Fréttir
207 208 209 210 211 212 213 214 215 … 334 ›
Lögreglan hafi brugðist rétt við í líkamsárásarmáli Afbrotafræðingur segir líkamsárásardóm yfir lögreglumanni ólíklegan til að grafa undan trausti til lögreglunnar, þar sem hún tók málið til rannsóknar að eigin frumkvæði og vék viðkomandi lögreglumanni strax frá störfum. Innlent 5.6.2024 11:30
Bæjarfulltrúi aðstoðar ráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðið Andra Stein Hilmarsson sem tímabundinn aðstoðarmann sinn í stað Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi. Innlent 5.6.2024 11:24
Maðurinn sem fannst í Þórsmörk var Íslendingur Maðurinn sem fannst látinn í Þórsmörk mánudagskvöldið var Íslendingur. Eins og greint hefur verið frá fundu vegfarendur manninn á mánudaginn en málið er nú í rannsókn. Innlent 5.6.2024 11:03
Áfram hríðarveður fyrir austan Áfram er spáð hríðarveðri norðaustan- og austanlands í dag, og einnig hvasst, hviður um 35 m/s og sandfok á köflum, suðaustantil á landinu. Veður 5.6.2024 10:34
Stúlkan er fundin Fjórtán ára stúlkan sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir upp úr klukkan 10 er fundin. Innlent 5.6.2024 10:12
„Skítaskilaboð“ forsetaframbjóðenda til Úkraínumanna Formaður utanríkismálanefndar Alþingis lýsir afstöðu sumra forsetaframbjóðenda að Ísland eigi ekki að styðja Úkraínumenn til vopnakaupa sem „skítaskilaboðum“. Halla Tómasdóttir, nýkjörin forseti, var einna mest afgerandi í þeirri skoðun fyrir kosningar. Innlent 5.6.2024 09:35
Þekktur sænskur rappari skotinn til bana Sænski rapparinn C. Gambino var skotinn til bana á bílastæði í Gautaborg í gærkvöldi. Í maí síðastliðnum vann hann til hinna sænsku Grammis-verðlauna. Erlent 5.6.2024 09:27
Stunguárás á fulltrúa þýsks fjarhægriflokks Fulltrúi þýska fjarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) var stunginn í árás í borginni Mannheim í suðvesturhluta Þýskalands seint í gær. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að lögreglumaður var stunginn til bana í mótmælum gegn íslam í borginni. Erlent 5.6.2024 08:34
Hafði heyrt að ræningjanum hefði verið komið fyrir kattarnef „Vá, armur laganna er langur,“ hugsaði Frank Michelsen þegar hann las frétt á Vísi í gær um að sakborningur í einu stærsta ráni Íslandssögunnar hefði hlotið fjögurra ára fangelsisdóm þrettán árum eftir að ránið var framið. Frank hafði heyrt að umræddur sakborningur væri látinn. Innlent 5.6.2024 08:00
Komu skútu með tólf manns um borð til aðstoðar Björgunarsveit í Vestmannaeyjum var kölluð út eftir að aðstoðarbeiðni barst frá erlendi skútu með tólf manns um borð djúpt suður af landinu í nótt. Björgunarskip er nú með skútuna í togi á leið til landsins, en tólf manns voru þar um borð. Innlent 5.6.2024 07:58
Sunak og Starmer tókust á um skatta, útlendingamál og NHS Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands og formaður Íhaldsflokksins, og Keir Starmer, formaður Verkamannaflokksins, mættust í gær í fyrstu kappræðum sínum fyrir þingkosningarnar í Bretlandi sem fara fram 4. júlí næstkomandi. Erlent 5.6.2024 07:55
Kalt loft, stormur, úrkoma, rigning, slydda og snjókoma á landinu Víðáttumikil lægð er nú stödd austur af landinu og beinir hún köldu lofti úr norðri til landsins og fylgir talsverð úrkoma, rigning eða slydda við sjávarmál og snjókoma inn til landsins á Norður- og Austurlandi. Veður 5.6.2024 07:15
Ráðleggja gegn samþykkt MDMA sem meðferð við áfallastreituröskun Ráðgjafanefnd hefur ráðlagt Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) að samþykkja ekki notkun MDMA sem meðferðarúrræði við áfallastreituröskun. Nefndin segir ekki sannað að meðferðin virki né að ávinningur hennar sé meiri en áhættan. Erlent 5.6.2024 07:05
Segir franska hermenn í Úkraínu lögmæt skotmörk Rússa Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir franska hermenn sem kunna að ferðast til Úkraínu til að þjálfa Úkraínumenn í hernaði „lögmæt skotmörk“ Rússa. Fréttir 5.6.2024 06:38
Líkamsárás, innbrot og vesen á stigagöngum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum málum í gærkvöldi og nótt en í mörgum tilvikum var um að ræða ölvaða einstaklinga eða aðra sem voru að vera til vandræða. Innlent 5.6.2024 06:18
Hillur að verða tómar í Færeyjum og ekkert samkomulag í augsýn Fjórða vika verkfalls fjögurra stéttarfélaga er hafin í Færeyjum, en sáttasemjari segir enn langt í land að samkomulag náist milli stéttarfélaga og atvinnurekenda. Verkfallið hefur mikil áhrif á daglegt líf Færeyinga. Hillur í matvöruverslunum eru orðnar tómlegar og farið er að bera á eldssneytisskorti. Erlent 5.6.2024 00:00
Metfjöldi nemenda þreytir sveinspróf í múrverki Metfjöldi nemenda taka sveinspróf í múrverki við Tækniskólann í vikunni eða alls 26. Þráinn Óskarsson kennari við múrdeild skólans segist finna fyrir aukinni jákvæðni í garð iðnnáms. Innlent 4.6.2024 23:10
Hraunrennsli frá gígnum virðist vera orðið meinlítið Sú breyting varð í nótt á eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur að virknin færðist úr þremur gígum niður í einn. Verulegur kraftur er enn í gosinu. Innlent 4.6.2024 23:04
Kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands Lilja Magnúsdóttir, deildarstjóri auðlindastýringar hjá HS Orku, var í dag kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands á aðalfundi félagsins í Hörpu. Innlent 4.6.2024 22:38
Margir eiga inni vaxtastuðning frá skattinum Landsmenn eiga margir rétt á vaxtastuðningi frá skattinum, sem greiddur verður inn á íbúðalán. Vaxtastuðningurinn er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda sem kynntur var við undirritun kjarasamninganna í mars 2024. Innlent 4.6.2024 22:23
Narendra Modi lýsir yfir sigri á Indlandi Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hefur lýst yfir sigri í þingkosningum þar í landi þrátt fyrir mikið fylgistap milli kosninga. Flokkur hans, Bharatiya Janata, hefur unnið hreinan meirihluta á Lok Sabha, neðri deild indverska þingsins, síðustu tvær kosningar. Erlent 4.6.2024 22:19
Kínaforseti óskar Höllu til hamingju með sigurinn Xi Jinping, forseti Kína, óskaði Höllu Tómasdóttur, nýkjörnum forseta Íslands, til hamingju með sigur hennar í nýafstöðnum kosningum. Innlent 4.6.2024 21:30
„Mér fannst skömmin vera svo mikil“ Maður sem var fjórtán ára vistaður á Unglingaheimili ríkisins 1979 segir að forstöðumaður heimilisins hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi í tvígang. Hann og aðrir segja að skelfilegt ofbeldi hafa átt sér stað af hálfu nokkurra starfsmanna meðan þeir dvöldu þar. Innlent 4.6.2024 21:01
Halla hefði unnið án taktískra atkvæða Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, hefði unnið í forsetakosningunum án þessara svokölluðu taktísku atkvæða sem mikið hafa verið til umræðu. Einnig hefði hún unnið kosningarnar sama hvaða kosningakerfi væri notað. Innlent 4.6.2024 20:41
Kakkalakkar á göngum Landspítalans Fossvogi Þýskættaðir kakkalakkar dreifðu sér um nýrnadeild Landspítalans fyrir nokkrum vikum, þegar erlendur ferðamaður lagðist þar inn með farangur sinn meðferðis. Spítalinn telur að búið sé að útrýma óværunni og öll starfsemi á deildinni er að komast í eðlilegt horf. Innlent 4.6.2024 20:05
Málið eigi ekki að rýra traust til lögreglu Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir 30 daga skilorðsbundinn dóm yfir lögreglumanni vegna líkamsárásar ekki eiga að rýra traust fólks til lögreglu. Málið hafi verið rannsakað að frumkvæði embættisins. Innlent 4.6.2024 19:09
Biluð rúta í Hvalfjarðargöngum og lokað næstu tvær nætur Biluð rúta olli því að loka þurfti Hvalfjarðargöngum um sexleytið í kvöld. Hvalfjarðargöngin verða einnig lokuð vegna vinnu frá miðnætti í kvöld þangað til 6:30 í fyrramálið. Göngin verða einnig lokuð á sama tíma aðfararnótt fimmtudags 6. júní. Hjáleið er um Hvalfjarðarveg (47). Innlent 4.6.2024 18:54
Líkfundur í Þórsmörk Vegfarendur í Þórsmörk gengu fram á látinn mann í gærkvöldi. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar málið en ekki er grunur um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 4.6.2024 18:39
Hefur áhyggjur af skipulagðri brotastarfsemi á Akureyri Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa áhyggjur af skipulagðri brotastarfsemi á Akureyri og segir alvarlega þróun eiga sér stað norður á landi. Innlent 4.6.2024 18:30
Aðild Péturs Jökuls óskýr að sögn dómara Pétur Jökull Jónasson var ákærður fyrir hlutdeild í stórfelldum innflutningi á kókaíni til Íslands í síðasta mánuði. Við þingfestingu málsins sem fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag gagnrýndi dómari saksóknara fyrir að hafa ekki lagt fram nákvæma verknaðarlýsingu með ákæruskjalinu yfir Pétri Jökli eins og tíðkast í málum sem slíkum. Innlent 4.6.2024 18:20