Innlent

Gréta María og Hrund til liðs við Sjá

Samtökin Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB í ágúst, hafa fengið liðsauka með komu Grétu Maríu Grétarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Prís, og Hrundar Rudólfsdóttur, framkvæmdastjóra Sólvalla rekstrarfélags, í stjórn hreyfingarinnar. Fyrir í stjórn eru þau Jónas Hagan, Hjálmar Vilhjálmsson og Berglind Guðmundsdóttir.

Innlent

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórs­á boðin út

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes hefur verið boðin út ásamt nýbyggingu Búðafossvegar. Brúarsmíðin og vegarlagningin boða einhverja mestu samgöngubyltingu í uppsveitum Suðurlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra.

Innlent

„Þessir hel­vítis út­lendingar skilja ekki neitt“

„Mér finnst ég alltaf þurfa að gera betur af því ég er útlendingur. Ég þarf alltaf að sýna að ég geti þetta,“ segir ein fimm kvenna af erlendum uppruna sem rætt var við í tengslum við rannsókn á kynþáttafordómum á íslenskum vinnumarkaði.

Innlent

Vegir og gatna­mót í Hval­firði komnir að þolmörkum

Vegir og gatnamót í Hvalfjarðarsveit eru komnir að þolmörkum að sögn sveitarstjóra sem segir of mörg alvarleg umferðarslys verða í Hvalfirði. Hann kallar eftir tafarlausu samtali við stjórnvöld vegna málsins og segir ekki hægt að bíða lengur eftir aðgerðum.

Innlent

Á­fram geisar innbrotahrinan

Tilkynnt var um „óvelkominn aðila“ í Hlíðahverfi Reykjavíkur, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Málið var leyst með því að lögregla skipaði manninum að hafa sig á brott. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað og innbrot miðsvæðis í borginni og er málið í rannsókn.

Innlent

Enginn al­var­lega slasaður eftir bílveltuna

Mennirnir þrír sem voru í bílnum sem valt fram af vegi í Skötufirði á tólfta tímanum í dag eru ekki alvarlega slasaðir. Ökumaður sem átti leið hjá bauð þeim að sitja inni í bíl hjá sér þar til hjálp bærist.

Innlent

Veðrið haggist ekki að neinu ráði

Öflug hæð suður af landinu mun ekki haggast að ráði næstu daga og því verður svipað veður áfram, það er ríkjandi vestlæg átt með dálitla vætu af og til vestanlands en lengst af bjart veður fyrir austan þar sem hiti fer víða vel yfir 20 stig.

Innlent

Fari mjög lík­lega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir jákvætt að unnið sé að því að vinna upp samkeppnishæfni sem hafi tapast undanfarin ár. Aftur á móti séu ýmis atriði sem séu óásættanleg og núverandi ríkisstjórn haldi uppi mýtum um greinina frekar en staðreyndum. Sem dæmi sé því haldið fram að hún sé best geymd á lágframleiðni- og láglaunaskalanum þegar hún sé í raun meðallaunagrein í hagkerfinu.

Innlent

„Það er brjálað að gera með stóru B-i“

Svo mikill gestagangur er á Kirkjubæjarklaustri að gripið hefur verið til lokunar á klukkustundarfresti í sundlaug bæjarins. Níu hundruð manns sóttu laugina í gær. Rekstraraðilar tveggja tjaldstæða á Suðurlandi segjast varla muna eftir öðrum eins gestagangi, sem þeir rekja beint til veðurblíðu á Suðurlandi og rigningar á Suðvesturlandi. 

Innlent

Björg­ólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti sitt frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga sem hafa verið gerðar á bresku skattkerfi. Hann þyrfti nú að greiða skatt á tekjum sem hann aflar sér utan Bretlands.

Innlent

Hryðjuverkamálið frá upp­hafi til enda

„Í kjölfar aðgerða lögreglu er það okkar mat að það sé óhætt að segja að samfélagið okkar sé öruggara en það var,“ sagði Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, á blaðamannafundi lögreglu sem fram fór 22. september 2022.

Innlent

„Stefnum að því að koma meira en tví­efld til baka“

Skartgripaverslunin Prakt mun loka næstu mánuði eftir að eldur kom upp í húsnæði þeirra að Laugavegi. Að baki Prakt stendur gullsmíðaparið Sigríður Edda Bergsteinsdóttir og Þorbergur Halldórsson, eða Edda og Beggi eins og þau eru kölluð í daglegu tali.

Innlent

Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykja­víkur

Fyrri hluti júlí er sá votasti í Reykjavík frá upphafi mælinga en úrkoma mældist 65 millimetrar. Það er meira en tvöföld meðalúrkoma, sé miðað við árin 1991 til 2020. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, hefur gert upp veðurfar á landinu þennan fyrri part mánaðar á bloggi sínu.

Innlent

Lög­regla klippti á plöturnar

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu í dag ökumann sem ekki hafði staðið skil á vátryggingargreiðslu. Var skráningarmerki bifreiðarinnar, oft í daglegu tali kallað númeraplata, fjarlægt og bíllinn þannig tekinn úr umferð. 

Innlent

„Þetta er bara toppurinn á ís­jakanum“

Formaður Félags eldri borgara í Reykjavík segir mál sjötugs manns sem missti aleiguna til fjárkúgara einungis vera toppinn á ísjakanum. Nýr veruleiki blasi við eldri borgurum á Íslandi og ljóst sé að mikil þörf sé á sérstökum Umboðsmanni eldri borgara sem komi þeim til aðstoðar.

Innlent

Ferða­maðurinn fundinn heill á húfi á Suður­landi

Allar björgunarsveitir frá höfuðborgarsvæðinu og austur á Höfn voru kallaðar út til að leita erlends ferðamanns sem nú hefur fundist heill á húfi. Hann hafði farið af stað í göngu í nótt ofan við Foss á Síðu á Suðurlandi en skilaði sér ekki til baka.

Innlent