Fjölskyldugildi skiptu sköpum 6. nóvember 2004 00:01
Hvers vegna urðu úrslit bandarísku forsetakosninganna sem raun ber vitni? Svo virðist sem gömul trúarleg fjölskyldugildi hafi í raun verið stærsta kosningamálið - ekki Íraksmálin. Það kom stjórnmálaskýrendum á óvart að þegar kannað var eftir kosningarnar hvað skipti mestu máli þegar fólk tók ákvörðun var algengasta svarið ekki baráttan gegn hryðjuverkum og stríðið í Írak, heldur siðferðisleg gildi. Þar á eftir komu efnahagsmál og svo utanríkismálin. Margir drógu í efa að þetta gæti verið rétt en nú eru stjórnmálaskýrendur og flokksleiðtogar almennt sammála um að um leið og repúblikanar hafi haldið forskoti sínu hvað varðar varnarmál landsins, hafi þeir unnið talsvert fylgi með því að leggja áherslu á hina gamaldags bandarísku fjölskyldu - meðal annars með því að leggja áherslu á andstöðu við fóstureyðingar og hjónabönd samkynhneigðra. Samhliða forsetakosningunum var kosið um bann við hjónaböndum samkynhneigðra í ellefu ríkjum og var það samþykkt í þeim öllum. Eitt af þessum ríkjum var Ohio, lykilríkið í kosningunum. Þegar borgarstjórinn í San Fransisco leyfði hjónabönd samkynhneigðra skapaði það mikla umræðu í landinu. Stjórnmálaskýrendur telja að það, ásamt öðru er varðar siðferðisleg gildi, hafi ýtt undir kjörsókn repúblikana, sérstaklega þeirra mjög hægrisinnuðu og sérstaklega í lykilríkinu Ohio þar sem Bush vann með 136 þúsund atkvæðum. Þannig virðist það hafa borið árangur hjá repúblikönum að nota andstöðu sína gegn hjónaböndum samkynhneigðra í kosningabaráttunni. Baráttumönnum fyrir réttindum samkynhneigðra er brugðið og segja samkynhneigða vægast sagt sára yfir úrslitunum.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira