allhvöss og hvöss norðvestanátt og rigning, hvassast á Austfjörðum og undir Vatnajökli. Gular viðvaranir eru í gildi vegna vinds og ráðlagt að fara með gát, einkum þegar ferðast er með aftan í vagna. Viðvörunin rennur úr gildi snemma á laugardagsmorgun. Veður 28.6.2024 07:30
Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Fyrri kappræður forsetaframbjóðendanna tveggja í Bandaríkjunum, Joe Biden, núverandi forseta, og Donald Trump, fyrrverandi forseta, fóru fram í gær. Í umfjöllun erlendra miðla er í flestum þeirra talað um að kappræðurnar hafi einkennst af persónulegum árásum og að Joe Biden hafi tekist illa upp með að verjast árásum og röngum staðhæfingum Trump um hin ýmsu mál. Erlent 28.6.2024 06:40
Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Spennan magnast vestanhafs fyrir forsetakappræður Joes Biden og Donalds Trump sem fara fram í nótt. Erlent 27.6.2024 23:49
Efndu til gjörnings við Lækjartorg Stuðningsmenn Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvahrörnunarsjúkdóm, efndu í dag til gjörnings við Lækjartorg til að mótmæla fyrirhugaðri brottvísun hans úr landi. Innlent 27.6.2024 23:13
Á sér engar málsbætur vegna hrottafenginna brota gegn eiginkonu Landsréttur staðfesti í dag átta ára fangelsisrefsingu Heiðars Arnar Vilhjálmssonar vegna grófra brota gegn eiginkonu hans. Þó að Landsréttur hafi staðfest refsinguna sem Héraðsdómur Reykjaness lagði upp með sýknar Landsréttur hann fyrir brot sem Héraðsdómur hafði sakfellt hann fyrir. Innlent 27.6.2024 23:05
Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Leiðtogar Evrópusambandsríkja hafa tilnefnt Ursulu von der Leyen til embættis forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til næstu fimm ára, en hún hefur setið eitt kjörtímabil í því embætti. Erlent 27.6.2024 22:02
Rúntað um Reykjavík í Tesla Cybertruck Tesla Cybertruck verður til sýnis hér á landi um helgina, eftir að hafa flakkað um Evrópu síðustu vikur. Einn helsti Teslu-áhugamaður landsins segir bílinn uppfylla allar hans kröfur. Bílar 27.6.2024 19:44
Væru með helmingi færri þingmenn Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega. Innlent 27.6.2024 19:30
Tveir féllu af sæþotu við Seltjarnarnes Tveir menn féllu af Sæþotu við Seltjarnarnes í kvöld. Öðrum þeirra tókst að synda í land, en hinum var bjargað af slökkviliði. Innlent 27.6.2024 19:02
Sigldu um allan Breiðafjörð vegna lítils báts með bilað stýri Tvö björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kölluð út í dag til að aðstoða fiskibáta í vandræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Innlent 27.6.2024 18:39
Erfið staða Sjálfstæðisflokksins og Cybertruck mættur til Íslands Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega. Við förum yfir stöðuna í pólitíkinni í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 27.6.2024 18:07
Hvorugt þeirra man eftir slysinu Karlmaður hlaut í dag þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til eins árs, í Héraðsdómi Norðurlands eystra vegna ofsaaksturs í Öxnadal í byrjun nóvember árið 2020, en bíll mannsins endaði utan vegar. Ökumaðurinn og kona sem var farþegi í bílnum slösuðust, en hvorugt þeirra man eftir slysinu. Innlent 27.6.2024 17:53
Endurvekja gamlan draum um heilsulind í Perlunni Zeppelin arkitektar hafa auglýst eftir samstarfsaðila til að kaupa Perluna og byggja þar hótel, heilsulind og baðlón. Orri Árnason arkitekt, segir að hugmyndin sé rúmlega tíu ára gömul, en nú sé aftur tækifæri til að láta hana raungerast. Innlent 27.6.2024 16:28
Fjölga leikskólaplássum í miðbænum Samþykkt var á í borgarráði í dag að fjölga leikskólaplássum í leikskólanum Miðborg í miðbæ Reykjavíkur um 75. Rekstarleyfi leikskólans Miðborgar hefur verið fært upp 161 barn en sem stendur eru þar 86 börn með pláss. Innlent 27.6.2024 16:25
Hefja innflutning á Ozempic til að bregðast við skorti Lyfjaver flytur inn Ozempic til að bregðast við skorti á lyfinu hér á landi undanfarið. Lyfjaver hefur haft markaðsleyfi fyrir Ozempic í rúm tvö ár en markaðsaðstæður hafi ekki þótt hagstæðar til innflutnings þar til nú. Innlent 27.6.2024 16:10
Endurtekið efni á Stöð 2 vegna rafmagnsbrunans Enn er unnið að viðgerð vegna rafmagnsbruna sem kom upp í tækjarými Sýnar í nótt. Vegna þess er sjónvarpsdagskrá Stöðvar 2 og Stöðvar 2 Sport með óhefðbundnum hætti sem lýsir sér þannig að viðskiptavinir sjá endurtekið efni. Innlent 27.6.2024 15:58
Ferðaþjónustan þurfi að hætta þessu væli Framkvæmdastjóri Úrvals útsýnar segir ekki sjálfsagt að almenningur greiði undir markaðsherferðir fyrir Ísland sem ferðamannastað. Nú sé ekki rétti tíminn til að hrinda af stað markaðsherferð fyrir Ísland heldur komast að því hver ástæða samdráttarins sé. Innlent 27.6.2024 15:05
Fimm ár fyrir tilraun til manndráps á aðfangadag Ásgeir Þór Önnuson hlaut í dag fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með skotárás á heimili í Hafnarfirði síðastliðið aðfangadagskvöld. Hann braust grímuklæddur inn á heimili í Hafnarfirði, og skaut sex skotum úr skammbyssu í átt að níu ára stúlku og föður hennar. Innlent 27.6.2024 14:52
Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Bráðum verður hægt að nota þýðingarvél Google til að þýða á og úr málum nágrannaþjóða okkar. Færeysku og grænlensku verður bætt við þýðingarvélina á næstunni ásamt 108 öðrum málum um allan heim, allt frá fámennum málsvæðum eins og Færeyjum og til fjölmennari mála eins og kantónsku. Erlent 27.6.2024 14:09
Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Joe Biden og Donald Trump mætast í fyrri kappræðum sínum fyrir forsetakosningarnar í nótt. Prófessor í stjórnmálafræði segir á brattann að sækja fyrir Biden, sem þurfi að sanna sig fyrir kjósendum í kappræðum kvöldsins. Erlent 27.6.2024 13:57
Íbúar Grafarvogs óánægðir með þéttingaráform Mikillar óánægju gætir meðal hóps íbúa í Grafarvogi um áform borgarinnar um uppbyggingu í hverfinu. Hópurinn óttast að græn svæði hverfi fyrir þéttri byggð og hefur stofnað undirskriftalista til að mótmæla byggingu á fjölbýlishúsi á lóð við Smárarima/Sóleyjarima. Innlent 27.6.2024 13:49
Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27.6.2024 13:37
Segja aðgerðir lögreglu úr hófi og vilja miskabætur Níu mótmælendur krefjast miskabóta frá ríkinu vegna þess sem þeir segja harkalegar og tilhæfulausar aðgerðir lögreglu 31. maí síðastliðinn. Innlent 27.6.2024 13:34