Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Lovísa Arnardóttir skrifar 17. október 2026 07:21 Önnur eftirförin var í Kópavogi og hin í Fossvogi. Vísir/Vilhelm Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða. Lögregla sinnti eftirför í Kópavogi og Fossvogi. Ökumennirnir reyndu báðir að flýja á fótum eftir að hafa stöðvað bíla sína.
Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða en hámarkshraði þar sem hann var stöðvaður er 90 kílómetrar á klukkustund. Í dagbók lögreglu kemur fram að maðurinn eigi von á sviptingu á ökuréttindum sínum í einn mánuð. Í dagbók kemur einnig fram að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur eftirförum í gærkvöldi, í Kópavogi og Fossvogi. Handtekinn eftir „stuttan sprett“ Í Kópavogi sinnti ökumaðurinn ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og hófst í kjölfarið eftirför. Ökumaðurinn ók langt yfir hámarkshraða og gegn rauðu ljósi samkvæmt dagbókinni og reyndi að komast undan á fæti eftir að hann stöðvaði loksins. Samkvæmt dagbók var hann fljótt yfirbugaður. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og sölu og dreifingu fíkniefna. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Hin eftirförin var í Fossvogi. Þar sinnti ökumaður heldur ekki stöðvunarmerkjum og reyndi eins og hinn að hlaupa undan lögreglu eftir að hafa stöðvað bílinn en var handtekinn eftir „stuttan sprett“. Hann er einnig grunaður um að aka undir áhrifum áfengis. Réðst að lögreglumönnum Í dagbók lögreglu kemur einnig fram að tilkynnt hafi verið um umferðarslys í Hafnarfirði en þar sem sá sem ók á flúði af vettvangi. Þegar lögregla fann bíl hans höfðu skráningarmerkin verið fjarlægð af bílnum. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni. Lögreglumenn höfðu svo afskipti af ölvuðum einstaklingi vegna líkamsárásar í miðborginni. Hann tók afskiptunum illa samkvæmt dagbókinni og réðst að lögreglumönnunum með höggum og spörkum. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Við leit á manninum fannst töluvert magn meintra fíkniefna. Alls dvöldu átta í fangaklefum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun og voru skráð 86 mál í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 í gær til fimm í morgun.
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Næturlíf Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira