Innlent
219 220 221 222 223 224 225 226 227 … 334 ›
Handtekin í gær og les Bjarna pistilinn í dag Listakonan Margrét Rut Eddudóttir var ein þeirra sem var handtekin á mótmælum við Bessastaði í gær. Hún vill meina að það sé ofbeldi að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fái að valsa um valdastöður í íslensku samfélagi. Innlent 10.4.2024 22:10
Rottan dreifi sér og sæki í gullnámuna Eitt óvinsælasta dýr landsins, rottan, hefur dreift sér töluvert á höfuðborgarsvæðinu og sést á fleiri stöðum en áður. Þetta segir meindýraeyðir sem telur lífrænu sorptunnurnar meðal sökudólga. Innlent 10.4.2024 20:40
Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“ Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum. Innlent 10.4.2024 20:01
Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10.4.2024 19:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók til starfa í dag og ráðherrar komu sér fyrir í nýjum ráðuneytum. Á Alþingi sköpuðust heitar umræður um yfirlýsingu forsætisráðherra og mótmælandi var fjarlægður af þingpöllum. Við sjáum myndir frá viðburðaríkum degi í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þingmenn í beinni útsendingu. Innlent 10.4.2024 18:01
Óþægur strætófarþegi sparkaði í lögregluþjón Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum vegna slysa í dag. Á Völlunum í Hafnarfirði lenti vinnumaður undir þakplötu, í Kópavoginum datt vinnumaður úr stiga og í miðborginni féll maður í götuna. Nokkrar tilkynningar um þjófnað úr verslunum bárust lögreglu og sparkaði óþægur strætófarþegi í lögregluþjón. Innlent 10.4.2024 17:55
Betur fór en á horfðist Ástand manns sem lenti undir þakplötu í vinnuslysi á Völlunum í Hafnarfirði í dag er gott eftir atvikum, segir Þorsteinn Gunnarsson, aðstoðarvarstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 10.4.2024 16:57
Ávarpaði þjóðina vegna „breyttrar stöðu“ Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi og bílainnflytjandi, birti ávarp á samfélagsmiðlum í kvöld þar sem hann sagði styrjöld hafna milli Íslands og Rússlands. Hann segist hafa í aðdraganda forsetakosninganna 2016 varað við að slíkt væri yfirvofandi. Innlent 10.4.2024 16:47
Skömmuð af matvælaráðuneytinu degi áður en hún tók við Degi áður en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra fékk atvinnuveganefnd Alþingis, nefnd sem hún sat í þar til hún tók við ráðuneytinu, bréf frá matvælaráðuneytinu þar sem breytingar og vinnubrögð nefndarinnar voru gagnrýnd. Innlent 10.4.2024 16:44
Vinnuskólabörnin fá loksins launahækkun Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hækka laun nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 2024. Vinnuskólabörnin fá því sína fyrstu launahækkun í tvö ár. Innlent 10.4.2024 16:16
Fyrrverandi þingmaður ráðinn yfirlæknir Ólafur Þór Gunnarsson hefur verið ráðinn yfirlæknir endurhæfingarhluta öldrunarlækninga á Landspítala frá 1. maí 2024. Hann sat á þingi fyrir Vinstri græn á árunum 2013 og 2017 til 2021. Innlent 10.4.2024 15:51
„Þetta er sama fólkið með sömu stefnu í nýjum stólum“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var fyrst upp í ræðupúlt eftir að Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra flutti ávarp sitt á þingi og hún gaf ekki mikið fyrir afrekaskrá ríkisstjórnarinnar. Innlent 10.4.2024 15:40
Kennari sem sló barn fær milljónir Hæstiréttur hefur dæmt Dalvíkurbyggð til þess að greiða konu tæpar ellefu milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Konan var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir veita þrettán ára stúlku kinnhest. Innlent 10.4.2024 15:34
Magga Stína hrópaði að Bjarna af þingpöllunum Margréti Kristínu Blöndal, Möggu Stínu, var vísað af pöllum Alþingis eftir að hún hrópaði að forsætisráðherra Bjarna Benediktssyni á meðan hann flutti yfirlýsingu sína á þingi í dag. Innlent 10.4.2024 15:18
Guðmundur Andri ritar bók um Feðraveldið Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur skrifaði í gær undir útgáfusamning við Hólmfríði Matthíasdóttur og birti mynd af útgáfusamningnum. Innlent 10.4.2024 15:00
Katrín miklu fljótari en Baldur og Jón Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, opnaði fyrir meðmælasöfnun á Íslandi.is klukkan 13. Klukkan 13:54 hafði hún náð tilskildum fjölda meðmæla. Hún var því tæpum klukkutíma fljótari að ná lágmarkinu en þeir Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Innlent 10.4.2024 14:51
Viss um að Svandís yfirgefi Bjarna eins og Katrín Þingkona Viðreisnar er viss um að ríkisstjórnin lifi ekki af kjörtímabilið. Þingkona Pírata segist þreytt á því að hugsa um það og segist hætt að hugsa um það. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur fullvíst að ríkisstjórnin þrauki fram að kosningum næsta haust. Þetta kom fram í Pallborði á Vísi í dag. Innlent 10.4.2024 14:50
Bein útsending: Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun fara með yfirlýsingu fyrir Alþingi klukkan 15. Þetta er fyrsti þingfundur eftir páskafrí og eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér sem forsætisráðherra og tilkynnti framboð til embættis forseta. Innlent 10.4.2024 14:27
Fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt vinnuslys Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að byggingasvæði á Völlunum í Hafnarfirði á öðrum tímanum í dag vegna vinnuslyss. Karlmaður festist undir þakplötu sem verið var að steypa og gaf sig. Hann var klukkustund síðar fluttur á sjúkrahús. Innlent 10.4.2024 13:53
Byggja þurfi upp örugga framtíð fyrir börnin í Grindavík Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir brýnt að leita allra leiða til að tryggja að börnin í Grindavík geti snúið þangað aftur og litið glaðan dag. Grindvíkingar kunni vel að meta samhuginn sem þjóðin hefur sýnt undanfarna mánuði. Innlent 10.4.2024 13:49
Ætla að vera aðeins „hógværari“ en Ölfus við gerð bæjarskiltis Til stendur að reisa nokkur skilti við bæjarmörk Hveragerðisbæjar á þessu ári. Í minnisblaði menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar bæjarins er lagt til að vera ögn „hógværari“ en nágrannarnir í Ölfusi við gerð skiltanna. Innlent 10.4.2024 13:24
Óvæntur dómur sem sé lyftistöng fyrir umhverfissinna Fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu telur að nýr dómur réttarins í loftslagsmáli marki tímamót og gæti haft áhrif á stefnu stjórnvalda hérlendis. Innlent 10.4.2024 13:12
Katrín opnar fyrir undirskriftir Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, er númer 74 á lista yfir þá sem nú safna meðmælendum vegna fyrirhugaðra forsetakosninga. Innlent 10.4.2024 13:10
Besti flokkurinn út fyrir Jón forseta Jón Gnarr hefur breytt Facebook síðu Besta flokksins í framboðssíðu fyrir forsetakosningar. Síðan ber nú nafnið „Jón forseti 2024“ í stað „Besti flokkurinn.“ Innlent 10.4.2024 12:48
Tugir bætast við andstæðingahóp Bjarna á hverri mínútu Rúmlega ellefu þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem fólk segir Bjarni Benediktsson ekki hafa þeirra stuðning sem forsætisráðherra. Listinn hefur verið í loftinu í tæpan sólarhring og hrannast tugir undirskrifta inn á hverri mínútu. Innlent 10.4.2024 12:09
„Fyrst og fremst bara ljúft“ Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er tekin til starfa og ráðherrar skipust á lyklum í fimm ráðuneytum í morgun. Katrín Jakobsdóttir gekk frá skrifstofunni í forsætisráðuneytinu í síðasta sinn og sagði það nokkuð ljúfa tilfinningu að kveðja stjórnmálin. Innlent 10.4.2024 12:05
Lyklaskiptin gengu sinn vanagang Í hádegisfréttum fylgjumst við með lyklaskiptunum í kjölfar þess að breytingar voru í gær gerðar á ríkisstjórnni. Innlent 10.4.2024 11:36
Leita brennuvarga í Vestmannaeyjum Slökkvilið Vestmannaeyjar hefur undanfarna daga fengið nokkrar tilkynningar vegna elds í sinu. Lögreglan í Eyjum hefur eldsvoðana til rannsóknar. Slökkviliðsstjóri segir málið alvarlegt en eldarnir hafi kviknað af manna völdum. Innlent 10.4.2024 11:34
„Ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar“ Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr matvælaráðherra, segist ætla að halda áfram þeim verkefnum sem Svandís Svavarsdóttir hefur sinnt í ráðuneytinu. Hún segist spennt takast á við ný verkefni sem ráðherra en að hún ætli að nýta daginn í að kynna sér málin í ráðuneytinu. Innlent 10.4.2024 11:32
Taka ný veður- og upplýsingaskilti í notkun Vegagerðin hefur sett upp tvö ný veður- og upplýsingaskilti, annars vegar við hringtorgið við Selfoss og hins vegar við Biskupstungnabraut. Til stendur við koma upp fleiri að þessari tegund á næstunni. Innlent 10.4.2024 11:21