Sex atvinnulausir um hvert laust starf Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2026 12:51 Hlutfall atvinnulausra um hvert starf hefur ekki verið svo hátt síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar stóð sem hæst. Vísir/Vilhelm Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé.
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum óbreyttum í átta prósentum. Samkvæmt gögnum bankans hefur atvinnuleysi aukist samhliða fækkun lausra starfa. Hlutfall atvinnulausra á móti lausum störfum hefur hækkað hratt að undanförnu og nálgast nú sex. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. Vísir/Anton Brink Hlutfallið byggist á tölum Hagstofunnar um atvinnulausa samkvæmt vinnumarkaðskönnun og laus störf samkvæmt fyrirtækjakönnun. Viðurkennir hættu á of miklu atvinnuleysi Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var spurður hvort hætta væri á að bankinn héldi vöxtum of háum of lengi og atvinnuleysi ykist meira en nauðsynlegt væri. „Það er alveg hætta á því, já.“ Ásgeir segir bankann hafa miklar áhyggjur af þróuninni á vinnumarkaði. Þar sé að kólna og atvinnuleysi að aukast. Launafólki fækkar á almennum markaði Gögnin sem bankinn kynnti sýna að launafólki á almennum vinnumarkaði fækkaði að meðaltali um 0,7 prósent milli ára á tímabilinu janúar til júlí. Á vinnumarkaðnum í heild fjölgaði launafólki um 0,3 prósent. Hér er ein af glærum sem sýndar voru til að varpa ljósi á hvernig efnahagsumsvif hafa kólnað og mikill slaki myndast á vinnumarkaði. Til samanburðar nam árleg fjölgun að meðaltali fimm prósentum á almennum vinnumarkaði á árunum 2021 til 2024 og 3,9 prósentum á vinnumarkaðnum í heild. Í kynningu bankans kemur jafnframt fram að hægt hafi á vexti einkaneyslu og hagvöxtur haldist tiltölulega lítill. Sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót Þrátt fyrir kólnunina á vinnumarkaði telur Ásgeir ekki útlit fyrir að vextir verði lækkaðir á þessu ári. Verðbólga mælist nú 5,9 prósent. „Ég er ekki að sjá það að við getum lækkað vexti fyrir áramót.“ Hann bindur hins vegar vonir við að verðbólga fari að hjaðna eftir áramót, sérstaklega ef ró næst á vinnumarkaði og áform fjárlaga ganga eftir.
Vinnumarkaður Seðlabankinn Kjaramál Tengdar fréttir Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. 7. október 2026 11:11 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira
Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. 7. október 2026 11:11