Innlent „
199 200 201 202 203 204 205 206 207 … 334 ›
„Það er norskur sigur í dag“ Í dag klukkan eitt í dag fer Gunnar Örn Hauksson flugmaður til sýslumanns og gerir honum grein fyrir því að hann eigi ekki hundrað milljónir króna til að greiða tryggingu vegna lögbannskröfu á sjókví úti fyrir landi hans á Snæfjallaströnd. Innlent 2.5.2024 11:45
Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á málefnum Grindvíkinga en í morgun opnaði bakarí bæjarins og veitingastaður. Innlent 2.5.2024 11:35
Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu. Innlent 2.5.2024 11:11
Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Friðrik Jónsson, sendifulltrúi og fyrrverandi formaður BHM, tekur við stöðu sendiherra Íslands í Póllandi þann 1. ágúst næstkomandi. Innlent 2.5.2024 11:10
Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var í Spjallinu hjá Frosta Logasyni og viðraði þar þá hugmynd sína að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta til árs fyrir unga fólkið. Innlent 2.5.2024 10:26
Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Íslenskur karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborg fyrir rúmum fimm vikum. Innlent 2.5.2024 09:42
Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Prófessor í stjórnmálafræði segir betra fyrir forsetaframbjóðendur að hafa allt uppi á borðum. Í litlu samfélagi séu margar furðusögur á sveimi og mikilvægt fyrir viðkomandi að fá tækifæri til að leiðrétta þær. Þá segir hún forseta í raun gefa upp frelsi sitt þegar hann er kjörinn, þar sem hann sé á sólarhringsvakt alla daga ársins. Innlent 2.5.2024 09:14
Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan átta í morgun eftir að eldur kom upp í ruslageymslu fjölbýlishúss í Hafnarfirði. Innlent 2.5.2024 08:20
Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Seinni umferð biskupskjörs hefst klukkan 12 í dag og stendur yfir til klukkan 12 þriðjudaginn 7. maí næstkomandi. Í kjöri eru Guðmundur Karl Brynjarsson og Guðrún Karls Helgudóttir. Innlent 2.5.2024 08:12
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1.5.2024 23:00
Stutt í næsta gos komi til gosloka Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur. Innlent 1.5.2024 22:01
„Það er hart sótt að okkar fólki“ Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjöldi landsmanna kom saman í kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur og var gengið niður að Ingólfstorgi þar sem fram fór fjölmennur útifundur. Innlent 1.5.2024 21:01
Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Hópur stúdenta tók þátt í samstöðulautarferð fyrir Palestínu á túninu fyrir framan Háskóla Íslands seinni partinn í dag. Skipuleggjandi segir mikilvægt að hreyfingin fái leyfi fyrir viðburði af þessu tagi svo hægt sé að krefja skólann aðgerða sem snúa að samstöðu með Palestínu. Innlent 1.5.2024 18:12
Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði um stöðuna við Svartsengi. Innlent 1.5.2024 18:00
Úrskurðurinn felldur úr gildi Landskjörstjórn braut á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þegar þeir úrskurðuðu að meðmælalisti forsetaframbjóðandans Viktors Traustasonar væri ógildur. Úrskurðarnefnd kosningamála hefur því fellt úrskurðinn úr gildi. Innlent 1.5.2024 17:20
Vill hinn almenna launamann á þing Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist vilja hinn almenna launamann á þing. Hún segist telja það mikilvægt að framboðslistar flokksins endurspegli breyttan flokk. Innlent 1.5.2024 16:30
Sinueldur í Munaðarneslandi Sinueldur logar í Munaðarneslandi á Vesturlandi. Viðbragðsaðilum hefur tekist að ná tökum á brunanum en enn logar í einhverjum glæðum. Svæðið sem brann var ekki stórt en á mjög erfiðu svæði þar sem eldurinn átti upptök sín í birkiskógi. Innlent 1.5.2024 16:15
Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var harðorð í garð íslenskra stjórnvalda í ræðu hennar á útifundi á Ingólfstorgi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins í dag. Hún segir íslensk stjórnvöld haldin sjúkri undirgefni gagnvart Bandaríkjunum. Innlent 1.5.2024 15:27
Barn á Akureyri greindist með kíghósta Kíghósti hefur greinst í barni í Brekkuskóla á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu Landlæknis. Minnt er á mikilvægi bólusetninga gegn sjúkdómum sem kíghósta, en þátttaka barna í bólusetningum hefur dregist saman síðustu ár. Innlent 1.5.2024 14:14
Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Eystri-Fellsfjara við Jökulsárlón er á lista yfir bestu strandir heims að mati ferðamálasérfræðinga. Þar er hún í fertugasta og fyrsta sæti af fimmtíu. Listinn er uppfærður á hverju ári og áður var Reynisfjara einnig á honum. Innlent 1.5.2024 13:24
Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Hatíðarhöld ASÍ í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí 2024 verða víða um land í dag. Á Ingólfstorgi verður samstöðufundur Alþýðusambands Íslands, með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Innlent 1.5.2024 13:01
Sniglar hægja á umferð Töluverð umferðarteppa myndaðist á Hringbraut í dag vegna hópaksturs bifhjólasamtakanna Snigla. Innlent 1.5.2024 12:46
Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Formaður Samtakanna '78 segir það áhyggjuefni þegar reynt er að nota kynhneigð forsetaframbjóðanda til að gera hann tortryggilegan. Baldur Þórhallsson var spurður í viðtali í vikunni hvort mynd af honum á stað sem sagður er vera kynlífsklúbbur geti skaðað ímynd forsetaembættisins. Innlent 1.5.2024 12:08
Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Hátíðarhöld fara fram um allt land í dag vegna Verkalýðsdagsins 1. maí. Formaður VR segir verkalýðsbaráttuna sjaldan hafa verið jafn mikilvæga og í dag. Innlent 1.5.2024 11:55
Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli Formaður Samtakanna '78 segir ekki slæmt að kynhneigð forsetaframbjóðenda sé til umræðu. Það sé hins vegar ekki gott að gerð sé tilraun til að gera frambjóðendur tortyggilega vegna samkynhneigðar. Rætt verður við formann Samtakanna í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 1.5.2024 11:43
„Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Samtökin 78 hvetja íslenskt samfélag í heild sinni til að halda sig í málefnalega umfjöllun í aðdraganda kosninga. Það gera þau í tilefni af umfjöllun um einkamálefni Baldurs Þórhallssonar. Innlent 1.5.2024 09:46
Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Blásið verður til kröfugöngu og hátíðarhalda víða um land í dag í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí. Innlent 1.5.2024 08:33
Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Lögregla heldur spilunum afar þétt að sér við rannsókn á þjófnaði á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborginni fyrir rúmum fimm vikum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að reynt hafi verið að koma lituðum peningum í umferð. Innlent 1.5.2024 07:01
Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Karlmaður hlaut í dag sextán mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að flytja til landsins tæplega 700 grömm af kókaíni. Maðurinn játaði að hafa flutt efnin til Íslands, en vildi meina að þau hefðu verið til einkaneyslu. Innlent 30.4.2024 23:37
Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur sett Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Innlent 30.4.2024 22:47