Strætó fór útaf á Holtavörðuheiði Samúel Karl Ólason skrifar 26. febrúar 2026 23:09 Færðin hefur verið slæm víða um land í kvöld og hefur mörgum vegum verið lokað. Vísir/Atli Ísleifsson Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum.
Björgunarsveitir á suðvestur- og vesturhluta landsins hafa fengið fjölda útkalla frá klukkan fimm í dag, samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu. Fyrsta útkallið var hjá Mannbjörg í Þorlákshöfn þar sem beðið var um aðstoð í bænum vegna óveðurs. Nokkru síðar bárust Hjálparsveit skáta í Reykjavík og Kyndli í Mosfellsbæ beiðni um aðstoð frá tveimur mönnum sem höfðu fest fjórhjól í djúpum snjó á Mosfellsheiði. Mennirnir fundust fljótt en þeir voru fluttir blautir og kaldir í bíla björgunarfólks. Hjólin voru losuð og keyrð af heiðinni af björgunarmönnum og skilin þar eftir. Á sjöunda tímanum barst svo áðurnefnt útkall vegna strætisvagnsins á Holtavörðuheiði. Hátt í tuttugu björgunarmenn fóru í það verkefni og fluttu farþega vagnsins niður af heiðinni og voru þeir sóttir í Staðarskála og fluttir áleiðis norður. Ökumaður strætisvagnsins var sóttur að sunnan, samkvæmt tilkynningu Landsbjargar. Á Snæfellsnesi var björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ kölluð út til að aðstoða ferðamenn sem höfðu fest bíl á sunnanverðri Fróðarárheiði. Bíllinn var losaður og hélt fólkið sinni ferð áfram. Ferðafólk lenti svo í kvöld í vandræðum á Hellisheiði og í Þrengslum, þar sem orðið var nokkuð blint og færð að spillast. Þá var Hjálparsveit skáta í Hveragerði og Mannbjörg í Þorlákshöfn kallaðar út til að aðstoða. Báðum leiðunum var lokað og fjölmörgum bílstjórum mun hafa verið hjálpað.
Veður Björgunarsveitir Umferð Færð á vegum Umferðaröryggi Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira