Landslagið í Massachussetts 2. nóvember 2004 00:01
Það er mikill munur á pólitíska landslaginu í Massachussetts annars vegar og nágrannafylkinu New Hampshire hins vegar. Í því fyrrnefnda myndu demókratar vinna þótt þeir biðu fram blindan bavíana en í New Hampshire hefur gjarnan verið mjótt á munum og þar hafa kjósendur meiri tilhneigingu til að kjósa repúblikana heldur en í nágrannafylkjunum. Munurinn á nágrannafylkjunum tveimur er líka nokkuð sláandi. Í Massachussetts er forræðishyggjan nokkuð landlæg. Áfengisbúðir eru lokaðar á sunnudögum, sígarettupakki kostar um fjögur hundruð og hvergi má reykja, veitingastaðir eru opnir stutt og margir þeirra hafa ekki vínveitingaleyfi. Í New Hampshire virðist einstkalingsfrelsi í hærri vegum haft. Kjörorð fylkisins er "Live free or die" – og er það áletrað á allar númeraplötur á bílum. Og það er mikill munur á því hversu varir menn verða við kosningabaráttuna í þessum tveimur fylkjum. Í Massachussetts er löngu ljóst að Kerry vinnur en í New Hampshire er hnífjafnt. Kerry heimsótti Manchester í New Hampshire í dag. Á leiðinni þangað uppeftir mátti sjá að þar er baráttan hörð. Við annað hvert hús mátti sjá skilti með áróðri fyrir Kerry og við hitt var skilti til stuðnings Bush. Tugir þúsunda mættu þremur tímum fyrir fundinn til þess að berja frambjóðandann augum og komust færri að en vildu. Áður en Kerry steig á stokk töluðu nokkrir demókratar úr bænum og fylkinu um mannkosti Kerry og eigið ágæti, enda margir í framboði. Kerry kom svo upp á sviðið ásamt helstu máttarstólpum Boston Red Sox hafnarboltaliðsins sem mærðu frambjóðandann áður en hann tók sjálfur til máls. Kerry fer nú um allar trissur íklæddur forláta gulri úlpu sem gerir að verkum að auðvelt er að þekkja hann jafnvel af löngu færi. Þetta er ágætt fyrir áhorfendur þótt efast megi um að öryggisverðirnir, sem allir eru með hvíta þræði í eyranu og tala í sendi í erminni – rétt eins og í bíómyndunum, hafi verið eins ánægðir. Kerry er eflaust farinn að þreytast og mátti heyra þess merki á nokkrum stöðum í ræðunni. En hann náði samt sem áður að skila ágætlega kraftmikilli frammistöðu við mikinn fögnuð tilheyrenda. Kerry gerði grín að Bush – sérstaklega fyrir það hvernig hann lagði áherslu á það í kappræðum að forsetastarfið væri mikil erfiðisvinna. "Ég er tilbúinn og spenntur að leysa Bush undan þessu oki," sagði Kerry við mikinn fögnuð mannskarans. Kerry nýtir sér nú óspart gleði íbúa Norðausturhluta Bandaríkjanna yfir hafnarboltasigrinum og gekk meira að segja svo langt á fundinum í dag að gefa í skyn að hann hefði sjálfur átt heiður af því að núverandi eigendur hafi fengið að kaupa Red Sox klúbbinn fyrir nokkrum árum. Þegar kosningafundurinn leystist upp og demókratarnir héldu til síns heima mætti þeim skari af repúblikönum sem létu þá óspart heyra það. Repúblikanarnir voru margir klæddir í bandarísku fánalitunum og gerðu hróp að demókrötum sem svöruðu í sömu mynt. Næsti sólarhringur gerir gæfumuninn í kosningabaráttunni. Skoðanakannanir sýna að frambjóðendurnir eru nánast jafnir, en Bush þó víðast með örlítið forskot. Í mikilvægum fylkjum hefur gæfan snúist Kerry í vil. Í Flórída er nánast jafnt og Kerry sums staðar með örlítið forskot. Í Ohio hefur Bush sótt á Kerry og þar er nú nánast jafnt. Í Pennsylvaniu er Bush búinn að vinna upp forskot Kerry en í Michigan virðist spilið vera tapað fyrir forsetann. Ef ekki er gert ráð fyrir neinu stórkostlega óvænt á þriðjudaginn gæti það dugað Kerry að vinna þrjú af þeim fylkjum þar sem harðast er barist. Ef hann vinnur Ohio, Michigan og Wisconsin er hann kominn í Hvíta húsið. Ef hann hins vegar missir Pennsylvaníu og Bush heldur Flórída þá er endurkjörið í höfn. Kerry og Bush verða á þönum fram að því að kjörstaðir loka á þriðjudag. Þá kemur Kerry hingað til Boston þar sem hann kýs og heldur veislu fyrir stuðningsmenn sína og fylgist með hvernig talningin fer. Bush mun halda til Texas þar sem hann bíður sömu frétta. Á báðum stöðum má reikna með því að líf verði í tuskunum þótt á öðrum staðnum verði grátið en á hinum fagnað.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Sjá meira