Viðskipti innlent
150 151 152 153 154 155 156 157 158 … 334 ›
Munu leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða Axel Gunnlaugsson og Atli Björgvinsson ráðnir til Kynnisferða til að leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða. Viðskipti innlent 23.9.2021 09:15
Play bætir við sig nýjum áfangastað í vetraráætluninni Flugfélagið PLAY hefur bætt Amsterdam í Hollandi við vetraráætlun sína. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, frá og með 3. desember. Viðskipti innlent 23.9.2021 09:07
Ekki enn náð sér á strik eftir að Costco notaði klósettpappírinn sem beitu Koma Costco til Íslands hefur haft veigamikil áhrif á eina framleiðanda salernispappírs á Íslandi. Nú rúmum fjórum árum eftir að tólf þúsund fermetra vöruhúsið opnaði í Kauptúni hefur pappírssala Papco ekki enn náð sér á strik og velta alls dregist saman um 45 prósent. Viðskipti innlent 23.9.2021 08:00
Rándýrt að auglýsa í Reykjavík Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar. Viðskipti innlent 22.9.2021 21:00
Íslenskur bar á alþjóðlegum topplista Íslenski hanastélsbarinn Jungle hefur verið valinn af 50 Best Discovery á lista yfir fimmtíu veitingastaði og bari í heiminum sem ferðalangar ættu að heimsækja. Þetta er fyrsta skiptið sem íslenskur bar kemst á þennan lista. Viðskipti innlent 22.9.2021 19:44
Íslandsbanki segir kórónukreppunni lokið Kórónuveirukreppunni er lokið að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Þrátt fyrir að skellurinn hafi verið harðari hér en víða annars staðar sé viðsnúningurinn hraðari. Viðskipti innlent 22.9.2021 18:30
Síminn kaupir hlut í nýrri íslenskri streymisveitu Síminn hefur keypt hlut í nýrri íslenskri streymisveitu sem nefnist Uppkast. Streymisveitan mun taka við efni frá almenningi og gera fólki kleift að miðla þekkingu sinni eða hæfileikum til áskrifenda og hafa af því tekjur í samræmi við spilun. Viðskipti innlent 22.9.2021 16:04
Hagkerfið að snúa við blaðinu: Spá frekari hækkunum á húsnæði og óvissu með fjölda ferðamanna Greining Íslandsbanka spáir því að 4,2% hagvöxtur mælist á þessu ári og 3,6% á því næsta. Talið er að um 600 þúsund ferðamenn komi til landsins í ár og verði um þriðjungur af fjöldanum árið 2019. Viðskipti innlent 22.9.2021 11:45
Flutti frá Los Angeles til Íslands til að markaðssetja sultur Good Good hefur ráðið Belindu Navi í starf markaðsstjóra með aðsetur í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík. Belinda Navi fluttist búferlum frá Los Angeles til Reykjavíkur til að starfa fyrir Good Good og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 22.9.2021 10:26
Róbert setur hótelið og aðrar eignir tengdar ferðaþjónustu á Sigló á sölu Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, hefur ákveðið að setja allar eignir sínar tengdar ferðaþjónustunni í bænum á sölu. Viðskipti innlent 22.9.2021 07:49
Óvæntar sendingar frá Salómonseyjum eru frá Ali Express Neytendur þurfa ekki að óttast þótt þeim berist tilkynning um óvæntar pakkasendingar frá Salómonseyjum. Þarna er ekkert vafasamt á ferðinni, heldur sendingar Ali Express frá Kína sem sendir eru gegnum Salómónseyjar. Viðskipti innlent 21.9.2021 18:34
Google taldi mikla eftirspurn eftir íslensku appi vera netárás og lokaði Íslenska appið Lightsnap hefur gert gott mót í Svíþjóð en þjónustan gerir notendum kleift að taka ljósmyndir sem þeir fá ekki að sjá fyrr en prentuð eintök eru send heim að dyrum. Viðskipti innlent 21.9.2021 11:53
Ráðinn til Sjóvár Andri Már Rúnarsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í eignastýringu og fjárfestatengill hjá Sjóvá. Viðskipti innlent 21.9.2021 11:22
Hafa samið um leigu á fjórum vélum til viðbótar Play hefur undirritað samning við alþjóðlega flugvélaleigusalann GECAS um leigu á þremur A320neo flugvélum og einni A321NX flugvél. Viðskipti innlent 21.9.2021 08:59
Jens hættir hjá Icelandair Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. Viðskipti innlent 20.9.2021 16:28
Sakar Viðskiptablaðið og Morgunblaðið um samantekin ráð gegn sér Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, sakar Morgunblaðið og Viðskiptablaðið um samantekin ráð til að gera lítið úr jafnaðarmannaskoðunum hennar. Fjölmiðlarnir tveir hafa fjallað um kauprétt sem hún nýtti sér á hlutabréfum í Kviku banka. Viðskipti innlent 20.9.2021 14:55
Skoðanakannanir fyrir kosningar valdi fjárfestum áhyggjum Íslenski hlutabréfamarkaðurinn virðist sveiflast í takt við skoðanakannanir í aðdraganda alþingiskosninga. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárfesta hafa áhyggjur, hvort sem þær séu réttmætar eða ekki, af stjórnvöldum sem hyggi á þrálátri skuldasöfnun ríkissjóðs sem leiði til hækkunar stýrivaxta. Viðskipti innlent 20.9.2021 11:52
Simmi Vill skammar Matartips-ara fyrir óvægna gagnrýni Veitingamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson segir að umræða á Matartips geti farið út í óuppbyggilegar upphrópanir með ófyrirséðum afleiðingum, þeim að veitingastaðir geti hreinlega farið á hausinn. Viðskipti innlent 20.9.2021 10:20
Nokkur mál í skoðun hjá ÁTVR: „Við ætlum að grípa til varna“ Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins vill ekki svara því hversu mörg mál hafa verið höfðuð eða eru í skoðun gegn innlendum aðilum sem stunda netsölu á áfengi. Lögmaður ÁTVR segir „nokkur sambærileg mál til skoðunar“. Viðskipti innlent 20.9.2021 08:11
Laxeldi úr einum firði stefnir í tíu milljarða króna verðmæti Útflutningsverðmæti eldislax úr stærsta firði Austfjarða, Reyðarfirði, stefnir í tíu milljarða króna á þessu ári. Framkvæmdastjóri Laxa vonast til að verðmætið úr þessum eina firði ríflega tvöfaldist á næstu árum. Viðskipti innlent 18.9.2021 22:50
ÁTVR stefnir Arnari og Sante vegna brots á einkarétti til smásölu áfengis Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur stefnt Sante ehf, Santewines SAS og Arnari Sigurðssyni, sem er skráður eigandi beggja fyrirtækjanna, til þess að hætta smásölu áfengis á Íslandi. Viðskipti innlent 18.9.2021 18:39
Skoða hvort tryggingafélög hafi brotið lög þegar talsmaður svaraði FÍB Samkeppniseftirlitið skoðar nú hvort íslensk tryggingafélög hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að ræða verðlagningu félaganna innan hagsmunasamtaka. Viðskipti innlent 18.9.2021 08:41
Sprenging á íslenska hlutabréfamarkaðnum þroskamerki Hvergi í heiminum hafa hlutabréf hækkað eins mikið í verði á undanförnu ári en á Íslandi. Hagfræðingur segir þetta skipta miklu fyrir framgang íslensks atvinnulífs en minnir á að hlutabréfakaupum fylgir áhætta. Viðskipti innlent 17.9.2021 21:05
Segir ný tíðindi að MS sé boðberi sannleikans Ólafur M. Magnússon, fyrrverandi eigandi Mjólku og síðar Mjólkurbúsins KÚ, segir alveg ný tíðindi að Mjólkursamsalan sé boðberi sannleikans. Mjólkursamsalan gagnrýndi orð forstjóra Samkeppniseftirlitsins í kostuðu fylgiblaði Fréttablaðsins í gær. Viðskipti innlent 17.9.2021 16:06
Hlutabréfin rjúka hvergi meira upp en á Íslandi Tólf mánaða verðhækkun á hlutabréfamarkaðnum hér á landi nam 65,4 prósentum í lok ágúst sem er mesta hækkunin yfir heiminn á þessu tímabili sé litið til helstu hlutabréfamarkaða. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem hagfræðideild bankans gefur út. Viðskipti innlent 17.9.2021 11:23
MS gagnrýnir þátttöku forstjóra Samkeppniseftirlitsins í kostuðu blaði Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, gagnrýnir harðlega að forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, skuli hafa veitt Fréttablaðinu viðtal sem var birt í kostuðu kynningarblaði sem bar yfirskriftina „Fögnum frelsinu - Samkeppni lifi“. Viðskipti innlent 17.9.2021 11:23
Vísbendingar um hægari efnahagsbata Leiðandi hagvísir Analytica hækkaði í ágúst og hefur ekki verið hærri síðan í ársbyrjun 2019. Er þetta ellefti mánuðurinn í röð sem hagvísirinn hækkar en um er að ræða vísitölu sem á að gefa vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum hérlendis að sex mánuðum liðnum. Viðskipti innlent 17.9.2021 10:29
Kaupir sig inn á markaðinn fyrir reyktan lax á Spáni fyrir tvo milljarða Iceland Seafood International hefur samið um kaup á spænska fyrirtækinu Ahumados Dominguez fyrir 12,4 milljónir evra, tæpa tvo milljarða króna. Fyrirtækið er helst þekkt fyrir að framleiða reyktan gæðalax. Viðskipti innlent 16.9.2021 20:42
Áhyggjur af stöðugum uppsögnum Stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) hefur áhyggjur af stöðugum uppsögnum innan fjármálageirans og segir uppsagnir starfsmanna í engum takti við afkomu fyrirtækjanna undanfarin misseri. Viðskipti innlent 16.9.2021 17:16
Ferðalög Íslendinga taka við sér Kaup Íslendinga á ferðum til útlanda hafa aukist mikið á þessu ári en í ágústmánuði jókst velta innlendra greiðslukorta hjá ferðaskrifstofum um 211 prósent milli ára. Viðskipti innlent 16.9.2021 13:36