Viðskipti erlent
297 298 299 300 301 302 303 304 305 … 334 ›
Kauphallarsvindl eykst mikið í Kaupmannahöfn Ýmiskonar svik og svindl með hlutabréfaviðskipti í kauphöllinni í Kaupmannahöfn hafa aukist mikið á fyrsta helmingi þessa árs. Viðskipti erlent 17.7.2009 14:38
Kalifornía gæti fengið milljarða tekjur af kannabis Tillaga um að lögleiða kannabis hefur legið frammi á ríkisþingi Kaliforníu í nokkra mánuði. Nú hafa útreikningar frá skattyfirvöldum ríkisins sýnt að tómir sjóðir Kaliforníu gætu fengið 1,4 milljarða dollara eða tæplega 180 milljarða kr. ef af lögleiðingunni verður. Viðskipti erlent 17.7.2009 14:08
Dr. Doom: Það versta er að baki í kreppunni Hagfræðingurinn Nouriel Roubini, auknefndur Dr. Doom og þekktur fyrir að hafa séð fyrir núverandi fjármálakreppu, segir að það versta sé að baki hjá þróuðu löndunum hvað kreppuna varðar. „Það skín ljós við endann á göngunum. Og til tilbreytingar er ljósið ekki járnbrautarlest á leiðinni,“ segir Roubini. „Botninum er náð í Bandaríkjunum og hinu alþjóðlega hagkerfi.“ Viðskipti erlent 17.7.2009 11:15
Starfsmenn JP Morgan fá háar bónusgreiðslur Laun starfsmanna JPMorgan bankans í Bandaríkjunum nálgast nú þær upphæðir sem tíðkuðust fyrir lánsfjárkrísuna. Starfsmönnunum er heitið háum bónusgreiðslum fyrir vel unnin störf. Viðskipti erlent 17.7.2009 11:13
Danmörk með hæsta verðlag af ESB ríkjunum Eurostat hefur birt skýrslu um verðlag í ríkjum ESB árið 2008. Í ljós kom að á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins er verðlag hæst í Danmörku, eða 41% hærra en meðalverðlag ríkjanna 27. Viðskipti erlent 17.7.2009 08:11
Uppsagnir hjá Lloyds TSB stefna í 8,200 það sem af er ári Breski bankinn, Lloyds TSB, hyggst segja upp 1,200 starfsmönnum á næstunni. Uppsagnirnar gera það að verkum að um 8,200 manns hafa misst atvinnu sína hjá bankanum á árinu. Viðskipti erlent 16.7.2009 14:08
Mikill hagnaður hjá JP Morgan Næst stærsti banki Bandaríkjanna, JP Morgan Chase & Co., skilaði 2,7 milljarða dala hagnaði á öðrum ársfjórðungi, Niðurstöðurnar koma hæfustu greinendum á fjármálamarkaði algjörlega í opna skjöldu þar sem hagnaðurinn er mun meiri en þeir höfðu áætlað. Viðskipti erlent 16.7.2009 13:09
Áfram samdráttur á inn- og útflutningi hjá G-7 ríkjunum Verðmæti inn- og útflutnings í þróunarlöndunum dróst saman á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en þó minna en á síðustu þremur mánuðum ársins 2008. Þetta kemur fram hjá Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD. Viðskipti erlent 16.7.2009 10:09
Bresk skýrsla: Vill birta laun allra hæst launuðu bankastarfsmanna Breskir bankar ættu að birta laun og árangurstengdar greiðslur allra hæst launuðu starfsmanna sinna, en ekki einungis stjórnarmanna. Þetta segir sir David Walker í skýrslu sem hann vann um stjórnunarhætti í fjármálakerfinu. Viðskipti erlent 16.7.2009 09:51
Hagtölur frá Kína valda mikilli hækkun á álverði Heimsmarkaðsverð á áli hefur tekið mikið stökk upp á við frá því í gær og þar til í morgun eða um 80 dollara á tonnið. Það eru nýjar hagtölur frá Kína sem valda þessari hækkun en samkvæmt þeim mædist hagvöxtur landsins á síðasta ársfjórðungi 7,9%. Viðskipti erlent 16.7.2009 08:54
Enn eru háar bónusgreiðslur við lýði Starfsmenn fjárfestingabankans Goldman Sachs eiga von á því að fá að meðaltali um 770 þúsund bandaríkjadala bónusgreiðslur, jafnvirði um 98 milljónum króna, á árinu í kjölfar góðrar afkomu bankans á fyrri helmingi ársins. Hagnaður bankans nam 3,4 milljörðum dala á öðrum ársfjórðungi og kom sú niðurstaða mjög á óvart beggja vegna Atlantshafsins. Times online greinir frá þessu. Viðskipti erlent 15.7.2009 15:30
Atvinnuleysi eykst á Bretlandi Atvinnuleysi fer vaxandi á Bretlandi. Á undanförnum þremur mánuðum hafa 281 þúsund manns orðið atvinnulausir sem er mesta aukning atvinnuleysis á einum ársfjórðungi í sögu Bretlands. Atvinnuleysi mælist nú 7,6% sem er meira en spár höfðu gert ráð fyrir og það versta síðan í janúar 1997, síðan Verkamannaflokkurinn tók við völdum. Sky fréttaveitan greinir frá þessu í dag. Viðskipti erlent 15.7.2009 10:08
Boeing boða 1.000 uppsagnir Boeing-flugvélaverksmiðjurnar þurfa að segja upp 1.000 starfsmönnum í vopnaframleiðsuhluta fyrirtækisins eftir að bandaríska varnarmálaráðuneytið skar niður styrki til verksmiðjanna. Viðskipti erlent 15.7.2009 08:09
Er von að glæðast á bandarískum fjármálamarkaði? Bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs, skilaði hagnaði uppá 3,4 milljarða bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Tekjur bankans á ársfjórðungnum námu 13,8 milljörðum dala sem eru mestu ársfjórðungstekjur bankans frá upphafi. Viðskipti erlent 14.7.2009 15:51
Verðbólga á Bretlandi mælist 1,8% Ársverðbólga á Bretlandi mælist nú 1,8 prósent sem er lægsta verðbólga sem mælst hefur í sameinaða konungsríkinu í næstum tvö ár. Orsakirnar eru aðallega lækkandi verð á bensíni og matvöru. Viðskipti erlent 14.7.2009 11:50
Hægir á efnahagsbata í Þýskalandi Væntingavísitala þýskra fjárfesta minnkaði óvænt í júlí sem bendir til þess að það muni taka stærsta hagkerfi í Evrópu lengri tíma að jafna sig en vonir stóðu til. Vísitalan féll úr 44,8 stigum í júní og í 39,5 stig í júlí, en hagfræðingar höfðu spáð því að vísitalan í júlí myndi mælast 47,8 stig. Viðskipti erlent 14.7.2009 10:50
Frístundahús í Danmörku hækka í verði Mikill munur er á verðþróun íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis í Danmörku ef marka má frétt danska ríkisútvarpsins, DR. Á síðasta ársfjórðungi hefur verð á sumarhúsum haldist óbreytt en það hefur fallið um fjögur prósent á síðasta ári. Á sama tímabili hefur sérbýli og lúxushúsnæði fallið í verði um 13% og íbúðarhúsnæði hefur fallið um 9%. Viðskipti erlent 14.7.2009 10:22
Reikna með miklum hagnaði hjá Goldman Sachs Goldman Sachs bankinn mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung í þessari viku sem og nokkrir aðrir stórbankar vestan hafs. Reiknað er með miklum hagnaði af rekstri bankans eða ríflega 2 milljarða dollara eftir skatta. Það gera hátt í 260 milljarða kr. Viðskipti erlent 13.7.2009 14:02
Belgar fá endurgreitt frá Kaupþingi í þessari viku Þeir tæplega 16.000 Belgar sem áttu innistæður hjá Kaupþingi í Lúxemborg munu fá fé sitt endurgreitt í þessari viku, nánar tiltekið á föstudaginn kemur. Innistæðurnar hafa verið frosnar inni síðan í nóvember á síðasta ári. Viðskipti erlent 13.7.2009 09:56
Forbes: Shell er nú stærsta fyrirtæki heimsins Olíufélagið Royal Dutch Shell er nú stærsta fyrirtæki heimsins samkvæmt nýjum lista Forbes tímaritsins yfir 500 verðmætustu fyrirtæki heimsins. Velta Shell á síðasta ári nam 458,4 milljörðum dollara eða rúmlega 58.000 milljörðum kr. Viðskipti erlent 13.7.2009 08:55
Olíuverðið niður fyrir 60 dollara á tunnuna Heimsmarkaðsverð á olíu féll niður fyrir 60 dollara á tunnuna fyrir helgina og heldur verðið áfram að lækka í dag, stendur nú í rétt rúmum 59 dollurum. Viðskipti erlent 13.7.2009 08:39
Kostnaðurinn við Kaupþing á Mön nemur 40 milljörðum Kostnaðurinn við að endurgreiða innistæðueigendum hjá Singer & Friedlander banka Kaupþings á eyjunni Mön (KSFIOM) nemur 193 milljónum punda eða um 40 milljörðum kr. Viðskipti erlent 13.7.2009 08:21
Bretar geta ekki fjármagnað eigin björgunarpakka Bretland er eina þróa efnahagsríkið í heiminum sem ekki hefur efni á neinskonar efnahagslegum björgunarpakka á næsta ári, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Viðskipti erlent 12.7.2009 15:47
Verðbólga í Íran niður í 22,5% Verðbólga í Íran, einu stærsta olíuframleiðsluríki í heimi, er komin niður í 22,5 prósent. Verðbólgan lækkaði um 1,1 prósentustig frá fyrri mánuði en hún var mest 29% í September síðastliðnum. Viðskipti erlent 12.7.2009 11:57
Fyrstu greiðslur úr þrotabúi Kaupþings í Bretlandi hækka Fyrstu greiðslur úr þrotabúi Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi verða hærri en áður var áætlað. Þetta kemur fram hjá skiptastjórum Ernst & Young sem stjórna búinu. Viðskipti erlent 12.7.2009 09:02
Bílar seljast grimmt í Kína Bílar halda áfram að seljast vel í Kína og seldust rúmlega 873 þúsund bílar í síðasta mánuði. Það er 48% munur samanborið við júní á síðasta ári. Viðskipti erlent 12.7.2009 06:45
Nýtt General Motors út úr gjaldþroti Nýtt félag um bandaríska bílaframleiðslufyrirtækið General Motors hefur verið stofnað en rúmur mánuður er síðan að fyrirtækið fór fram á að vera tekið til gjaldþrotaskipta. Það var þriðja stærsta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Endurreisnarferlið tók mun skemmri tíma en margir þorðu að vona. Viðskipti erlent 11.7.2009 11:32
BIS bankanum blandað inn í japanska skuldabréfasmyglið BIS bankanum í Basel í Sviss, eða seðlabanka seðlabankanna í heiminum og síðasta vinnustað næstkomandi seðlabankastjóra á Íslandi hefur nú verið blandað í japanska skuldabréfasmyglið í smábænum Chiasso. Þar voru tveir menn gripnir með 17.000 milljarða kr. í bandarískum skuldabréfum. Viðskipti erlent 10.7.2009 16:21
Verð á eldislaxi heldur áfram að hækka í Evrópu Verð á eldislaxi heldur áfram að hækka í Evrópu og er nú komið yfir 40 norskar kr. fyrir kílóið af minnsta laxinum eða um 800 kr. Verð a stærsta laxinum er komið í 44 norskar kr. Viðskipti erlent 10.7.2009 13:32
Villtustu veislur milljarðamæringa í uppsveiflunni Börsen.dk hefur tekið saman yfirlit yfir nokkrar af villtustu veislum milljarðamæringa heimsins í uppsveiflunni síðustu árin fyrir fjármálakreppuna á síðasta ári. Milljón dollara koma Elton John í afmæli Ólafs Ólafssonar hér um árið bliknar og blánar í samanburðinum. Viðskipti erlent 10.7.2009 11:13