Fréttir
50 51 52 53 54 55 56 57 58 … 334 ›
Pallborðið: Hvalveiðafár og skóla- og heilbrigðismál Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigmar Guðmundsson verða gestir Pallborðsins í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 13.11.2024 11:27
Hafa opnað veginn um Eyrarhlíð á ný Búið er að opna veginn um Eyrarhlíð á nýjan leik. Vegurinn liggur á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og var lokað fyrr í vikunni eftir að aurskriður féllu þar. Innlent 13.11.2024 11:20
Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Í tilefni kosninga hafa verið dregin fram gömul bloggskrif Þórðar Snæs Júlíussonar, fyrrum ritstjóra Heimildarinnar og nú frambjóðanda Samfylkingarinnar, sem lýsa unggæðingslegum og óviðurkvæmilegum viðhorfum í garð kvenna. Innlent 13.11.2024 11:17
Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Ráðamenn í Úkraínu segja rússneska hermenn taka sífellt fleiri úkraínska stríðsfanga af lífi. Oft á tíðum hafi stríðsfangar verið skotnir til bana í návígi, eftir að þeir hafa verið teknir höndum og hafa Rússar jafnvel tekið sig upp taka menn af lífi og birt myndböndin á netinu. Erlent 13.11.2024 10:55
Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Sérsveit ríkislögreglustjóra verður við æfingar við Fannborg í hjarta Kópavogs í dag. Almenningur er sagður geta átt von á því að heyra hvelli og læti sem eigi sér eðlilegar skýringar. Innlent 13.11.2024 10:23
Reyna að hreinsa vatnsbólið á Flateyri eftir hádegi Íbúar á Flateyri eru beðnir um að fara sparlega með vatn í dag. Taka þurfti af vatn í vikunni í bænum á meðan vatnið var hreinsað. Í Bolungarvík, þar sem einnig þurfti að loka fyrir vatn, er nú vatnið aftur orðið neysluhæft. Mikil drulla komst í neyslubólið þar vegna mikilla rigninga. Innlent 13.11.2024 10:19
Búið að opna veginn um Ísafjarðardjúp Búið er að opna veginn um Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp á ný. Einnig er búið að opna veginn um Súðavíkurhlíð, en ákveðið var að loka vegum í landshlutanum vegna skiðuhættu. Innlent 13.11.2024 10:02
Engin bein tilmæli um breytingar á meðan endurskoðun stendur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gaf ekki út bein tilmæli um breytingar á starfsemi bálstofu Kirkjugarða Reykjavíkur síðasta föstudag samhliða því að tilkynnt var að endurskoða ætti starfsleyfi þeirra. Endurskoðun getur tekið margar vikur. Til skoðunar er að gefa út bein tilmæli um breytingar á skilyrðum. Innlent 13.11.2024 10:01
Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Helstu mannréttindasamtök Hvíta-Rússlands segja að María Kolesnikova, einn forsprakka mótmæla gegn Viktor Lúkasjenka forseta, hafi fengið að hitta föður sinn. Henni hafði verið meinað um að eiga í samskiptum við fjölskyldu og vini í tuttugu mánuði. Erlent 13.11.2024 09:25
Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Quang Le eða Davíð Viðarsson hefur nú breytt nafni sínu enn á ný, nú frá því að heita Davíð Viðarsson yfir í það að heita aftur Quang Le eða Quang Ngoc Le fullu nafni. Það sést í þjóðskrá og í fyrirtækjaskrá þegar fyrirtæki í hans eigu eru leituð uppi. Innlent 13.11.2024 09:05
Foreldrafélag MR segist virða kröfur kennara en gagnrýnir verkfall Stjórn Foreldrafélags Menntaskólans í Reykjavík sendi í gærkvöldi frá sér ályktun þar sem þungum áhyggjum er lýst af áhrifum verkfalls kennara á nemendur skólans, sem og á aðra aðila sem verkfallið hefur haft og mun hafa, ef áfram heldur sem horfir. Innlent 13.11.2024 08:26
Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Líkur eru á að íbúar í færeysku höfuðborginni Þórshöfn fái nýjan bæjarstjóra innan skamms eftir að vinstriflokkurinn Þjóðveldi nærri tvöfaldaði fylgi sitt í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í gær. Erlent 13.11.2024 07:48
Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Justin Welby hefur greint frá því að hann hyggist segja af sér sem erkibiskup af Kantaraborg en hann hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að grípa ekki til aðgerða þegar honum var gert viðvart um stófelld kynferðis- og ofbeldisbrot John Smyth. Erlent 13.11.2024 07:46
Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan hvassviðri eða stormi á norður- og austurhluta landsins og eru viðvaranir í gildi fram eftir degi á þeim svæðum. Það verður heldur hægari vindur suðvestan- og vestanlands. Veður 13.11.2024 07:07
Vegir enn lokaðir á Vestfjörðum Vegirnir í Ísafjarðardjúpi og vegurinn um Steingrímsfjarðarheiði eru enn lokaðir vegna skriðuhættu og þá er Bíldudalsvegur í sundur og því lokaður frá flugvellinum og að gatnamótunum að Dynjandisheiði. Innlent 13.11.2024 07:06
Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseti Bandaríkjanna, heldur áfram að vekja ugg með útnefningum sínum í hin ýmsu embætti en hann tilkynnti í gær að Pete Hegseth, sjónvarpsmaður hjá Fox News, yrði næsti varnarmálaráðherra landsins. Erlent 13.11.2024 06:52
Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Nokkrir einstaklingar hér á landi hafa greinst með bráða lifrarbólgu B á síðustu mánuðum en svo virðist sem um sé að ræða smit sem hefur átt sér stað við kynmök. Innlent 13.11.2024 06:25
„Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi og blóðferlafræðingur, segir rannsókn á hvarfi og andláti Birnu Brjánsdóttur hafa tekið mikið á. Málið hafi haldið fyrir honum vöku í þrjá mánuði, og hann muni ekkert eftir fjölskylduferð sem hann fór í að rannsókninni lokinni. Innlent 12.11.2024 22:13
Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lögreglan á Vestfjörðum hafði í kvöld samband við íbúa í húsum ofarlega við Hjallaveg á Ísafirði og í einu húsi við Hnífsdalsveg. Íbúar húsanna eru beiðnir um að dvelja ekki í herbergjum þar sem gluggar snúa upp í hlíð Eyrarfjalls. Innlent 12.11.2024 21:56
Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, segir sig og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, hafa lent í undarlegum símatruflunum þegar þau voru á fundi NATO-þingsins í Bratislava í Slóvakíu. Innlent 12.11.2024 20:30
Fangi lést á Litla-Hrauni Fangi á Litla Hrauni lést í dag. Ekki er grunur um að andlátið hafi borið að með óvenjulegum hætti en málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Innlent 12.11.2024 20:28
Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Forsætisráðherra segir ekkert hæft í fréttum byggðum á leynilegri upptöku um að Jón Gunnarsson hafi fengið stöðu í matvælaráðuneytinu gegn því að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Píratar vilja að málið verði rannsakað. Innlent 12.11.2024 20:00
„Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ Skriður hafa fallið á Vestfjörðum síðan í gærkvöldi. Stór skriða féll á Ísafirði um miðjan dag og hafa leysingar valdið því að vatn er ekki drykkjarhæft. Íbúum í Hnífsdal er bent á að setja vatn á brúsa. Innlent 12.11.2024 19:46
„Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Bjarni Benediktsson segir Jón Gunnarsson ekki hafa tekið sæti á lista í skiptum fyrir stöðu í matvælaráðuneytinu. Bjarni segist hafa ákveðið í síðustu viku að Jón kæmi ekki að veitingu hvalveiðileyfis og segir hleranir bera merki þess að verið sé að reyna að hafa áhrif á alþingiskosningar. Innlent 12.11.2024 18:45
Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Skriðuhætta er víða á Vestfjörðum þar sem skriður hafa fallið síðan í gærkvöld. Stór skriða féll á Ísafirði um miðjan dag og hafa leysingar valdið því að vatn er ekki drykkjarhæft. Íbúum í Hnífsdal er bent á að setja vatn á brúsa. Innlent 12.11.2024 18:07
Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Önnur aurskriða féll á Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals á fimmta tímanum. Vegurinn verður því lokaður út nóttina. Þá verður Súðavíkurhlíð einnig lokað klukkan tíu í kvöld. Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í Bolungarvík og á Ísafirði en þeim hefur verið lokað á ný. Innlent 12.11.2024 16:59
Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Bjarni Benediktsson hefur greint frá því að Jón Gunnarsson, settur aðstoðarmaður Bjarna í matvælaráðuneytinu, muni ekki koma að afgreiðslu hvalveiðileyfa í matvælaráðuneytinu. Innlent 12.11.2024 16:02
Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Aurskriða féll á veginn um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals um þrjúleytið. Vegurinn er lokaður vegna þessa og verður um sinn. Staðan verður metin út frá aðstæðum að því er segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vestfjörðum. Innlent 12.11.2024 15:32
Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns „Kannski er það klisjukennt að segja að einhver sé staddur í slæmri bíómynd, en við vorum bara virkilega þar. Þetta var ekkert tengt okkar lífi, eitt né neitt af þessu,“ segir Guðrún Hulda Birgis, systir Einars Arnar Birgis sem ráðinn var bani af Atla Helgasyni í Öskjuhlíð árið 2000. Innlent 12.11.2024 15:02
Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2024 sýna vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað síðustu tvö ár. Niðurstöður sýna lækkun í tíðni kvíða og depurðar í öllum árgöngum. Enn segist þó um helmingur stúlkna í 10. bekk finna fyrir depurð. Þá hafa um þrettán prósent stúlkna í 10. bekk verið beittar kynferðisofbeldi af jafnaldra en hlutfallið lækkar á milli ára. Innlent 12.11.2024 15:02