Ford F350 19. september 2004 00:01
Tryllitæki vikunnar er Ford F350, árgerð 2004, sem hefur veirð breytt töluvert. Bíllinn er upprunalega með tvöfold dekk að aftan sem var breytt í einföld. Allur fjöðrunarbúnaður var brenndur undan bílnum og í staðinn sérsmíðuð loftpúðafjöðrun undir bílinn bæði að framan og aftan. Loftpúðana er bæði hægt að stilla handvirkt eða hafa sjálfvirka. Með handvirku stillingunni er hægt að hækka bílinn um allt að 20 cm. Fordinn var settur á 46" dekk frá Mickey Thompson sem hafa það mikið flot að billinn, sem vegur um 3,5 tonn, flýtur vel í mýksta snjó. Vélin er 6,0 L Diesel Turbo sem skilar 325 hestöflum frá verksmiðju. Í hann var settur tölvukubbur og 4" púst og með þeim breytingum jókst hestaflafjöldinn upp í 500 hestöfl. Drifhlutföll voru lækkuð í 5,13:1 og settar í ARB læsingar að framan og aftan. Skriðgír var bætt við til að geta ekið hægt, en með því má klifra upp gríðarlega brattar brekkur eða yfir dýpsta púðursnjó. Tveir auka eldsneytistankar voru settir í bílinn og er hægt að hafa með sér um 500 lítra af olíu. Aukaljós, spilbitar og búnaður og allt annað sem nauðsynlegt er að hafa í íslenskum jöklabíl er einnig í bílnum ásamt GPS staðsetningarbúnaði, VHF og CB talstöðvum. Allar breytingar voru gerðar hjá Fjallasporti en rafmagnsvinnan hjá AMG Aukaraf.
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira