Tónleikasumarið 29. júní 2004 00:01
Tónleikasumarið mikla 2004 stendur nú sem hæst og þegar hafa einhverjir tónleikar átt sér stað en annarra er beðið með mikill óþreyju. Um miðjan september munu að minnsta kosti 15 stórtónlistamenn og hljómsveitir utan úr heimi hafa drepið fæti á klakann frá því um páska og glatt íbúa hans með fjaðraþyt og söng. Þessa sumars verður vafalaust minnst sem sögulegs af þessum sökum og eins og títt er með slíka atburði er þeim sem eru á blómaskeiði mikilvægt að vera þar þátttakendur. Uppselt er á nánast alla tónleika samdægurs og flestir eru þeir haldnir í Laugardalshöllinni og stundum tvennir með sömu hljómsveit þannig að það er ljóst að hátt í hundrað þúsund Íslendingar ætla sér á tónleika í sumar. Hvað skyldi þetta allt saman kosta? Meðalaðgangseyrir á tónleika er um það bil fimm þúsund krónur og þeir sem ætla að fylgjast virkilega vel með koma því til með að eyða um sjötíu og fimm þúsund krónum í stórtónleika á árinu. Þá eru ekki meðtalin ýmis minjagripakaup og veitingar á tónleikasvæðinu sem yfirleitt kosta ögn meira en á almennum vertshúsum. Kostnaður við stórtónleikahald er gríðarlegur svo það er ekki víst að mikið af þessu fé verði eftir á Íslandi en vonandi þeim mun meiri ánægja tónleikagesta sem vafalaust fá helling fyrir snúða sína.
Fjármál Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira