Innlent

Boðar frekari niður­skurð síðar í sumar

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir von á fleiri hagræðingaraðgerðum síðar í sumar. Ekki sé tímabært að kynna þær en nú verði unnið að þeim sem kynntar voru í vikunni. Sem dæmi sé ráðningabann, skoða eigi viðveru starfsmanna og utanlandsferðir þeirra.

Innlent

Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“

Einar Dagur Brynjarsson, sautján ára strákur sem var ljúka fyrsta ári í  Verzlunarskólanum, hjólaði af stað fyrir tíu dögum í hringferð til styrktar Hringnum. Einar Dagur stefnir á að ljúka hringferðinni í dag við Barnaspítalann. Hægt verður að fylgja honum síðustu kílómetrana frá Litlu Kaffistofunni en þar ætlar hann að vera um klukkan 15 í dag.

Innlent

For­setinn og borgar­stjórinn í Sprengi­sandi

Páll Magnússon stýrir Sprengisandi í dag og það er af nægu að taka. Fyrst mæta Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, og Jóhann Helgi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. 

Innlent

Réðst að hópi drengja í sund­laug

Karlmaður réðst að hópi drengja í sundlaug í vesturhluta borgarinnar eftir að þeir renndu sér á eftir honum í rennibraut og lentu á manninum og ungum syni hans. Greint er frá málinu í dagbók lögreglu en ekki er tekið fram hvar atvikið átti sér stað.

Innlent

Mats­gerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir á­hrifum slævandi lyfja

Landsréttur hefur mildað dóm yfir manni sem meðal annars var dæmdur í héraði fyrir að hafa í fjögur skipti ekið undir áhrifum slævandi lyfja á Akureyri. Maðurinn var upphaflega dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra, en Landsréttur sýknaði manninn af því að hafa ekið undir áhrifum og mildaði dóminn í þrjá mánuði.

Innlent

Sau­tján ára Ís­lendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Dan­mörku

Dómstóll í Næstved á Sjálandi í Danmörku hefur dæmt sautján ára Íslending, sem búsettur er í Danmörku, í ellefu mánaða fangelsi fyrir að hafa gengið berserksgang við lögreglustöð og haft í hótunum við lögreglu. Íslendingurinn neitaði sök í málinu en bar við sig minnisleysi vegna ótæpilegrar áfengisneyslu. Með brotunum rauf hann skilorð.

Innlent

„Málið er í öllu til­liti afar ó­heppi­legt“

Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, segir mál Margrétar Friðriksdóttur og ítrekaðar áminningar lögmanns til úrskurðarnefndar lögmanna til þess fallið að grafa undan trausti á dómstólum og til lögmanna, sem saman séu tveir hornsteinar réttarríkisins. Hann segir vægi réttarríkisins hafa orðið æ meira á liðnum áratugum og segir mikilvægt að gæta þess að borgarar geti treyst á dómstóla og lögmenn.

Innlent

Hætta á að náms­fram­boð dragist saman

Bæjarstjóri Akureyrar segir eftirspurn eftir námi í bænum meiri en kerfið ræður við. Ríkið þurfi að grípa til aðgerða og styðja við menntastofnanir bæjarins. Hætta sé á að námsframboð dragist saman. 

Innlent

„Þegar við komum til Ís­lands munum við stöðva hann“

Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi.

Innlent

Þörf sé á að endur­hugsa fjár­mögnum NPA-þjónustu

Í hádegisfréttum verður rætt við formann velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem segir að breyta þurfi algjörlega hvernig NPA-þjónusta sveitarfélaga sé fjármögnuð. Þá fjöllum við um andlega heilsu ungs fólks en þeim hefur fækkað á síðastliðnum áratug sem telja hana góða.

Innlent

Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst

Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því.

Innlent

For­eldrar standi eftir „einir, ör­magna og án stuðnings“

Ingibjörg Einarsdóttir, móðir eins drengsins sem fór til Suður-Afríku í meðferð, segist ekki hafa þurft að lesa nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar um innleiðingu farsældarlaganna til að vita að barnaverndarkerfið sé að bregðast þeim börnum sem þurfa á mestri aðstoð að halda. Hún segir tíma til að framkvæma frekar en að „skrifa falleg lög“.

Innlent

Gotta-rennibraut lokað vegna slysa­hættu

Vegna slysahættu hefur Gotta-rennibrautinni í sundlauginni á Selfossi verið lokað. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Árborg kemur fram að rennibrautinni hafi verið lokað tímabundið vegna slysa barna. 

Innlent