Innlent
282 283 284 285 286 287 288 289 290 … 334 ›
Skóla- og leikskólastarf fellur niður í Reykjanesbæ Grípa þarf til lokana víða í starfsemi Reykjanesbæjar vegna skorts á heitu vatni. Skóla- og leikskólastarf fellur niður á morgun og öll íþróttamannvirki verða lokuð. Innlent 8.2.2024 14:55
Rafmagnsofnar uppseldir: Íbúar mjög uggandi Rafmagnsofnar eru uppseldir í Reykjanesbæ. Verslunarstjóri í Múrbúðinni segist aldrei hafa upplifað annað eins, örtröðin í dag hafi verið svakaleg. Viðskiptavinur sem beið í langri röð segir þungt hljóð í íbúum. Innlent 8.2.2024 14:35
Gjóskan út á haf og ætti því ekki að trufla flug Lítið gjóskufall gæti fylgt þeirri atburðarás sem nú er í gangi í eldgosinu á Reykjanesskaga, þar sem nú má sjá merki um samspil kviku og grunnvatns. Dökkan reyk leggur upp af hrauninu. Gjóskunni blæs út á haf og ætti ekki að hafa áhrif á flug. Innlent 8.2.2024 14:32
Merki um leirgos í fyrsta sinn Sú breyting varð á eldgosinu nýlega samkvæmt Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands að hluti sprungunnar gýs nú svörtum gosmekki í bland við vatnsgufu. Úr verður lítilsháttar sprengivirkni að sögn Veðurstofu. Innlent 8.2.2024 14:10
Með „krónískan kökk í hálsinum“ að forgangsraða fólki til að bjarga undan sprengjuregni í Rafah Fjölskyldan sem þrjár íslenskar konur björguðu frá Gasa á dögunum hafa fengið grænt ljós frá Alþjóðafólksflutningastofnun Sameinuðu þjóðanna (IOM) um að ferðast. Innlent 8.2.2024 14:09
Kafa ofan í „stóra bílastæðamálið“ Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, segir borgarstjórn hafa ákveðið að leggjast heildstætt yfir verklag við útgáfu sekta vegna stöðubrota í Reykjavík. Nýlega var kona sektuð fyrir að leggja í innkeyrslu á eigin lóð. Innlent 8.2.2024 14:03
Varðskip og þyrla í viðbragðsstöðu á Reykjanesi Varðskipið Freyja auk þyrlu Landhelgisgæslunnar verða til staðar á Reykjanesi. Þar verða sveitir Landhelgisgæslunnar til taks fyrir almannavarnir ef þurfa þykir. Innlent 8.2.2024 13:45
Heitavatnslaust á Keflavíkurflugvelli Heitavatnslaust er á Keflavíkurflugvelli vegna hrauns sem flætt hefur yfir heitavatnsæð við Svartsengi. Innlent 8.2.2024 13:25
Neyðarstigi lýst yfir vegna rofs á heitavatnslögn Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að virkja neyðarstig Almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum. Innlent 8.2.2024 13:16
„Í rauninni það versta sem gat gerst“ Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar er staddur á Ítalíu og fylgdist með aukafréttatíma Stöðvar 2, sér til mikillar hrellingar. Innlent 8.2.2024 12:35
Ein af sviðsmyndunum sem gert var ráð fyrir Rennsli hraunsins yfir Grindavíkurveg og Norðurljósaveg við Bláa lónið var ein þeirra sviðsmynda sem gert var ráð fyrir í hraunfræðilíkönum. Flæðið eru vondar fréttir fyrir Suðurnes en ágætar fyrir Grindavík. Innlent 8.2.2024 12:33
Sindri segist hafa framleitt lélegar byssur viljandi Sindri Snær Birgisson játar að hafa selt þremur nafngreindum einstaklingum þrívíddarprentuð skotvopn af gerðinni FCG. Hann segir aðeins eitt þeirra hafa virkað almennilega og hin hafi verið léleg af ásettu ráði. Innlent 8.2.2024 12:26
Fleiri innviðir í hættu Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna segir ljóst að heitavatnsleysi á Suðurnesjum verði talið í dögum. Svartasta sviðsmyndin sem teiknuð hafi verið upp sé að rætast. Rafmagns- og kaldavatnslagnir eru í hættu á að verða undir hrauni en þær eru á talsverðu dýpi og vonast er til að þær haldi. Innlent 8.2.2024 12:25
Tókust á um útlendingamálin í Pallborðinu Útlendingamálin og staðan sem upp er komin varðandi einstaklinga sem fastir eru á Gasa en komnir með dvalarleyfi á Íslandi verða til umræðu í Pallborðinu á Vísi klukkan 14 í dag. Innlent 8.2.2024 12:24
Hraunið farið yfir heitavatnslögnina Hraunið hefur farið yfir heitavatnslögnina sem ber heitt vatn frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga. Heitavatnslaust verður í að minnsta kosti nokkra daga. Innlent 8.2.2024 12:14
Katrín uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum Forsætisráðherra er uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum, þar sem hraun rennur hratt í átt að heitavatnslögn. Ef allt fari á versta veg gætu Suðurnesin verið án heits vatns í tvo til þrjá daga. Innlent 8.2.2024 11:57
Verulega hefur hægt á aflögun umhverfis kvikuganginn Verulega hefur hægt á aflögun umhverfis kvikuganginn. Líkur á því að gossprungan lengist frekar hafa því minnkað. Innlent 8.2.2024 11:30
Hraunflæðið kemur á óvart Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir það hafa komið sér á óvart að sjá hraun renna yfir Grindavíkurveg og veg að Bláa lóninu. Reynt hafi verið að verja heitavatnslögn á síðustu stundu í morgun. Innlent 8.2.2024 11:25
Biðja fólk um að lækka á ofnum og fara ekki í bað Útlit er fyrir að hraunið á Reykjanesi fari yfir stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ á næstu klukkustundum. Gerist það verður heitavatnslaust í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum. Innlent 8.2.2024 11:12
Hafa náð samkomulagi við lífeyrissjóðina um lán Grindvíkinga Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Innlent 8.2.2024 11:07
Verulega ósáttur að fá ekki að fara til Grindavíkur Hafþór Skúlason, íbúi í Grindavík, er verulega ósáttur við skipulag almannavarna en hann hugðist fara í verðmætabjörgun í bænum í dag. Innlent 8.2.2024 10:57
Hádegisfréttatími vegna eldgossins í heild sinni Eldgos hófst upp úr klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Hraun náði Grindavíkurvegi á ellefta tímanum. Innlent 8.2.2024 10:47
Mögulega heitavatnslaust á Suðurnesjum eftir nokkrar klukkustundir Mikil hætta er á að hraun renni yfir hitaveituæð HS veitna í Svartsengi. Það þýðir að ekkert heitt vatn yrði á Suðurnesjum og nágrannasveitafélögum. Svartasta sviðsmyndin gæti verið að raungerast, segir forstjóri. Íbúar Suðurnesja eru beðnir um að varðveita hita á húsum og loka strax gluggum. Heitavatnsleysið myndi þó sennilega ekki standa lengur en í einn til tvo sólarhringa. Innlent 8.2.2024 10:34
Grunar að gosið sé búið að ná hámarki Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að sig gruni að eldgosið sem hófst í morgun sé búið að ná hámarki sínu. Hann segist telja líklegt að því verði lokið um helgina. Innlent 8.2.2024 10:32
Bein útsending frá gosstöðvum Eldgos hófst í Sundhnúksgígaröðinni klukkan sex í morgun. Hér að neðan má sjá vefmyndavélar Vísis frá gosstöðvunum. Innlent 8.2.2024 10:27
Hraun rennur yfir Grindavíkurveg Hraun úr eldgosinu sem hófst í morgun hefur náð Grindavíkurvegi. Það er komið yfir veginn. Horfa má á hraunrennslið í beinni úr vefmyndavél Vísis neðst í fréttinni. Innlent 8.2.2024 10:23
„Við erum bara eins og ein stór fjölskylda“ Sólný Pálsdóttir, kennari og ljósmyndari frá Grindavík, var við Reykjanesbraut í morgun til að sjá eldgosið. Með henni í för var fjórtán ára sonur hennar, Fjölnir Sveinsson. Innlent 8.2.2024 10:09
Ekki tekið ákvörðun um að loka varnargarðinum Viðbragðsaðilar á vettvangi gossins hyggjast ekki loka varnargarðinum við Grindavíkurveg að svo stöddu. Skarð er á varnargörðunum við Svartsengi og verður unnið í því að minnka það í dag. Innlent 8.2.2024 09:43
„Þetta er upplifun lífsins!“ Ferðamenn sem voru staddir á hóteli Bláa lónsins í morgun þegar það var rýmt vegna yfirvofandi eldgoss, voru himinlifandi yfir upplifuninni. Einhverjir vöknuðu við jarðskjálfta og óskuðu þess heitast að gos væri að hefjast. Innlent 8.2.2024 09:37
Mögulegt að hraunið nái Grindavíkurvegi um hádegisbil Fréttastofu hafa borist nokkrar ábendingar frá áhugamönnum um að hraun gæti náð Grindavíkurvegi um hádegisbil og Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna, segir það mögulegt. Innlent 8.2.2024 09:33