Stórsókn hjá John Kerry 3. október 2004 00:01
Demókratinn og forsetaframbjóðandinn John Kerry er kominn með meira fylgi en keppinautur hans, George W. Bush Bandaríkjaforseti, samkvæmt skoðanakönnun bandaríska tímaritsins Newsweek. Könnunin var gerð eftir sjónvarpskappræður forsetaframbjóðendanna fyrir skömmu en Kerry þótti koma vel út úr þeim. 47 prósent aðspurðra sögðust myndu kjósa Kerry en 45 prósent voru á bandi Bush. Ralph Nader, sem býður sig fram sjálfstætt, hlaut 2 prósenta fylgi. Hvað varðar kappræðurnar sjálfar sögðu 61 prósent að Kerry hefði borið sigur úr býtum en aðeins 19 prósent sögðu að Bush hefði staðið sig betur. 16 prósent sögðu að þeir hefðu staðið sig jafnvel. Aðeins fjórar vikur eru síðan repúblikanar höfðu töluvert forskot á demókrata í könnunum eftir vel heppnað flokksþing í New York. Samkvæmt könnun Newsweek hafði Bush þá 52 prósenta fylgi en Kerry aðeins 41 prósents fylgi. Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru 2. nóvember næstkomandi.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira