Lífið
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 334 ›
Grillmeistari Íslands krýndur um helgina Von er á tíu til fimmtán þúsund manns á Selfoss um helgina þar sem Kótelettan fer fram. Grillmeistari Íslands verður krýndur í bænum og stórskotalið tónlistarfólks stígur á svið. Lífið 10.7.2024 12:01
Erna Mist og Þorleifur eiga von á barni Erna Mist Yamagata listakona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri eiga von á barni saman. Lífið 10.7.2024 11:47
„Ég fer ekki í búr eins og dýr“ Tónlistarmaðurinn Alexander Jarl Abu-Samrah hefur skorað á fjölmiðlamanninn Stefán Einar Stefánsson í glímu vegna ummæla sem hann lét falla í hlaðvarpsþætti fyrr í vikunni. Hann birti færslu á samfélagsmiðla þar sem hann biður fólk um að læka færsluna ef það vill sjá þá tvo takast á í „búrinu.“ Stefán segir að ef menn vilji koma honum í búr þá sýni það hvaða mann þeir hafi að geyma. Lífið 10.7.2024 11:21
Iceguys dansandi í handjárnum Það er mikið um að vera hjá strákasveitinni Iceguys ef marka má Instagram hjá meðlimunum síðastliðna daga. Þar hafa þeir meðal annars gefið til kynna að von sé á nýju efni úr smiðju strákanna 19. júlí næstkomandi. Tónlist 10.7.2024 10:54
Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Koziol Superglas glösin eru gerð úr óbrjótanlegu hátækniplasti sem á sér engan líkan hvað varðar endingu og styrkleika. Superglas eru einstök nýsköpun frá þýska vörumerkinu Koziol sem margir hönnunarunnendur kannast við. Lífið samstarf 10.7.2024 10:25
Kanónur með listræna þrennu á Flateyri Menningarlífið iðar á Vestfjörðum en þrír þekktir myndlistarmenn opna sýningar á verkum sínum á Flateyri næstkomandi laugardag og eru sýningarnar opnar öllum. Listamennirnir eru Hrafnhildur Arnardóttir, jafnan þekkt sem Shoplifter, Hrafnkell Sigurðsson og Kristján Björn Þórðarson. Menning 10.7.2024 10:01
Erfiðast að flytja til Íslands án mömmu sinnar Alexandra Rún Landmark er nítján ára gömul og eyddi níu árum ævi sinnar í Bandaríkjunum. Mamma Alexöndru er fyrirmynd hennar í lífinu en Alexandra er meðal keppenda í Ungfrú Ísland sem verður haldin í Gamla Bíó 14. ágúst næstkomandi. Lífið 10.7.2024 09:01
Retro Stefson koma aftur saman Hljómsveitin Retro Stefson hefur verið starfrækt frá árinu 2006 en þó ekki komið opinberlega fram sem sveit í átta ár. Nú er það að breytast en fréttamaður hitti á nokkra meðlimi sveitarinnar og fékk að heyra frá risastórri tilkynningu. Tónlist 10.7.2024 07:00
Ye sagðist vera hættur í tónlist Fyrr í kvöld birti rapparinn Rich the kid skjáskot af skilaboðum sem hann hafði fengið frá Ye, áður Kanye West, þar sem hann sagðist ætla hætta hafa tónlist að atvinnu. Kvaðst hann ekki vita hvað tæki við. Nokkrum klukkustundum síðar tilkynnti Rich the kid svo um það að Ye væri meðflytjandi á plötu hans sem kemur út á föstudaginn. Lífið 9.7.2024 22:44
Fyrsta stiklan úr Gladiator II Fyrsta stikla stórmyndarinnar Gladiator II undir leikstjórn sjálfs Ridley Scott hefur litið dagsins ljós. Myndin er sjálfstætt framhald af Skylmingaþrælnum sem kom út árið 2000 og tekinn er upp þráðurinn einhverjum 25 árum eftir atburði fyrstu myndarinnar. Bíó og sjónvarp 9.7.2024 21:36
„Í smávegis vegferð að líta á ADHD-ið mitt sem fallegan hlut“ Söngkonan og fagurkerinn Viktoría Kjartansdóttir er nýflutt heim frá París og vinnur nú við kvikmyndagerð. Hún var að ljúka verkefni sem þriðji aðstoðarleikstjóri í þáttum um Vigdísi Finnbogadóttur sem Vesturport framleiðir. Viktoría er stöðugt á ferðinni og því alltaf með ýmislegt í töskunni sinni en hún opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni? Tíska og hönnun 9.7.2024 20:01
Stofnandi Stealers Wheel látinn Skoski tónlistarmaðurinn Joe Egan er látinn, 77 ára að aldri. Tilkynnt var um andlát hans á sunnudag. Joe Egan var annar tveggja stofnmeðlima hljómsveitarinnar Stealers Wheel, sem gerði garðinn frægan með laginu Stuck in the middle with you. Lífið 9.7.2024 15:45
Myndir: Dýrðardagur á Snæfellsnesi Tvö skemmtiferðaskip komu við í Grundarfirði í gær og iðaði bærinn af lífi. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis var á Snæfellsnesi í gær með myndavélina á lofti og festi mannlífið á filmu. Lífið 9.7.2024 14:20
Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin var í beinni frá Akureyri um liðna helgi þar sem Pollamótið og N1 mótið fóru fram. Íslendingar létu kuldabola ekki stoppa sig frekar en fyrri daginn og skemmtu sér frábærlega þó sólin léti lítið sjá sig. Lífið samstarf 9.7.2024 12:09
„Klippingin sem frelsaði mig“ „Það ættu öll að prófa það einhverntímann að ögra ríkjandi hugmyndum samfélagsins, hverjum er ekki sama,“ skrifar fjölmiðlakonan og meistaraneminn Chanel Björk sem tók afdrifaríka ákvörðun fyrr í sumar og lét klippa allt hárið af sér. Hún segist ekki alveg hafa áttað sig á því hve áhrifaríkt það yrði. Lífið 9.7.2024 11:10
„Gat ekki litið í spegil án þess að fara að gráta“ Sasini er nítján ára gömul stúlka sem talar fimm tungumál og langar að eigin sögn að vera fyrirmynd fyrir yngri litaðar stúlkur á Íslandi. Síðastliðin ár hefur hún unnið mikið að andlegri og líkamlegri heilsu sinni og er stolt af sinni vegferð. Sasini er meðal keppenda í Ungfrú Ísland en keppnin fer fram 14. ágúst í Gamla bíó. Lífið 9.7.2024 09:01
50+ : Algengustu mistök hjóna Það er margt öðruvísi í lífinu eftir fimmtugt. Flestir búnir að koma sér nokkuð vel fyrir, vita fyrir hvað þau standa og nokkuð upplýst um hvar helstu áherslurnar liggja. Áskorun 9.7.2024 07:01
Portú-galin stemning hjá Villa Netó Listamaðurinn Villi Neto gaf út plötuna Portú Galinn síðastliðinn föstudag og hélt að því tilefni útgáfupartý fyrir sig og sína á Prikinu. Fræga fólkið lét sig ekki vanta og var landsleikur Portúgals og Frakklands hluti af dagskránni. Tónlist 9.7.2024 07:01
Reynir Pétur gengur miklu minna en hann gerði Göngugarpurinn Reynir Pétur Ingvarsson á Sólheimum í Grímsnesi hefur heldur dregið úr gönguferðum sínum því hann er komin með gangráð af því að hann var svo fljótur að mæðast. Þess í stað hjólar hann mikið, auk þess að vera á rafskutlu. Lífið 8.7.2024 20:04
Myndaveisla: Aron Can, Issi og Patti í tískupartýi ársins Síðastliðinn fimmtudag kynnti 66°Norður nýju samstarfslínu sína við íslenska fatamerkið Reykjavik Roses. Tilhlökkun tískuunnenda var gríðarleg og mikil röð myndaðist upp Laugarveginn fyrir opnun. Tíska og hönnun 8.7.2024 20:00
„Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Verklag mitt er samfellt flæði. Öllu skiptir að vera stöðugt að og leitandi,“ segir myndlistarkonan Guðný Rósa Ingimarsdóttir. Hún opnaði einkasýninguna Hornafjöldi í hættu í Ásmundarsal á dögunum en sýningin fylgir gestum inn í sumarið og stendur til 6. ágúst næstkomandi. Menning 8.7.2024 16:38
„Í upphafi var tribal teknóið vinsælast en svo týndu menn því” Arnviður Snorrason hefur unnið sem plötusnúður og tónlistarmaður í fjölda ára. Eflaust þekkja flestir hann betur undir nafninu Addi Exos. Hann spilar teknó og hefur komið að skipulagningu fjölda viðburða á Íslandi. Lífið 8.7.2024 15:11
Gerður í Blush trúlofuð Athafnakonan Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, er trúlofuð sínum heittelskaða Jakobi Fannari. Lífið 8.7.2024 13:38
„Ég lofa miklu blóði“ „Ég fékk mikið vampíruæði fyrir nokkrum árum og það mætti segja að þetta hafi verið besta útrásin,“ segir tónlistarmaðurinn, handritshöfundurinn og leikstjórinn Egill Gauti Sigurjónsson. Hann frumsýnir verkið Velkom Yn á morgun. Menning 8.7.2024 13:06
Þakklátir að búa í landi þar sem þeir geta gifst ástinni sinni „Í hjörtum okkar ríkir þakklæti fyrir það að búa í landi þar sem við tveir getum gifst manneskjunni sem við elskum,“ segja hinir nýgiftu Bjarni Snæbjörnsson og Bjarmi Fannar. Þeir gengu í hjónaband í Ráðhúsi Reykjavíkur 21. júní síðastliðinn við litla og einlæga athöfn. Lífið 8.7.2024 11:25
Stjörnulífið: Dauð mús og djamm í Mykonos Síðastliðin vika var viðburðarík að vanda en veðrið stendur sannarlega upp úr hjá samfélagsmiðlastjörnunum, hvort sem það hafi verið í bongó blíðu á höfuðborgarsvæðinu, í kulda fyrir norðan eða í suðrænni sól. Lífið 8.7.2024 09:59
Erfiðast að horfa upp á veikindi ömmu sinnar Erika Líf Káradóttir hefur alla tíð haft mikinn áhuga á módelstörfum og þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um þegar henni bauðst að taka þátt í Ungfrú Ísland. Hún er í hópi keppenda í ár en keppnin fer fram 14. ágúst næstkomandi í Gamla bíó. Lífið 8.7.2024 09:01
Margot Robbie ólétt Ástralska leikkonan Margot Robbie á von á sínu fyrsta barni með kvikmyndagerðarmanninum Tom Ackerley. Lífið 7.7.2024 21:26
Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Verðlaunahátíðin Strandgate Film festival verður haldin í Háskólabíó í kvöld. Þar munu stærstu myndir ársins keppast um ein virtustu verðlaun heims - að minnsta kosti að sögn skipuleggjenda. Menning 7.7.2024 20:43
Jon Landau er látinn Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn og Óskarsverðlaunahafinn Jon Landau er látinn 63 ára að aldri. Hann framleiddi myndir á borð við Titanic og Avatar á löngum og margverðlaunuðum ferli. Bíó og sjónvarp 7.7.2024 10:46