Viðskipti innlent
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 334 ›
Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Þrír stjórnendur hafa verið ráðnir til Styrkáss. Allir koma þeir frá dótturfélögum innan samstæðu. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 18.3.2024 13:31
Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki vera ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag nær eingöngu í eigu ríkisins. Bankinn muni halda áfram ferlinu við kaup á TM tryggingum þrátt fyrir andstöðu fjármálaráðherra. Viðskipti innlent 18.3.2024 13:09
Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2023 var jákvæð um 8,1 milljarð króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 5,2 milljarða króna árið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu Isavia vegna nýbirts ársreiknings. Viðskipti innlent 18.3.2024 11:10
27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Alls sóttu 27 manns um starf forstjóra fasteignafélagsins Þórkötlu. Umsóknarfrestur rann út 5. mars síðastliðinn. Viðskipti innlent 18.3.2024 10:32
Kvika tók kipp Gengi hlutabréfa Kviku banka hækkaði um tæplega fjögur prósent í fyrstu viðskiptum eftir að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 9:30 í morgun. Viðskipti innlent 18.3.2024 09:55
Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins Kaup Festi á öllu hlutafé í Lyfju hf mun að óbreyttu krefjast íhlutunar af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Viðskipti innlent 18.3.2024 08:32
„Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsir óánægju sinni með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Hún segir að ríkisfyrirtæki eigi ekki að kaupa tryggingafélög og að viðskiptin verði ekki samþykkt af henni, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða. Viðskipti innlent 17.3.2024 22:10
Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Kviku banka hafa borist skuldbindandi tilboð um kaup á hlutafé TM trygginga hf. en bankinn hefur verið með TM í söluferli í samræmi við tilkynningu þann 17. nóvember 2023 og síðari tilkynningar þess efnis. Viðskipti innlent 17.3.2024 17:48
Forstjóraskipti hjá Play Stjórn Fly Play hf. og forstjóri félagsins, Birgir Jónsson, hafa í dag gert samkomulag um starfslok hans. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við sem forstjóri PLAY. Viðskipti innlent 17.3.2024 16:27
Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Kristján Ólafur Sigríðarson, einn níu sakborninga í meintu mansalsmáli tengdu Pho Vietnam og Wok On, hefur komið víða við síðan hann hóf veitingarekstur og fasteignaviðskipti. Kristján er í dag 33 ára gamall en byrjaði í viðskiptum aðeins 25 ára með aðstoð stjúpföður síns sem er einn þriggja hluthafa í World Class fjölskylduveldinu. Viðskipti innlent 16.3.2024 09:00
Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Leggja á niður Ríkiskaup og færa verkefni stofnunarinnar ýmist til sérstakrar starfseiningar eða ríkisaðila sem starfar á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Breytingin er liður í innleiðingu á breytingum á lögum um opinber innkaup. Viðskipti innlent 15.3.2024 15:07
Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Gunnar Alexander Ólafsson hefur verið ráðinn í starf hagfræðings hjá ÖBÍ réttindasamtökum. Viðskipti innlent 15.3.2024 12:29
Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Tæplega sextíu prósent þeirra sem taka afstöðu vilja síður eða alls ekki eiga viðskipti við fyrirtæki sem nýta greiðslumiðlun frá Rapyd. Viðskipti innlent 15.3.2024 12:09
Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Fjölskyldan í Múlakaffi hefur tekið við rekstri veitingastaðar og veislusalar í Sjálandi í Garðabæ sem ber sama heiti. Til stendur að reka líkamsræktarstöð World Class á svæðinu eftir tvö ár. Viðskipti innlent 15.3.2024 11:50
Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Íslandsbanki spáir því að ársverðbólga verði um 6,5 prósent í mars og lækki örlítið á milli mánaða. Landsbankinn spáir því að ársverðbólga verði óbreytt 6,6 prósent í mars. Greinendur beggja banka eiga von á því að verðbólgan hjaðni rólega næstu mánuði og verði um 5,4-5,3 prósent um mitt ár. Bankarnir birtu báðir spár sínar í dag. Viðskipti innlent 14.3.2024 16:54
Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs. Viðskipti innlent 14.3.2024 16:38
Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Starfsmaður Landspítalans fékk tæpar tíu milljónir í viðbótarlaun árið 2022. Það er hæsta greiðslan sem greidd hefur verið á launategundinni „viðbótarlaun á grundvelli stofnanasamninga“ á Landspítalanum síðustu fjögur ár. Viðskipti innlent 14.3.2024 14:23
Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Alls voru um 63,2 prósent búin að skila skattframtali í morgun. Frestur til að skila rennur formlega út í dag en þó er svigrúm til um og eftir helgarinnar til að klára skilin. Af þeim sem eru búin að skila standa þau sig best sem eru í yngstu og elstu aldurshópunum. Viðskipti innlent 14.3.2024 11:55
Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Lýstar kröfur í N4 ehf. námu 89 milljónum króna, en ekkert greiddist upp í rúmlega 84 milljónir þeirra. Fyrirtækið starfrækti sjónvarpstöðina N4 í fimmtán ár. Viðskipti innlent 13.3.2024 14:57
Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Sigríður Lovísa Jónsdóttir, gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg, hlaut flest atkvæði í kosningum til stjórnar VR sem lauk í hádeginu. Hún hefur átt sæti í stjórn VR frá árinu 2022. Viðskipti innlent 13.3.2024 14:56
Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Suðurnes hafa að geyma hlutfallslega fleiri leiguíbúðir í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en nokkur annar landshluti. Fimmtungur íbúða í landshlutanum er skráður í leiguskrá. Viðskipti innlent 13.3.2024 10:17
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd situr fyrir svörum um nýútgefna yfirlýsingu sína. Í yfirlýsingunni segir að fjármálakerfið standi traustum fótum. Viðskipti innlent 13.3.2024 09:00
Fjármálakerfið standi traustum fótum Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Verðbólga hefur minnkað og aðlögun hefur átt sér stað í heildareftirspurn. Raunvextir hafa hækkað og dregið hefur úr lánsfjáreftirspurn heimila og fyrirtækja. Viðskipti innlent 13.3.2024 08:39
Opna pílu- og veitingastað á gamla Stjörnutorgi Alþjóðlega veitingastaða- og afþreyingakeðjan Oche kemur til með að taka yfir pláss hins gamla Stjörnutorgs Kringlunnar frá og með sumarbyrjun. Viðskipti innlent 13.3.2024 07:25
Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna Framkvæmdastjóri Krónunnar segir fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina til að forðast mögulega skaðabótaskyldu. Fyrirtækið hafi strax brugðist við fréttum af matvælalager í Sóltúni, sem tengdist meðal annars veitingastaðnum Wok On. Þegar rökstuddur grunur um mansal og fleira ólöglegt athæfi hafi legið fyrir, hafi samningi Krónunnar við Wok On verið rift. Viðskipti innlent 12.3.2024 22:11
Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi Eik fasteignafélagi var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns Ólafs Sigríðarsonar, sem var ráðinn rekstrarstjóri nýrrar mathallar á Glerártorgi á Akureyri. Eik hefur nú slitið samstarfi við Kristján. Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik tekur við rekstrarstjórn á meðan framhald ræðst. Viðskipti innlent 12.3.2024 20:40
Forstjóraskipti hjá Origo Ari Daníelsson mun taka við starfi forstjóra Origo, en núverandi forstjóri, Jón Björnsson, mun láta af störfum í lok apríl 2024. Ari hefur setið í stjórn Origo frá árinu 2022 og gegnt stöðu stjórnarformanns frá árinu 2023. Viðskipti innlent 12.3.2024 15:03
Stefna á skráningu í Kauphöll á næstu mánuðum Íslandshótel stefna á skráningu félagsins í Kauphöll Íslands á næstu mánuðum. Viðskipti innlent 12.3.2024 13:55
SFF fá nýtt nafn en verða áfram SFF Samtök fjármálafyrirtækja, heildarsamtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hér á landi, hafa fengið nýtt nafn og munu hér eftir bera heitið Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Viðskipti innlent 12.3.2024 13:08
Spá 25 punkta lækkun stýrivaxta Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig þegar næsta vaxtaákvörðun verður kynnt á miðvikudaginn í næstu viku. Nokkrar líkur séu einnig á að vöxtum verði haldið óbreyttum fram í maí. Viðskipti innlent 12.3.2024 12:54