Veiði
Ný sería af Sporðaköstum væntanleg
Í sumar hafa farið fram tökur á nýrri Sporðakastaseríu sem er með nýstárlegu sniði. Myndaðir eru erlendir veiðimenn sem eru stór nöfn í alþjóðlega veiðiheiminum og sumir einnig þekktir út fyrir þann heim.
Laxveiðimenn fagna rigningarspá
Nokkrar af bestu laxveiðiám landsins renna eins og litlir lækir og hafa gert í rúmlega mánuð en það er vonandi að breytast.
Laxinn að taka á Bíldsfelli
Það hefur eitthvað farið lítið fyrir fréttum af Soginu í sumar en það er vonandi að breytast miðað við fréttir af veiðimönnum síðustu daga.
Laxinn bíður betra vatns
Það er alveg ljóst að laxgengd í ánum á vesturlandi og víðar er langt undir væntingum en það er engu að síður lax við ósa ánna ó Borgarfirði sem virðist bara ekki leggja í að ganga upp.
Merkingarátak í Ytri Rangá
Umsjónarmenn og leigutakar Ytri Rangár hafa sett af stað nokkuð merkilegt átak við ánna til að kanna göngur og dreifingu laxa í ánni.
Taktu Veiðikortið með þér um helgina
Nú er að bresta á stærsta ferðahelgi ársins hjá Íslendingum og það verður fjölmennt á tjaldstæðum landsins og veðurspaín er bara alveg hreint ágæt til veiða.
Besti tíminn fyrir þurrflugu í Elliðavatni
Elliðavatn er oft kallað háskóli silungsveiðimannsins enda getur vatnið verið bæði gjöfult og krefjandi og það er yfirleitt haft á orði að náir þí góðum tökum á því getur þú veitt vel allsstaðar.
Eystri Rangá ennþá á toppnum
Nýjar tölur um laxveiði sumarsins á vefsíðu Landssambands Veiðifélaga sýna að það er stór munur á veiði milli landshluta.
Áfram ágæt veiði í Þjórsá
Veiðin í Þjórsáhefur verið ágæt á þessu sumri þó hún sé minni en síðustu tvö árin en nýju veiðisvæðin virðst vera að koma vel inn.
Hafrannsóknarstofnun hvetur veiðimenn til að sleppa laxi
Veiðin í sumar virðist ætla að vera söguleg í því samhengi að það stefnir í slakasta laxveiðisumar allra tíma.
40 laxa dagar í Ytri Rangá
Ytri Rangá er misfljót að fara í gang á sumrin og þetta sumarið fór hægt af stað en það er loksins að lifna yfir ánni.
Hálendisveiðin gengur vel
Það er víða veitt á hálendinu og veiðin er góð á flestum svæðum sem við höfum heyrt af og það eru margir til fjalla þessa helgina.
Hnúðlax farin að veiðast víða
Sumarið 2017 bar nokkuð á hnúðlaxi í nokkrum ám á landinu og þetta sumar virðist hann vera að koma í enn meiri mæli.
Eystri Rangá að nálgast 2.000 laxa
Eystri Rangá ber höfuð og herðar af ánum á þessu sumri sem stefnir í að verða það lélegasta víða síðan 2014.
Flott veiði í Hafralónsá
Veiðimenn á norðaustur hluta landsins eru ekki að kvarta yfir vatnsleysi eða fiskleysi en veiðitölur þaðan eru bara á góðu rólu.
Eystri Rangá komin yfir 1.000 laxa
Það verður að teljast afar fréttnæmt í veiðiheiminum að það sé fyrst núna verið að segja frá fyrstu ánni sem fer yfir 1.000 laxa í sumar.
Erlendum veiðimönnum mun fjölga
Ísland hefur í áratugi laðað til sín erlenda veiðimenn sem koma hingað vegna þeirra eistöku veiðigæða sem eru á landinu.
Styttist í 100 laxa daga í Eystri Rangá
Það er sem betur fer ekki bölmóður og erfið veiðiskilyrði í öllum ánum á landinum því það er hörkugangur í Eystri Rangá.
Skortur á veiðisiðferði við Þingvallavatn
Það er oft á tíðum mikið fjölmenni veiðimanna við Þingvallavatn og stundum er staðan þannig að það er ansi umsetið á bestu stöðunum.
Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum
Nýjar vikutölur voru birtar á miðvikudagskvöldið á vef Landssambands Veiðifélaga yfir veiðina í laxveiðiánum og það sýnir vel hversu erfið staðan er.
Yfir 800 laxar gengnir í Langá
Nýjar vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum verða birtar á vef Landssambands Veiðifélaga í kvöld og það er búist við afar litlum breytingum í flestum ánum sérstaklega á vesturlandi.
Laxarnir streyma upp á stöng úr Urriðafossi
Urriðafoss í Þjórsá er aflamesti laxveiðistaður landsins það sem af er sumri. Þar höfðu veiðst 502 laxar á stöng um miðja síðustu viku.
3.114 fiskar veiddust í vikunni í Veiðivötnum
Þriðja veiðivikan í Veiðivötnum var greinilega ágæt og þrátt fyrir krefjandi skilyrði suma dagana eru komnir yfir 10.000 fiskar á land.
Ytri Rangá að komast í gang
Ytri Rangá er að hrökkva í gang þessa dagana og þrátt fyrir að einhverjum þyki þetta seint í gang er þetta bara eðlilegt fyrir ánna.
Frábær byrjun í Hafralónsá
Hafralónsá hefur farið afskaplega vel af stað og er nú þegar strax í byrjun farin að ná veiðitölum í ánum á vesturlandi sem hafa verið opnar mun lengur.
Fimm stórlaxar á hitch í Víðidalsá
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður og vatnsleysi virðist samt sem áður eins og það komi einhver skot til að halda veiðimönnum við efnið.
Fín ganga í Langá í gærkvöldi
Það hefur verið beðið eftir því með nokkurri eftirvæntingu að það komi kippur í laxagöngur á vesturlandinu.
Mokveiða makríl við Keflavíkurhöfn
Stangveiði er ekki bara lax eða silungur og það er genginn í garð sá tími árs sem margir bíða spenntir eftir.
170 laxa vika í Eystri Rangá
Í vikulegum veiðitölum á vef Landssambands Veiðifélaga er ekki að sjá að allar árnar séu í slæmum málum og greinilegt að Eystri Rangá er í blómstra.
Vikulegar veiðitölur heldur lágar víðast hvar
Það sést á vikulegum veiðitölum á vef Landssambands Veiðifélaga að þetta er víðast hvar ansi erfitt sumar í laxveiðinni.