Hefjum tímabil vonar 3. nóvember 2004 00:01 "
Við hefjum nú tímabil vonar," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði þúsundir stuðningsmanna sinna sem fögnuðu endurkjöri hans í Ronald Reagan-byggingunni í Washington. "Bandaríska þjóðin hefur mælt og ég er auðmjúkur frammi fyrir því trausti sem samlandar mínir hafa sýnt mér. Því trausti fylgir skylda til að þjóna öllum Bandaríkjamönnum," sagði Bush, sem beindi orðum sínum til þeirra sem kusu mótframbjóðanda hans, John Kerry. "Ég þarf á trausti ykkar og samstarfi að halda svo þjóð okkar megi verða sterkari og betri. Ég mun gera allt í mínu valdi til að ávinna mér traust ykkar," sagði Bush og bætti við: "Þegar við komum saman og vinnum saman eru engin takmörk fyrir því hvað Bandaríkin geta gert." Bush sagði helstu mál seinna kjörtímabils síns vera að bæta úrelt skattkerfi, ráðast í endurbætur á velferðarkerfinu og hafa málefni fjölskyldu og trúar í fyrirrúmi. Sigur Bush var stærri en búist var við. 59 milljónir Bandaríkjamanna, 51 prósent kjósenda, greiddu honum atkvæði sitt í kosningum sem einkenndust af óvenju mikilli kjörsókn. Hingað til hefur mikil kjörsókn helst verið talin gagnast demókrötum en því var öfugt farið í þetta skipti.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira