Fréttir
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 334 ›
Óvænt fjarvera Bjarna á fundi í Brussel Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra verður ekki meðal gesta á fundi utanríkisráðherra aðildarríkja NATO sem hefst í Brussel klukkan ellefu að íslenskum tíma. Bjarni forfallaðist skyndilega vegna anna hér heima við önnur ónefnd verkefni. Innlent 3.4.2024 10:18
„Ég nota orðið dýr því það er það sem þau eru“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, sagði farand- og flóttafólk aftur vera „dýr“ í kosningaræðu í Michigan í gær. Þá endurtók hann gömul ummæli um að ráðamenn annarra ríkja væru að senda glæpamenn til Bandaríkjanna með ólöglegum hætti. Erlent 3.4.2024 10:15
Steinunn Ólína komin á lista yfir forsetaefni Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona er komin í hóp þeirra sem nú eru að safna meðmælendum vegna hugsanlegs forsetaframboðs. Innlent 3.4.2024 10:06
Flaggað í hálfa stöng eftir skotárásina Flaggað verður í hálfa stöng við allar opinberar byggingar og stofnanir í Finnlandi í dag vegna skotárásarinnar í grunnskóla í Vantaa í gær. Tólf ára drengur lét lífið og tvær stúlkur særðust þar í árás tólf ára barns. Erlent 3.4.2024 09:16
Guðmundur Felix býður fram krafta sína Guðmundur Felix Grétarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í forsetakosningunum í sumar. Innlent 3.4.2024 09:06
Eðlilegt að mögulegt framboð Katrínar sé rætt á fundi þingflokksins Þingkona Sjálfstæðisflokksins telur of mikið gert úr því að þingflokkurinn ætli að ræða mögulegt framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta á fundi í dag. Ekki eru önnur mál á fundi þingflokksins í dag. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir Katrínu enn að hugsa málið. Innlent 3.4.2024 08:47
Grunuð um að stinga aðra konu fimm sinnum í bíl Kona hefur verið ákærð fyrir tilraun til manndráps með því að stinga aðra konu fimm sinnum með hnífi. Innlent 3.4.2024 08:01
Bendla umdeilda rússneska sveit við Havana-heilkennið Á undanförnum árum hafa nokkrum sinnum átt sér stað atvik þar sem bandarískir og kanadískir embættismenn og erindrekar verða fyrir óútskýrðum heilbrigðisvandamálum. Heyrnartap, ógleði, svimi og miklir höfuðverkir eru meðal þess sem fólk hefur fundið fyrir en fyrstu tilfellin greindust í sendiráði Bandaríkjanna í Havana á Kúbu. Erlent 3.4.2024 08:01
Vilja flugvöllinn nefndan í höfuðið á Trump Guy Reschenthaler, þingmaður Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur lagt fram lagafrumvarp sem felur í sér að nafni Dulles-alþjóðaflugvallarins í Virginíu verði breytt í „Donald J. Trump-alþjóðaflugvöllurinn“. Demókratar á þinginu hafa hæðst að hugmyndinni. Erlent 3.4.2024 07:53
Rowling ekki sótt til saka fyrir að kalla trans konur „karlmenn“ Lögregluyfirvöld í Skotlandi segja rithöfundinn JK Rowling ekki hafa brotið lög þegar hún kallaði trans konur „karlmenn“ á X/Twitter. Rowling var að gagnrýna nýja haturslöggjöf sem tók gildi á mánudag og sagði hana aðför að tjáningarfrelsinu í Skotlandi. Erlent 3.4.2024 07:16
Þokkalega bjart veður víðast hvar Veðurstofan gerir ráð fyrir hægum vindi um allt land í dag og þokkalega björtu veðri víðast hvar. Má því reikna með að það verði þurrt um mest allt land. Veður 3.4.2024 07:04
Fjórir látnir og 700 særðir eftir 7,4 stiga skjálfta í Taívan Gríðarlega stór jarðskjálfti reið yfir á Taívan í nótt en hann mældist 7,4 stig að stærð. Þetta er stærsti skjálfti sem riðið hefur yfir eyjuna í 25 ár. Fjórir eru látnir hið minnsta en rúmlega 700 eru særðir. Erlent 3.4.2024 06:49
Herkvaðningaraldurinn lækkaður úr 27 árum í 25 ár Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að herkvaðningaraldurinn verði lækkaður úr 27 ára í 25 ára. Erlent 3.4.2024 06:32
Tugir létust í eldsvoða á skemmtistað Að minnsta kosti 29 létu lífið og einn slasaðist þegar eldur kom upp á skemmtistað í Istanbul í Tyrklandi í dag. Erlent 2.4.2024 22:52
Jón tveimur mínútum fljótari að safna en Baldur Jón Gnarr, sem tilkynnti um forsetaframboð sitt fyrr í kvöld, er búinn að safna meðmælunum sem þarf til að bjóða sig fram til forseta. Þetta staðfestir Heiða Kristín Helgadóttir, sem er í kosningateymi Jóns, í samtali við fréttastofu. Innlent 2.4.2024 22:13
Stefnir í að bið eftir jarðgöngum lengist Ófærðin sem birtist vegfarendum á fjallvegum á norðurhelmingi landsins um páskana, þar sem þúsundir manna komust ekki leiðar sinnar, hefur kallað fram endurnýjaðar kröfur um jarðgöng. Óvissa ríkir hins vegar um hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð og stefnir í að í flestum landshlutum þurfi menn að bíða lengi eftir næstu göngum. Innlent 2.4.2024 22:10
Otti Rafn segir af sér formennsku í Landsbjörg Otti Rafn Sigmarsson hefur tilkynnt að hann hyggist segja formlega af sér sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það gerði hann á stjórnarfundi Landsbjargar í kvöld. Innlent 2.4.2024 21:50
Hjálparsamtök fresta aðgerðum vegna árásarinnar Nokkur hjálparsamtök sem hafa séð íbúum Gasa fyrir neyðaraðstoð hafa frestað aðgerðum sínum á svæðinu eftir að sjö starfsmenn World Central Kitchen létu lífið í árásum Ísraelshers í fyrradag. Erlent 2.4.2024 21:45
„Upp með hökuna og áfram gakk“ Skipstjóri fyrsta frystitogarans sem landaði í Grindavík í morgun í fyrsta sinn í fimm mánuði segir blendnar tilfinningar fylgja tímamótunum. Hann fékk ryk í augun þegar skipið sigldi að landi. Útgerðarstjóri segir tilfinninguna gríðarlega góða og gleðilegt að líf sé að færast í bæinn. Innlent 2.4.2024 21:13
Góðir skór og hlý föt mikilvægast í fuglaskoðun Fuglaskoðun Landverndar og Fuglaverndar fór fram í Gróttu á Seltjarnarnesi fyrr í kvöld. Líffræðingur segir nokkrar vikur þar til allir farfuglarnir verði komnir til landsins. Innlent 2.4.2024 20:27
Jón Gnarr ætlar á Bessastaði Jón Gnarr ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Þetta tilkynnir hann í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlum í kvöld. Innlent 2.4.2024 20:02
Samningar yfir 40 þúsund opinberra starfsmanna lausir Formaður BSRB vonar að aukinn þungi færist í kjaraviðræður við ríki og sveitarfélög (LUM) eftir að samningar ríflega fjörtíu þúsund félagsmanna bandalagsins og BHM losnuðu nú um mánaðamótin. Innlent 2.4.2024 19:41
Sterkir forsetaframbjóðendur geta gjörbreytt stöðunni Jón Gnarr tilkynnir væntanlega í kvöld hvort hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands eða ekki. Þá styttist í að forsætisráðherra geri upp hug sinn. Stjórnmálafræðingur segir framboð þeirra og nokkurra annarra geta ráðið miklu í kosningabaráttunni. Innlent 2.4.2024 19:20
„Veit að hún er að hugsa málið“ Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist ekki átta sig á því hvort tal um mögulegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hafi orsakað skjálfta í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann segist vita að Katrín sé að velta fyrir sér framboðinu. Innlent 2.4.2024 19:10
Mál vegna falsaðra nektarmynda á borði lögreglu Lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra segir fleira en eitt mál komið á borð lögreglunnar þar sem nektarmyndir falsaðar af gervigreind koma við sögu. Hún segir jafn auðvelt fyrir unglinga að láta búa til slíkar myndir og það er fyrir fullorðið fólk að selja hjól á Facebook. Innlent 2.4.2024 18:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Jón Gnarr tilkynnir væntanlega í kvöld hvort hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Þá styttist í að forsætisráðherra geri upp hug sinn. Stjórnmálafræðingur segir framboð þeirra og nokkurra annarra geta ráðið miklu í baráttunni. Heimir Már Pétursson fer yfir stöðuna í kosningabaráttunni í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðir við þingflokksformann Vinstri Grænna í beinni. Innlent 2.4.2024 18:01
Sér ekki hvernig VG gætu haldið áfram í ríkisstjórn án Katrínar Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sér ekki fyrir sér að Vinstri græn geti áfram setið í ríkisstjórn ef Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra býður sig fram til forseta Íslands. Hún sé límið á milli flokksins og hinna ríkisstjórnarflokkanna. Innlent 2.4.2024 16:53
Aldrei fleiri forsetaefni og nú eða 60 stykki Að sögn Brynhildar Bolladóttur, lögfræðings hjá Landskjörstjórn, hafa aldrei verið fleiri í forsetaframboði en sem stendur eru 60 manns á skrá yfir þá sem nú leita eftir stuðningi. Athygli vekur að af þessum sextíu eru aðeins 16 konur. Innlent 2.4.2024 16:00
Vill kosningar óháð valhoppi Katrínar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir mikilvægt að boðað verði til Alþingiskosninga hið fyrsta, óháð því hvort Katrín Jakobsdóttir fari í forsetaframboð eða ekki. Innlent 2.4.2024 15:12
Með 800 grömm af kókaíni innanklæða Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sextán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega átta hundruð grömm af kókaíni með flugi til landsins í janúar síðastliðinn. Innlent 2.4.2024 14:30