Innlent

Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Þórður Þórarinsson er bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar.
Þórður Þórarinsson er bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Vísir/Lýður

Uppsögnum í Hafnarfirði er lokið að sögn bæjarstjóra. Fjárhagsstaða bæjarins sé slæm og þurfi þau að spara rúma tvo milljarða. Til að greina stöðuna naut bærinn þjónustu ráðgjafafyrirtækis.

„Það er nú þannig að fjárhagsstaða bæjarins kallar á miklar aðgerðir. Við þurfum að spara upp undir þrjá milljarða á næsta ári og þetta er liður í því,“ segir Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, í samtali við fréttastofu.

Í tilkynningu frá bænum í morgun sagði að af þeim 21,6 stöðugildum sem lögð voru niður hefði þremur verið boðin önnur störf hjá bænum. Nettófækkunin var því 18,6 stöðugildi og á hún að skila 330 milljónum króna í varanlegan sparnað frá og með árinu 2028. Einnig er ráðningabann í gildi.

Samkvæmt áætlun átti bærinn að skila fjögur hundruð milljóna króna afgangi í lok árs en reyndist hallinn vera upp á rúma tvo milljarða króna. Vegna þessa þurfi að ráðast í hagræðingaraðgerðir. Þessi gríðarlegi halli stafi af því að byggingaréttur var hátt í tveimur milljörðum lægri en gert var ráð fyrir.

Þórður segir að hugsanlega verði bæjarbúar varir við hagræðingarnar þegar kemur að þjónustu en einungis til skamms tíma. Búið var að ráðast í undirbúning svo það yrði sem minnst röskun þegar kemur að þjónustu við bæjarbúa. 

Hafnarfjarðarbær naut aðstoðar ráðgjafafyrirtækisins KPMG sem greindi fjárhag bæjarins.

„Að baki ákvörðuninni liggur náttúrulega mikil greiningarvinna á fjárhagi bæjarins og við höfum notað hagdeild sem hefur greint stöðuna með okkur. Það liggur að baki árshlutauppgjör fyrstu sex mánaðanna og svo höfum við notið ráðgjafar til þess að greina fjárhag bæjarins.“

Sorgardagur

Uppsagnirnar náðu ekki til starfsmanna sem sinna framlínustörfum heldur frekar til þeirra sem vinna í höfuðstöðvum bæjarins. Þeim sé þá einnig lokið og engar áætlanir séu um frekari uppsagnir

„Við reyndum að fara eins vægt í þetta og við mögulega gátum. Það er um að ræða ellefu prósenta fækkun í stjórnsýslu bæjarins en þegar þú lítur til allra starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar þá er um að ræða eins prósents fækkun,“ segir hann.

„Við þurfum auðvitað líka að láta enda ná saman vegna þess að það er þannig að skatttekjur bæjarins verða að standa undir rekstri hans og það er ekki staðan í dag.“

Aðspurður hvort að aukin umsvif gervigreindar hafi leitt til uppsagnanna segist Þórður ekki ætla að fullyrða neitt en það sé þó ekki það sem liggi að baki.

„Það er ekki hluti af greiningarvinnu okkar sem liggur hér að baki að það sé að færast í gervigreind en vissulega með aukinni tækni og ýmsum tækniframförum þá auðvitað breytast störf.“

Þórður tekur fram að það sé gríðarlega erfitt að kveðja starfsfólkið sem hafi lagt mikið til bæjarins. Það sé sorgardagur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×