Viðskipti erlent
167 168 169 170 171 172 173 174 175 … 334 ›
Fréttaskýring: Blóðugur bardagi Facebook við fjárfesta Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því samfélagsmiðillinn Facebook var skráður á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum, 18. maí sl. Gengi bréfa félagsins er tæplega 20 dalir á hlut en við skráningu var félagið verðmetið á 38 dali á hlut, eða næstum tvöfalt meira en verðlagning þess á markaði nú segir til um. Miðað við skráningargengið var félagið verðmetið á 104 milljarða dala, eða sem nemur liðlega 12.500 milljörðum króna. Nú er þessi verðmiði tæplega helmingi lægri eða sem nemur 6.500 milljörðum króna. Viðskipti erlent 21.8.2012 13:11
Soros kaupir tæplega tvö prósent hlut í Man. Utd. Hinn 82 ára gamli áhættufjárfestir, George Soros, hefur nú veðjað á Manchester United í fjárfestingum sínum, en hann hefur keypt tæplega 2 prósent hlut í félaginu fyrir ríflega 40 milljónir dala, eða sem nemur tæplega fimm milljörðum króna, að því er greint er frá í fréttum breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 21.8.2012 10:54
Ævintýralegur uppgangur Apple Hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple varð í gær verðmætasta fyrirtæki sögunnar, þegar markaðsvirði þess, miðað við gengi hlutabréfa félagsins, fór í 622 milljarða dala, eða sem nemur tæplega 78 þúsund milljörðum króna. Viðskipti erlent 21.8.2012 08:42
Fjármálaráðuneytið vísar ásökunum Víglundar á bug Fjármálaráðuneytið hafnar því að hafa ekki brugðist við málaleitan Víglundar Þorsteinssonar, fyrrverandi forstjóra BM Vallár. Á blaðamannafundi í dag sagði Víglundur að ráðuneytið hefði neitað að veita upplýsingar um endurmat á lánasöfnum sem færð voru úr Kaupþing hf. yfir í Ariobanka. Viðskipti erlent 20.8.2012 20:25
BBA ætlar að selja Stansted flugvöll Rekstrarfélagið BBA, sem rekur flugvelli víðs vegar um Bretland, hefur ákveðið að selja Stansted flugvöll í útjaðri London. Félagið hefur átt í deilum við samkeppnisyfirvöld í Bretlandi frá árinu 2009, en þau fóru fram á að BBA seldi Stansted til þess að örva samkeppni á flugvallareksturssviði, en félagið hefur rekið sjö flugvelli í Bretlandi þar sem um 60 prósent af flugfarþegum fer um að hverju ári. Á meðal þeirra eru Heathrow flugvöllur og Gatwick, auk Stansted flugvallar. Viðskipti erlent 20.8.2012 13:10
Rússar í „yfirgír“ Sjóðsstjórinn John Connor, segir í viðtali við Bloomberg fréttaveituna að olíuiðnaðurinn í Rússlandi hafi mikil áhrif á efnahag landsins, mun meiri en fyrir nokkrum árum síðan. Viðskipti erlent 20.8.2012 08:59
Gengi bréfa Facebook fellur enn Gengi bréfa í Facebook féll í gær um tæplega 6,3 prósent og fór gengið við það niður fyrir 20 dali á hlut, en þegar bréf samfélagsmiðilsrisans voru tekin til viðskipta, í maí síðastliðnum, var gengið 38 og það hefur því lækkað nær látlaust. Viðskipti erlent 17.8.2012 08:58
Dönsk hönnun skiptir landið sköpum Þó danskur efnahagur hafi gengið í gegnum efnahagslegan öldudal á undanförnum árum, og sé í reynd enn í vanda, eru ýmsar stoðir hagkerfisins traustar. Viðskipti erlent 16.8.2012 09:16
Auglýsingar í fréttaveitunni Nokkrir notendur samskiptasíðunnar Facebook eru nú byrjaðir að sjá auglýsingar í fréttaveitu (e.News feed) síðunnar. Forsvarsmenn síðunnar tilkynntu í lok síðasta árs að fyrirtæki geti keypt auglýsingar sem birtast á þessum stað síðunnar. Viðskipti erlent 15.8.2012 20:42
Skuldakreppan skekur evrulöndin Hagkerfi evrusvæðisins dróst saman um 0,2% á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við þann fyrsta. Örlítið meiri kraftur var í þýska og franska hagkerfinu en búist hafði verið við en landsframleiðsla í Grikklandi, Ítalíu, Spáni og Finnlandi dróst nokkuð saman. Viðskipti erlent 15.8.2012 11:00
Hagvöxturinn er ekki aðalatriðið "Ég hef áhuga á Íslandi, vegna þess að ég tel að umheimurinn geti lært margt af því sem hér er gert,“ segir Spánverjinn Emiliano Duch, sem er einn virtasti fræðimaður heims á sviði samkeppnishæfni. Hann var staddur hér á landi í byrjun mánaðarins vegna samstarfs við ráðgjafafyrirtækið Gekon, sem unnið hefur að kortlagningu á jarðhitaklasanum hér á landi, og því hvernig megi efla hann og styrkja. Viðskipti erlent 15.8.2012 11:00
Danske Bank: Miklir erfiðleikar út þetta ár í Evrópu Greiningardeild Danske Bank segir að enginn hagvöxtur verði á evrusvæðinu á þessu ári og að útlitið sé ekki gott. Frá þessu er greint á vefsíðu Politiken í dag. Í greiningu Danske segir að hagvöxtur verði við núllið á þessu ári, að meðaltali fyrir allt svæðið, en verði líklega í kringum 0,7 prósent í byrjun næsta árs. Viðskipti erlent 15.8.2012 08:56
Framkvæmdastjóri BBC verður forstjóri útgáfufélags New York Times Framkvæmdastjóri breska ríkisútvarpsins, Mark Thompson, verður næsti forstjóri útgáfufélags New York Times og mun taka við því starfi í nóvember. Frá þessu greindi BBC í morgun. Viðskipti erlent 15.8.2012 08:07
Standard Chartered greiðir fúlgur fjár í sekt Stjórnendur breska bankans Standard Chartered hafa samþykkt að greiða bandarískum yfirvöldum því sem nemur fjörtíu og einum milljarði króna í sekt vegna stórfelldra svika sem tengdust viðskiptum við stjórnvöld í Íran. Viðskipti erlent 15.8.2012 07:07
Dótturfyrirtæki REC gjaldþrota Sólarraforkufyrirtækið REC hefur ákveðið að lýsa dótturfyrirtæki sitt, sem rekið er í Noregi, gjaldþrota. Norska fyrirtækið skuldar sem samsvarar 24 milljörðum íslenskra króna. Þetta staðfestu forsvarsmenn fyrirtækisins í fréttatilkynningu til fjölmiðla. Þeir segja að þeir hafi reynt að selja hluta fyrirtækisins eða fyrirtækið í heild, en það hafi ekki gengið. Viðskipti erlent 14.8.2012 10:35
Hagvöxtur í Þýskalandi nam 0,3% Hagvöxtur í Þýskalandi nam 0,3 prósentum á öðrum ársfjórðungi og skýrist hann einkum af einkaneyslu. Enginn hagvöxtur varð hins vegar í Frakklandi, en þar í landi höfðu menn búist við samdrætti. Á fréttavef BBC kemur fram að þetta er þriðji ársfjórðunguirinn í röð þar sem enginn hagvöxtur er í Frakklandi. Búist er við því að Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti hagvaxtartölur fyrir öll ríki Evrópusambandsins síðar í dag. Viðskipti erlent 14.8.2012 07:00
Batman féll úr fyrsta sæti Nýjasta Batman myndin, The Dark Knight Rises, féll um helgina úr efsta sæti yfir tekjuhæstu myndir í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 13.8.2012 07:09
Engar ákærur á hendur forsvarsmönnum Goldman Sachs Engar ákærur munu koma fram á hendur forsvarsmönnum bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs, en tilkynnt var um þá ákvörðun fyrir helgi. Rannsókn á starfsemi bankans, sem snéri að skuldabréfavafningum og húsnæðislánum, stóð yfir í meira en þrjú ár áður en ákvörðun var tekin um að halda ekki áfram með málið, en að því er segir í tilkynningu byggir ákvörðun yfirvalda á því að ekki hafi verið talið að starfsemi hafi brotið gegn lögum, jafnvel þótt viðskiptin hafi verið vafasömum í einhverjum tilvikum, og komið sér illa fyrir viðskiptavini og lántakendur. Viðskipti erlent 12.8.2012 13:41
Buffett ávaxtaði hlutabréf sín um 11,4 milljarða á föstudaginn Eignir bandaríska fjárfestisins Warren Buffets eru nú metnar á 44 milljarða dala, eða sem nemur tæplega 5.300 milljörðum króna. Samkvæmt vefsíðu Forbes tímaritsins ávaxtaði hann hlutabréfasafn sitt um 95,4 milljónir dala á föstudaginn síðastliðinn, eða sem nemur 11,4 milljörðum króna. Viðskipti erlent 11.8.2012 00:01
Man. Utd. formlega orðið bandarískt almenningshlutafélag Forsvarsmenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United (Man. Utd.) hringdu bjöllunni í kauphöll Nasdaq á Wall Street í dag þegar bréf félagsins voru formlega tekin til viðskipta. Fyrstu viðskipti með bréfin fóru fram á 14,05 dölum á hlut en skráningargengið var 14 dalir. Viðskipti erlent 10.8.2012 16:02
Stjórnarformaður Barclays fundinn Sir David Walker, sem var efnahagsráðgjafi Gordons Brown fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, verður næsti stjórnarformaður Barclays bankans. Fráfarandi stjórnarformaður, Marcus Agius fær sem samsvarar 70 miljóna króna starfslokasamning þegar hann lætur af störfum í október. Agius tilkynnti í byrjun sumars að hann myndi hætta hjá bankanum. Stjórnendur bankans hafa legið undir hörðu ámæli um nokkurra mánaða skeið, en bankinn er grunaður um að hafa haft áhrif á stýrivexti í Bretlandi með ólöglegum hætti. Viðskipti erlent 10.8.2012 08:24
Manchester United á markað Viðskipti munu hefjast með hlutabréf í enska knattspyrnuliðinu Manchester United í Kauphöllinni í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í dag. Viðskipti erlent 10.8.2012 07:01
Nestle hagnast um 5,24 milljarða dala Matvælaframleiðandinn Nestle hagnaðist um 5,24 milljarða dala, jafnvirði 655 milljarða króna, á fyrri helmingi ársins. Hagnaðurinn jókst um 8,9 prósent frá sama tímibili ársins á undan. Mesti vöxturinn er í sölu á tilbúnu Kaffi (Ready-to-drink) í Kína og síðan Kit Kat sölu í Mið-Austurlöndum. Viðskipti erlent 9.8.2012 17:01
Boðið að sleppa við ákærur gegn aðstoð við rannsókn Yfirvöld í Bandaríkjunum, sem hafa umfangsmikið svind með millibankavexti á markaði til rannsóknar, hafa boðið nokkrum miðlurum svissneska bankans UBS vörn gegn ákærum gegn því að þeir aðstoði við rannsókn á stórfelldu millibankavaxtasvindl á markaði. Frá þessu er greint í Wall Street Journal (WSJ) í dag. Viðskipti erlent 9.8.2012 13:34
Tony Blair óttast að Bretar yfirgefi Evrópusambandið Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, segist óttast mjög að Bretar muni ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu að yfirgefa Evrópusambandið. Viðskipti erlent 9.8.2012 10:18
Einn af upphafsmönnum evrusamstarfsins óttast um framtíð þess Otmar Issing, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópu, varar við því að evrusvæðið geti liðast í sundur í bók sem kallast “Hvernig við björgum evrunni og styrkjum Evrópu” og kemur út í þessari viku. Viðskipti erlent 8.8.2012 20:01
Standard Chartered bankinn réttir úr kútnum Gengi hlutabréfa í Standard Chartered bankanum hefur hækkað um tæplega 6,5 prósent í morgun en síðustu tvo daga hefur gengi bréfa bankans hrunið, eftir að Fjármálaeftirlitið í New York tilkynnti um opinbera rannsókn á bankanum vegna gruns um stórfelld peningaþvætti fyrir Íransstjórn. Bankinn hefur hafnað öllum ásökunum um lögbrot og sagt þær "víðsfjarri raunveruleikanum“. Viðskipti erlent 8.8.2012 10:12
Verst ásökunum um ólögleg viðskipti Breska fjármálafyrirtækið Standard Chartered neitaði í gær af krafti ásökunum um að bankinn hafi stundað stórfelld ólögleg viðskipti í samvinnu við írönsk stjórnvöld á árunum 2001 til 2007. Viðskipti erlent 8.8.2012 02:00
Indónesía á fullri ferð Efnahagur Indónesíu er að vaxa hratt um þessar mundir en hann óx um 6,4 prósent en sérfræðingar spáðu vexti upp á ríflega sex próent. Vöxturinn er að mestu drifinn áfram af vaxandi innlendri eftirspurn, en hún vegur ríflega 60 prósent í heildar umsvifum hagkerfisins, að því er segir í umfjöllun BBC um hagvaxtartölurnar í Indónesíu. Viðskipti erlent 7.8.2012 09:07
Bandaríkin vilja efla viðskiptatengsl við Suður-Afríku Utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst í gær yfir vilja til að auka viðskiptatengsl við Suður-Afríku. Viðskipti erlent 7.8.2012 06:19