
Veður

Rigning eða skúrir í dag
Veðurstofan spáir suðlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og rigningu eða skúrum í dag.

Gott veður og hiti allt að 19 stig á þjóðhátíðardaginn
Samkvæmt spá veðurstofu Íslands verður gott veður í öllum landshlutum í dag á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga.

Skilakerfi fer yfir landið með tilheyrandi rigningu og súld
Mest verður vætan sunnanlands, en þó að áttin sé suðlæg mun einnig rigna af og til á Norður- og Austurlandi sem er vissulega gott fyrir gróðurinn á þeim slóðum.

Vara við miklu hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi í kvöld
Lægð sem er að myndast og dýpka á vestanverðu Grænlandshafi mun dæla til okkar röku og hlýju loft næsta sólarhringinn með tilheyrandi sunnanátt og vætu.

Spá þurru veðri um land allt á 17. júní
Suðlægar áttir verða ríkjandi næstu daga með vætu öðru hverju þegar úrkomubakkar ganga yfir úr vestri.

Allt að 23 stiga hiti
Í dag gengur í sunnanátt, um 5 til 13 metra á sekúndu. Þurrt og bjart verður á Austurlandi, en búast má við rigningu annars staðar.

Hiti gæti farið yfir 20 stig
Í dag má búast við suðlægri átt og fremur hægum vindi, en þó strekkingi vestanlands fram yfir hádegi. Léttskýjað verður á Norðaustur- og Austurlandi, og hitinn þar gæti jafnvel farið yfir 20 stig.

Allt að 18 stiga hiti á landinu í dag
Í dag verður vestlæg eða breytileg átt, 3-8 metrar á sekúndu og skúrir. Léttskýjað verður austantil en rigning norðvestanlands. Þurrt verður að mestu í kvöld.

Allt að 19 stiga hiti á Norðausturlandi
Dagurinn í dag verður fremur vætusamur sunnan- og vestanlands, en gera má ráð fyrir stöku skúri á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti á norðaustanverðu landinu gæti farið upp í allt að 19 stig síðdegis.

Gul viðvörun á Austfjörðum og Suðausturlandi
Gul veðurviðvörun er í gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hún gildir til klukkan átta í kvöld.

Hlýjast á höfuðborgarsvæðinu í dag
Allt að 14 stiga hiti verður á Suðvesturhorninu síðdegis.

Hlýjast á Suðausturlandi í dag
Hlýjast verður á Suðausturlandi í dag, en kólnar á landinu norðaustanverðu síðdegis.

Hlýjast á Austurlandi
Hiti verður á bilinu 8 til 17 stig í dag, en hlýjast austan- og suðaustanlands.

Allt að 16 stig á Austurlandi í dag
Útlit er fyrir suðvestan 3-10 m/s í dag með skúrum um vestanvert landið en einkum fyrri hluta dagsins.

Líklegt að fyrstu 20 stig 2020 mælist í dag
Líklegt er að hiti muni ná 20 stigum í fyrsta skipti á landinu á þessu ári í dag. Spár Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hitinn gæti farið í 21 stig í Ásbyrgi.

Súld eða rigning sunnan- og vestanlands
Útlit er fyrir sunnan golu eða kalda í dag þar sem súld eða rigning verður viðloðandi sunnan- og vestanlands með hita á bilinu átta til tólf stig.

Hiti allt að tuttugu stig á föstudaginn
Nú er hann lagstur í dæmigerðar sunnanáttir með vætu sunnan- og vestanlands. Reikna má með suðvestan 10 til 18 metra á sekúndu þar sem hvassast verður á norðvestantil.

Allkröpp lægð fer þvert norðaustur yfir landið
Lægðinni fylgir óstöðugt loft með skúradembum eða rigningu og strekkingsvestanvindum, sér í lagi á Suðausturlandi.

Hlýjast fyrir norðan í dag
Hiti á landinu í dag verður á bilinu 6-15 stig. Hlýjast verður á norðurlandi.

Bongó í bænum en varað við veðri undir Vatnajökli
Hiti gæti náð allt að 18 gráðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Gul veðurviðvörun er nú í gildi á Suðausturlandi.

Einn „besti dagur ársins“ á Norðaustur- og Austurlandi
Íbúar Norðaustur- og Austurlands mega búast við að fá „einn besta dag ársins“ hingað til í dag ef spár ganga eftir.

Myndarlegt regnsvæði á leið til landsins á morgun
Útlit er fyrir að veðrið í dag verði svipað og í gær þar sem vindur verður yfirleitt hægur og breytilegur. Má reikna með rúmlega tíu metrum á sekúndu úr austri við suðurströndina.

Bjartviðri sunnan- og vestanlands í dag
Spáð er austan 8 til 15 metrum á sekúndum í dag. Hvassast verður með suðurströndinni en hægari norðaustantil.

Súld eða rigning með köflum
Veðurstofan spáir vestanátt í dag, átta til þrettán metrum, en annars hægari vindi norðan- og austantil.

Gróðurinn fær loks sína rigningu til að taka vaxtarkipp
Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur vætusömu veðri í dag og á morgun á vestanverðu landinu.

Svalt veður og úrkoma í dag
Fremur svölu veðri er spáð yfir landinu í dag og hægri breytilegri átt. Þá verður hvassara austanlands, dálítil él en skúrir eða slydda suðaustanlands fram eftir degi gangi spár eftir.

Sólin skín á Norðurland og Vestfirði
Í dag er útlit fyrir hæga breytilega átt á landinu og eru mestar líkur á sólríku veðri á Norðurlandi og Vestfjörðum. Í öðrum landshlutum verður að öllum líkindum skýjað að mestu í dag og lítilsháttar skúrir verða á sunnanverðu landinu.

Vorveður í Reykjavík
Bjartviðri og 8 til 12 stiga hita og norðaustan 3-8 m/s er spáð á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þá er hægviðri spáð á morgun en þó er því spáð að skýjað verði og 6 til 9 stiga hiti.

Allt að fimmtán stiga hiti í dag
Spáð er allt að 15 stiga hita á landinu í dag.

Páskaferðalangar hvattir til að fylgjast með veðurspám
Sunnanátt verður eftir hádegi í dag, páskadag. Víða vindur á bilinu 8-15 metrar á sekúndu, en um 15-20 á norðanverður Snæfellsnesi þegar tekur að kvölda.