Er ég óþolandi yfirmaður? 6. ágúst 2004 00:01
Ekki láta starfsmenn fá vinnu snemma á morgnana. Bíddu þangað til þeir eru alveg að fara heim. Segðu þeim síðan að þetta verkefni sé mjög mikilvægt og þeir þurfi að ljúka við það í dag. Tæpur skilafrestur er alltaf svo hressandi. Ef þú lætur starfsmann fá verkefni sem þarf að klára eins fljótt og hægt er farðu þá inn til hans á tíu mínútna fresti og spurðu hvernig gangi. Stattu síðan yfir honum og bentu honum á innsláttarvillurnar sem hann gerir. Farðu alltaf út án þess að segja hvert þú ert að fara. Ekki svara símanum þínum þó að einhver hringi. Ef þú sérð starfsmann þinn reyna að opna dyr með fullt fang af pappírum og möppum, ekki opna þá fyrir honum. Hann þarf að læra þetta sjálfur til að bjarga sér. Vertu algjörlega óþolandi og reyndu að vera meiri maður en þú ert. Ekki segja starfskrafti hjá þér hvort verkefnið er í forgangi þegar þú lætur hann fá tvö verkefni á sama tíma. Reyndu eins og þú getur að halda starfsmanninum eins lengi og þú getur í vinnunni. Hann á hvort sem er ekkert líf utan hennar. Ekki segja starfsmanni að þú sért ánægður með störf hans. Hrósaðu honum aldrei -- það er dauðasynd! Segðu öllum frá því þegar starfsmaður gerir mistök. Hann hefur gaman að því þegar fólk lítur hann hornauga og baktalar hann. Ef þú vilt að verkefni sé unnið á vissan hátt, ekki segja þá starfsmanninum frá því. Bíddu þangað til hann er búinn með verkefnið og upplýstu hann síðan eftir á. Ekki kynna starfsmann fyrir fólki sem kemur að hitta þig. Segðu starfsmanninum frá öllum litlu vandamálunum þínum.
Atvinna Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira