Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Samúel Karl Ólason skrifar 10. mars 2026 09:05 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Ríkisstjórn hans er sögð andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið. AP/Mark Schiefelbein Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, vill halda Íslandi utan Evrópusambandsins, þar sem innganga myndi veikja samningsstöðu Bandaríkjanna gagnvart Íslandi hvað varðar viðskipti og koma niður á varnarmálum Bandaríkjanna. Bandarískur ráðgjafi breska stjórnmálamannsins Nigel Farage, formanns breska flokksins Reform, er sagður hafa komið tvisvar sinnum til Íslands á þessu ári.
Sá ráðgjafi er sagður hafa rætt við íslenska stjórnmálamenn í Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Þetta er meðal þess sem haldið er fram í grein á norska vefnum Altinget.no, þar sem vitnað er í meðlimi teymisins sem koma að því að undirbúa Billy Long fyrir veruna sem sendiherra hér á landi. Sjá einnig: Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Í greininni segir að staða Íslands hafi fengið aukið vægi vestanhafs á dögunum eftir Hringborð norðurslóða í Róm á dögunum. Þar hafi Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, til að mynda leitt umræður um fullveldi á norðurslóðum með hliðsjón af nýrri heimsmynd. Þar hafi hún talað um mikilvægi þess að veita Kínverjum aðkomu að samráði um norðurslóðir. Því eru Bandaríkjamenn alls ekki sammála. Til dæmis má benda á það að meint umsvif Kínverja á og kringum Grænland er stór ástæða fyrir því að Trump hefur haldið því fram að Bandaríkin verði að eignast ríkið. Vilja halda ríkjum Evrópu einöngruðum Í grein Altinget segir einnig að það sé Bandaríkjunum í hag að halda ríkjum Evrópu utan ESB og einöngruðum. Samstaða ríkjanna komi niður á samningsstöðu Bandaríkjanna og er vísað til þess að Noregur, sem standi eitt og sér, hafi nýlega gert mjög slæmt viðskiptasamkomulag við Trump. Vísir er búinn að senda fyrirspurnir um málið á utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og sendiráðið hér á landi. Þegar tilkynnt var að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB myndi fara fram í ágúst sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, að búast mætti við því að erlend ríki reyndu að hafa afskipti af kosningunni. Slík afskipti yrðu ekki liðin, hvort sem þau væru af hálfu Evrópusambandsins eða annarra ríkja. Sjá einnig: Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður „Það má búast við því að erlend ríki geti verið með óbein afskipti af okkur. Þá skiptir þess vegna máli að við tökum yfirvegaða og upplýsta umræðu,“ sagði Þorgerður. Hér að neðan má sjá færslu norsku blaðakonunnar sem skrifaði greinina á vef Altinget.
Utanríkismál Evrópusambandið Donald Trump Bandaríkin Noregur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira