Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Árni Sæberg skrifar 12. febrúar 2026 13:28 Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, (t.v.) og Halla Gunnarsdóttir, Formaður VR. Vísir Félagsdómur hefur dæmt Samtökum atvinnulífsins í vil í deilu við VR og fleiri stéttarfélög um kauptaxta.
Í tilkynningu á vef SA segir að Félagsdómur hafi með dómi sínum í dag staðfest með hvaða hætti kauptaxtar kjarasamninga skuli hækka 1. janúar 2026. VR hafi talið að kauptaxtar ættu að taka meiri hækkun en leiða mátti af skýrum ákvæðum kjarasamninga og hafi fengið Matvís, RSÍ og VM til að fylgja sömu línu. Félagsdómur hafi hins vegar staðfest að kauptaxtar sem SA hafa birt í kaupgjaldsskrá frá 1. janúar 2026 séu réttir. Enginn ágreiningur hafi verið við SGS, Eflingu eða Samiðn um rétta hækkun kauptaxta. VR hafi haldið því fram að 0,58 prósenta kauptaxtaauki, sem kom til framkvæmda 1. apríl 2025, ætti að reiknast ofan á umsamda kauptaxta ársins 2026. Kauptaxtaaukinn hafi verið mismunur á hækkun tiltekins viðmiðunarkauptaxta annars vegar og launavísitölu almenna vinnumarkaðarins hins vegar. Á tímabilinu frá nóvember 2023 til nóvember 2024 hefði launavísitalan hækkað meira en kauptaxtar á sama tímabili og því hafi komið til greiðslu kauptaxtaauka sem bættist ofan á kauptaxtana eins og þeir voru í janúar 2025. Það hafi hins vegar enginn grundvöllur verið fyrir þeirri túlkun VR að þessi sami kauptaxtaauki skyldi reiknast ofan á umsamda 2026 kauptaxta. „SA hafa óskað þess við hluteigandi félög að birtir kauptaxtar verði leiðréttir án tafar.“
Stéttarfélög Kjaramál Atvinnurekendur Dómsmál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Sjá meira