Atvinnuástandið 30. október 2004 00:01 "
Eftirspurn eftir fólki í afgreiðslustörf og þjónustu á höfuðborgarsvæðinu er verulega að aukast," segir Kolbeinn Pálsson hjá atvinnumiðluninni job.is og sem vinnustaði tekur hann sem dæmi verslanir, veitingahús og pöbba. "Þarna er ekki lengur listi af fólki sem er að leita starfa eins og á sama tíma í fyrra. Þar er orðin veruleg breyting á," segir hann og heldur áfram. "Nú eru fyrirtæki að auglýsa eftir starfsfólki sem ekki hafa auglýst undanfarin ár vegna þess að þá var nægilegt framboð af vinnuafli." Kolbeinn telur atvinnuleysis á höfuðborgarsvæðinu gæta einkum hjá þeim sem fari ekki í þessi afgreiðslu-og þjónustustörf, vegna þess hve launin þar séu lág. Auk þessa bendir Kolbeinn á að mikið sé um að verslanir bæti við mannskap fyrir jólin. Margir skólanemendur ráði sig í búðirnar í jólafríunum en jólaösin sé hinsvegar alltaf að færast fram en frí skólafólks að styttast. Því þurfi verslunareigendur að sækja sér vinnuafl í auknum mæli út á hinn almenna markað. Hinsvegar sé lítið um fastráðningar í jólamánuðinum. "Fyrirtæki bíða oft framyfir áramót með að ráða starfsfólk til lengri tíma þar til nýjar fjárhagsáætlanir koma og svo framvegis," segir Kolbeinn og bætir við að lokum - bjartsýnn. "Þá fer allt á fulla ferð að nýju."
Atvinna Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira