Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Agnar Már Másson skrifar 15. febrúar 2026 18:33 Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir ritari og Stefán Vagn Stefánsson varaformaður. Vísir/Lýður Stefán Vagn Stefánsson þingmaður var kjörinn varaformaður Framsóknarflokksins í dag og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir varaþingmaður var endurkjörin ritari flokksins. Þau voru hvort tveggja eitt í framboði.
Lilja Alfreðsdóttir, sem var varaformaður flokksins, hafði betur gegn Ingibjörgu Isaksen þingflokksformanni í formannskjöri sem haldið var á 38. flokksþingi Framsóknar, sem lauk í dag. Sem fyrr segir var einnig kosið um varaformann, sem er nú Stefán Vagn Stefánsson, og ritara, sem er Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Stefán Vagn Stefánsson varaformaður Framsóknar.Vísir/Lýður Ritari flokksins og formaður hans eiga því ekki aðeins nafnið sameiginlegt, heldur er hvorug þeirra með fast þingsæti. Lilja Rannveig er samt varaþingmaður, ólíkt nöfnu sinni. Lilja Rannveig var fyrst kjörin ritari Framsóknar á haustfundi miðstjórnar flokksins í október 2025 eftir að Ásmundur Einar Daðason, fyrrverandi ritari, yfirgaf hið pólitíska svið. Hinn 29 ritari sat á þingi fyrir Framsókn á síðasta kjörtímabili en hlaut ekki kjör í þingkosningum 2024. Þá skipaði Lilja Rannveig 2. sætið á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi, á eftir oddvitanum Stefáni Vagni sem er eini sitjandi þingmaður flokksins í kjördæminu. Sjá einnig: Flokksþing Framsóknar 2026 Svipaða sögu er að segja af hinni 52 ára Lilju Alfreðsdóttur formanni, sem leiddi lista Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi suður en fékk ekki þingsæti. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, ritari Framsóknarflokksins.Vísir/Lýður Hinn 54 ára Stefán Vagn hefur aftur á móti verið þingmaður Norðvesturkjördæmis síðan 2021 og varaþingmaður fyrir það. Hann tekur við varaformannssætinu af Lilju Alfreðsdóttur.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Alþingi Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Sjá meira