Innlent

Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, sem hefur fylgt Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, eins og skugginn síðustu daga hefur nú yfirgefið þau mið sem Bandero heldur sig á og sinnir öðrum verkefnum. Þar á meðal er vatnsskortur í Flatey.

Innlent

Funda um niður­stöðu héraðs­dóms

Fulltrúar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar funda í vikunni með lögmönnum sínum eftir að Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Vinnslustöðina, Hugin og Vís tryggingar af kröfum bæjarins. Bærinn krafðist tæpra tveggja milljarða vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu.

Innlent

Evru-Ísland óskalandið hve­nær kemur þú?

Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta á stofnfundi Áfram Ísland, samtök sem berjast fyrir Nei-i í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, þykir á sumum bæjum einhver mesta þrumuræða sem haldin hefur verið á Íslandi.

Innlent

Sögu­fræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykja­víkur

Flugvél af gerðinni Douglas DC 6B er núna á leiðinni til Reykjavíkur frá Salzburg í Austurríki. Áætlað er að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli um fimmleytið síðdegis og verði yfir nótt. Flugáhugamenn fá með komu hennar fágætt tækifæri til að sjá með eigin augum flugvél sem markaði djúp spor í flugsögu Íslendinga.

Innlent

„Þetta er eins og á tón­listar­há­tíð“

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“

Innlent

Krist­rún og Þor­gerður á NATO-fundinum í Ankara

Aukin framlög til varnarmála, jafnari skipting byrða og stuðningur við Úkraínu er talinn verða í forgrunni á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.

Innlent

Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálf­tímann

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm vændiskaupendur í júní í tengslum við alþjóðlegar lögregluaðgerðir gegn vændismansali. Málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og lögregla segir að kínverskar vændiskonur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftímann.

Innlent

„Þessi kona er ekkert skyni skroppin“

For­stjóri Hvals hf. sakar for­stjóra MAST um að hafa reynt að koma höggi á fyrir­tækið og starfs­menn þess með því að deila stað­setningu hval­veiði­skipa í eftir­lits­skýrslum. Hann segist ekki hafa tekið á um­deildu at­hæfi starfs­manns sem lék sér að limi hvalskrokks og bendir hvala­skoðunarfólki á að horfa í hina áttina þegar þeir nálgast skip við veiðar.

Innlent

Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum

Eigandi hunds sem fannst dauður við Langjökul á dögunum er enn ófundinn. Fjölmargir hafa þegar sett sig í samband við sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinnu. Meðal þess sem þeim hefur borist var ábending um hund sem týndist fyrir tæpum fjörutíu árum. Hann var ekki með eins litaða ól og sá sem fannst og er því útilokað að um sama hund sé að ræða.

Innlent

Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða

Rannsókn stendur enn yfir eftir að öldruð kona féll fram af svölum á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi sunnudaginn 28. júní með þeim afleiðingum að hún lést. Andlátið hefur verið rannsakað sem slys og verður það áfram nema eitthvað óvænt komi í ljós í niðurstöðum krufningar.

Innlent

Enginn hand­tekinn en á­fram á­ætlað að sömu aðilar hafi verið að verki

Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní.

Innlent

Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar

Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað Vinnslustöðina, Huginn og VÍS tryggingar af kröfum Vestmannaeyjabæjar vegna tjóns sem varð vatnsleiðslu þann 17. nóvember 2023. Málskostnaður var felldur niður.

Innlent