Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 16. október 2026 09:08 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar. vísir/vilhelm „Veðurstofan þarf að brjóta odd af oflæti sínu og fara að gefa staðbundnari litakvarðaðar viðvaranir. Í dag er þeim „smurt út“ yfir heil spásvæði. Í gær var þannig allt Suðurland á appelsínugulu vegna hávaðaroks og sviptivinda í Eyjum og undir Eyjafjöllum. Einu staðbundnu viðvaranirnar eru fyrir höfuðborgarsvæðið!“
Þetta segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, í færslu á Facebook í kjölfar lægðarinnar sem gekk yfir landið á miðvikudaginn. Lægðin lenti hvað verst á Siglufirði þar sem að þök fuku af heimilum og töluvert tjón varð víða. Slökkviliðsstjórinn í Fjallabyggð kallaði til að mynda eftir nýrri vindmælingastöð í miðbæ Siglufjarðar á dögunum. Sterkasta hviðan sem fór yfir í Siglufirði var um 56 metrar á sekúndu. Það hefur verið gagnrýnt að nákvæmari viðvaranir hafi ekki verið gefnar út fyrir svæðið. Vindmælirinn við flugvöllinn dugi ekki til. „Það verður að segjast eins og er að fárviðrið sem skall á um kl. 11 í gær, miðvikudag, kom mörgum í opna skjöldu, nema kannski Siglfirðingum sjálfum sem þekkja þessar aðstæður í gegnum tíðina,“ segir Einar í færslu sinni. „Allt ætlaði um koll að keyra á Sigló“ Hann bendir á að háar fjallsbrúnirnar á milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar veiti alla jafna skjól í austurátt. Í austanvindi finnist því lítið fyrir hviðum í bænum, nema þegar verulega hvasst verður í fjallahæð og vindáttin aðeins norðan við austur. Þá verði til snarpar bylgjur og hnútar sem skella á byggðinni. „Sagan síðustu 100 árin geymir fjölmörg slík tilvik, t.a.m. 26. okt. 1982 þegar allt ætlaði um koll að keyra á Sigló. Þessi fjallaköst í sterkri ANA-átt eru svo miklir tjónvaldar í Siglufirði að brýnt er að skoða þau ofan í kjölinn og hvað þurfi til svo þessar aðstæður skapist.“ Hann rifjar upp dæmi frá árinu 2016 þegar óveður kom Siglfirðingum í opna skjöldu en Veðurstofunni einnig. Þá hafi átt að skoða mælingar á svæðinu en þrisvar síðan hefur líkt veður komið aftan að fólki að mati Sveinbjörns. „Sagt var frá því að í Siglufirði hefði vindur mælst allt að 55 m/s í hviðum. Það er væntanlega einhver heimastöð og ekki sýnileg á þessum almennu síðum með veðurmælingum. Einhver sagði að mælingin væri frá gæsluskipi sem bundið var við bryggju.“ Rauða viðvörunin hefði verið í nærri lagi Hann segir það augljóst að veðurstöðin í Siglufirði sé alls ekki nægilega vel staðsett. Hann tekur undir að einkar mikilvægt sé að setja upp nýjan vindmæli á þeim slóðum þar sem veðrið verður verst. „Það er nefnilega þannig nú orðið að aftakavindur sem ekki mælist er varla til í hugum annarra en þeirra sem verða fyrir honum. Veðurstofan gaf reyndar út appelsínugula viðvörun fyrir spásvæðið Strandir og Norðurland vestra. Fjölþætt viðvörun sem innihélt hið „staðlaða orðalag“ um snarpar hviður og hættu á foktjóni. Aðstæður í Siglufirði voru á mörkum þess að réttlætt hefði rauða viðvörun.“ Hann kallar því eftir því að Veðurstofan brjóti odd af oflæti sínu og gefi út staðbundnari viðvaranir. „En Siglfirðingar eiga að fara fram á úrbætur og krefjast þess að fá vindmæli, enda ærnar ástæður til. En væntanlega er tómahljóð í kassanum hjá Veðurstofunni um þessar mundir vegna boðaðs niðurskurðar í fjárframlögum til umhverfismála,“ segir hann og heldur áfram. „Þá er bara að fá þingmenn til að taka málið upp á Alþingi og skapa þannig umræðu og pressu. Annað eins hefur nú verið gert og af minna tilefni.“
Veður Fjallabyggð Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Sjá meira