Innlent
208 209 210 211 212 213 214 215 216 … 334 ›
Myndaði annan mann í sturtuklefanum Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að taka ljósmyndir af öðrum manni í sturtuklefa. Innlent 23.4.2024 09:30
Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, segir það eðlilegt að manndrápsmálum fjölgi samhliða fjölgun mannfjöldans á Íslandi. Karlmenn séu stór hluti þeirra sem hafa flutt til landsins, ungir karlmenn, og tölfræðilega sé það líklegra að manndráp og önnur afbrot eigi sér stað meðal þeirra. Innlent 23.4.2024 08:53
Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Tveir félagar í Kirkju sjöunda dags aðventista (KSDA) bera stjórn safnaðarins þungum sökum og segja að þar hafi verið framið valdarán. Þeir segja söfnuðinn klofinn en undir lúra milljarða samningar þar sem heilt fjall er mulið og selt úr landi. Innlent 23.4.2024 08:50
Pétur Guðfinnsson er látinn Pétur Guðfinnsson, fyrrverandi útvarpsstjóri og framkvæmdastjóri Sjónvarpssins, er látinn. Hann lést á dvalarheimilinu Grund, 94 ára að aldri. Innlent 23.4.2024 07:55
Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins, hefur beðist afsökunar á að hafa kallað manninn sem braut allar rúður verslunar verslunar Fiskikóngsins á Sogavegi í Reykjavík á dögunum „fífl“. Hann birtir afsökunarbeiðnina á samfélagsmiðlum og í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Hann segir nú ónefnda ráðherra í ríkisstjórn vera „fífl“. Innlent 23.4.2024 07:21
Rafmagnslaust á Blönduósi Rafmagnslaust er á Blönduósi og verið er að leita að bilun. Rafmagnsbilun hefur verið hið minnsta síðan klukkan tíu í kvöld. Innlent 22.4.2024 23:09
Segja baráttuna bara rétt að hefjast Þær Helga Þórisdóttir og Ásdís Rán Gunnarsdóttir, forsetaframbjóðendur, segja kosningabaráttuna rétt að byrja og þær muni láta ljós þeirra skína. Ásdís er nýbúin að safna nægilega mörgum undirskriftum og Helga segist á lokametrunum með það. Innlent 22.4.2024 22:47
Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Landeigandi á Sandeyri á Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi krefst þess að sýslumaðurinn á Vestfjörðum leggi lögbann við því að Arctic Sea Farm hf. hefji starfsemi sjókvíaeldis við strönd jarðar sinnar. Segir hann að leyfi sem þegar hafa verið veitt starfseminni séu ólögmæt og að hluti sjókvíanna séu beinlínis á netlög jarðareignar hans, en netlög kallast sá hluti jarða sem land eiga að sjó og ná út í sjóinn. Innlent 22.4.2024 22:36
Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Fastagestur Sundhallar Reykjavíkur segir að boðaðar viðgerðir á innilaug feli í sér „ófyrirgefanlegan skaða“ á hönnun Guðjóns Samúelssonar. Forstöðukona Sundhallarinnar skilur áhyggjur fastagesta en segir breytingarnar nauðsynlegar. Innlent 22.4.2024 22:21
Úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á Akureyri Karlmaður hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við andlát konu í fjölbýlishúsi á Akureyri. Talið er að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 22.4.2024 20:41
Mikilvægt skref en megi gera betur Öryrkjar munu hafa meira svigrúm til að afla sér tekna án þess að lífeyrir verði skertur nái frumvarp félagsmálaráðherra fram að ganga. Varaformaður ÖBÍ segir þetta mikilvægt skref en að gera megi betur. Innlent 22.4.2024 20:00
Katrín og Baldur takast enn á um forystuna Flestir ætla að kjósa Katrínu Jakobsdóttur og Baldur Þórhallsson samkvæmt fimm skoðanakönnunum sem birtar hafa verið síðast liðinn hálfan mánuð. Halla Hrund Logadóttir er farin að narta í hælana á Jóni Gnarr í þriðja sætinu. Innlent 22.4.2024 19:41
Fjögurra milljarða króna tekjur á ári af spilakössum Tekjur Íslandsspila og Happdrættis Háskóla Íslands af spilakössum árið 2023 námu rétt tæpum fjórum milljörðum króna og hefur upphæðin farið vaxandi úr tveimur milljörðum árið 2020. Innlent 22.4.2024 19:25
Katrín, Halla og Steinunn Ólína mætast í Pallborðinu Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að bjóða til sín forsetaframbjóðendum í Pallborðið, sem sýnt er í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Innlent 22.4.2024 19:00
Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum. Innlent 22.4.2024 18:40
Morðrannsókn á Akureyri og sundgestir í uppnámi Kona fannst látin í fjölbýlishúsi í Naustahverfinu á Akureyri á fimmta í nótt og grunur er um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 22.4.2024 18:01
Vonast til að afgreiða hvalveiðileyfi eins hratt og mögulegt er Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra vonast til þess að afgreiða umsóknir um leyfi til langreyða og hrefnu eins hratt og hún mögulega getur. Enginn ákveðinn málsmeðferðartími sé í lögum um hvalveiðar og hún hafi ákveðið að gefa sér tíma til að fara vel yfir málið þar sem engin launung sé um það að miklar og skiptar skoðanir séu á hvalveiðum. Innlent 22.4.2024 17:53
Tveimur sleppt úr haldi á Suðurlandi Forsvarsmenn Lögreglunnar á Suðurlandi hafa aflétt gæsluvarðhaldi yfir tveimur af þeim fjórum mönnum sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær, vegna manndráps í Kiðjabergi í Grímsnes- og Grafningshreppi um helgina. Innlent 22.4.2024 17:39
Átta hundrað milljóna afgangur í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær skilaði 808 milljóna króna rekstrarafgangi á síðasta ári. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs í dag þegar ársreikningur sveitarfélagsins var lagður þar fram. Ári áður var rekstrarafgangurinn 890 milljónir. Innlent 22.4.2024 17:28
Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var á ferð um Suðurnes þegar Vísir náði í hana. Hún var að ganga inn á kosningafund á Hótel Keflavík. Hún sagði viðtökurnar á Suðurnesjum slíkar að ef væri miðað við þær væri hún með miklu meira fylgi en menn almennt ætla. Innlent 22.4.2024 17:18
Sjö sóttu um embætti skólameistara Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Kópavogi. Innlent 22.4.2024 17:17
Íbúar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarðhæðinni Íbúar í fjölbýlishúsi í Naustahverfinu á Akureyri þar sem kona fannst látin á fimmta tímanum í nótt virðast flestir hafa sofið á sínu græna eyra í nótt og ekki tekið eftir neinu. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni sem handtekinn var á vettvangi vegna málsins. Innlent 22.4.2024 15:57
Ásdís Rán búin að safna undirskriftum Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, hefur safnað tilskildum fjölda undirskrifta til þess að geta formlega boðið sig fram til forseta. Innlent 22.4.2024 15:47
Kristrún segir ríkisstjórnina vilja gefa auðlindir þjóðarinnar Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hjólaði í Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, nýjan matvælaráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnartíma nú rétt í þessu. Hún hélt því fram að frumvarp sem Bjarkey mælir fyrir á morgun gangi út á að gefa sjókvíaeldisfyrirtækjum firðina um aldur og ævi. Innlent 22.4.2024 15:39
Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði Sjö mínútur liðu frá því þjófarnir í Hamraborg brunuðu í burtu með sjö peningatöskur og þar til upp komst um þjófnaðinn. Þjófavarnakerfi í bíl Öryggismiðstöðvarinnar fór ekki í gang og engin melding barst fyrirtækinu um þjófnaðinn. Það var ekki fyrr en öryggisverðirnir komu að bílnum að upp komst um glæpinn. Þeir eru reynslumiklir og í áfalli að sögn framkvæmdastjóra. Innlent 22.4.2024 14:26
Voru að byggja annan bústað Mennirnir sem eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát manns í sumarhúsi í Kiðjabergi voru að smíða annan bústað í sumarhúsabyggðinni. Innlent 22.4.2024 14:05
Skerjafjarðarskáldið segir Höllu Hrund eina með öllu Kristján Hreinsson skáld er einn eindregnasti stuðningsmaður Höllu Hrundar Logadóttur í baráttunni um Bessastaði og hann virkjar skáldagáfu sína henni til dýrðar. Innlent 22.4.2024 13:31
Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi skýtur föstum skotum á Katrínu Jakobsdóttur meðframbjóðanda sinn í nýjum pistil. Innlent 22.4.2024 13:16
Stefnir í spennandi forsetakosningar Halla Hrund Logadóttir bætir við sig miklu fylgi samkvæmt nýrri könnun Prósents fyrir Morgunblaðið þar sem Baldur Þórhallsson nýtur mest fylgis. Stjórnmálafræðingur segir hægt að lesa það eitt út úr könnunum undanfarnar vikur að forsetakosningarnar verði mjög spennandi. Innlent 22.4.2024 12:25
Grunur um manndráp á Akureyri Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar andlát konu sem fannst látin í íbúðarhúsi á Akureyri í nótt. Einn hefur verið verið handtekinn vegna málsins. Innlent 22.4.2024 12:20